Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 85
Glóbus hf,
CITROEIM CX - aftur bíll ársins
Citroen CX er arftaki hins vinsæla Citroen DS, sem var nánast tækniundur í bílaiðnaðinum
þegar hann kom fram fyrir 20 árum. CX bíllinn virðist ekki síður vera tækniundur í bíla-
iðnaðinum í dag og getur hann því þessvegna átt eins bjarta framtíð og DS bíllinn. Fyrirtækið
Globus hf. Lágmúla 5 er umboðsaðili fyrir Citroen bérlendis. Strax og CX bíllinn kom fram
í fyrra kaus fjöldi reynsluökumanna bílatímarita hann umsvifalaust bíl ársins ’74 til ’75 og
margir bafa nú endurkosið hann. I stuttu máli hefur bílnum hvarvetna verið tekið með kost-
um og kynjum og verða hér rakin nokkur atriði sem útskýra af hverju.
Bíllinn er fallega straum-
línulagaður og að auki rétt,
þannig að loftmótstaða er í
lágmarki. Það þýðir aukna nýt-
ingu véla.rorku og minni ben-
síneyðslu. Fjöðrun er eins og
í DS gerðinni, vökva- og loft-
fjöðrun og hæð stillanleg.
Bremsukerfið er líklega það
fullkomnasta í heiminum í
dag, tvöfalt, afldrifið og diskar
á öllum hjólum. Þrýstingur á
hemlakerfinu eykst við aukna
ihleðslu. Rolls Royce verk-
smiðjurnar hafa nú fengið Jeyfi
til að nota þessi kerfi í sína
bíla. Mjög fullkominn stýris-
útbúnaður er í bílnum og virk-
ar þannig að þrýstingur minnk-
ar eftir því sem hraðinn vex,
sem gerir bílinn öruggari í
stýri á miklum hraða. Há-
markshraði er 170 km/klst og
bensíneyðsla 10,2 lítrar á 100
km. Yfirbyggingin er byggð á
sjálfstæða grind. Bíllinn er
fjögurra dyra og fimm manna.
Drif er á framhjólum og er
vél frammí. Skipting er í gólfi
og er gírkassinn fjögurra gíra,
al samhæfður. Kaupendur geta
fengið svonefndan converter í
bílinn og þarf þá ekki að nota
kúplingu þegar skipt er um
gír. Hægt er að fá þílinn í
fimm útgáfum: CX 2000, Sup-
er, Pallas, Super 2200 og Pall-
as 2200. Pallas er lúxusútgáfan
með íburðarmiklum innrétting-
um o. fl.
Einnig er nú unnt að fá bíl-
inn með dieselvél. Fjölbreyti-
leiki litaúrvals eykst einnig
með ’76 árgerðinni.
GS 1220 Club, er annar Cit-
roen bíll, sem Clóbus hf. flyt-
ur inn. Er hægt að fá hann í
þrem útgáfum: GS-X og GS-
X2, sem er Rallyútgáfa, og GS
Pallas, sem er lúxusútgáfan af
GS bílunum. GS 1220 Club
hefur verið vinsælastur hér
síðan 1973.
Nánari upplýsingar um
tæknihliðar veita sölumenn
Glóbus hf., Lágmúla 5.
Erlendir bílasérfræðingar féllu í stafi fyrir Citroen CX, er hann kom fram í fyrra og kusu hann
umsvifalaust bíl ársins. Flestir hafa nú endurkosið liann til ársins ’75—’7fi.
FV 10 1975
85