Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 84

Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 84
HMHRKHOMMI - BÍLAR - Bílaborg stórbætir MAZDA þjónustuna í nýju eigin húsnæði Fyrirtækið Bílaborg hf., sem flytur inn japönsku Mazda bílana, er nú flutt í nýtt húsnæði að Borgartúni 29 og jafnframt hefur það fengið umboð fyrir japönsku Yamaha mótorhjólunum. Hefur fyrirtækið þegar selt um 80 þeirra, þar af 20 stór, og tala Mazda bíla innfluttra í ár er komin í 300 og eru nú biðlistar eftir hin- um ýmsu gerðum þeirra. Með tilkomu nýja húsnæðis- ins færðist öll starfsemi fyrir- tækisins á einn stað og þar er nú lager, verkstæði og sýning- arsalur þar sem eldri Mazda bílar eru seldir í umboðssölu. Bilaborg flytur bílana milli- liðalaust hingað frá Japan. Þeir eru fluttir frá Japan til Antwerpen og þaðan til ís- lands. Leggst því enginn milli- liðakostnaður á bílana. í Brussel er birgðastöð vara- hluta fyrir Evrópu og koma varahlutir þaðan til íslands. Stutt er síðan Mazda bílarn- ir voru fyrst fluttir hingað og hafa þeir unnið miklar vin- sældir á skömmum tíma. Þau atriði, sem þar vega þyngst, eru lágt innkaupsverð miðað við gæði, sem stafar af inn- flutningsmátum. Mazda bílarn- ir eru sparneytnir og þá sér- staklega miðað við afl og stærð. Viðgerðaþjónustan er nú komin í mjög gott lag. Varahlutir eru á hagstæðu verði, enda er það stefna fyrir- tækisins að stilla verði þeirra í hóf. Þá hafa Mazda bílarnir þegar sýnt að þeir henta vel við íslenskar aðstæður og til þessara atriða má svo rekja hið háa endursöluverð Mazda Lm 300 MAZDA bílar fluttir inn ■ ár bílanna. Sem dæmi um vin- sældir þeirra má nefna að fjöl- margir af fyrstu Mazda kaup- endunum hérlendis hafa endur- nýjað bila sína í nýjum Mazda bílum. Mazda bílarnir eru fáanlegir í fjórum stærðum og 11 gerð- um. Litaval er fjölbreytt og hægt er að velja á milli tveggja dy.ra, fjögurra dyra, station og cupé gerða. Allar nánari tækniupplýsingar veita sölumenn hjá Bílaborg hf. að Borgartúni 29 og þar er jafnan unnt að fá notaða Mazda bíla sem fyrr segir. Hér er hluti starfsfólksins í nýja sýningarskálan'um að Borgartúni 29, en þar er einnig lagcr og verkstæði. Bíllinn á myndinni er Mazda 929, en hann er nú hvað vinsælastur Mazda bílanna hér og er rúmgcður fimm manna bíll. 84 FV 10 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.