Frjáls verslun - 01.10.1975, Side 87
Ingvar Helgason
Tvær nýjar gerðir DATSUIMbíla
að koma á markaðinn hér
Ingvar Helgason, Vonarlandi,Sogavegi 6, er umboðsaðili fyrir
japönsku bílana Datsun hérlendis. Tvær nýjar gerðir Datsun
bíla eru nú væntanlegar á markaðinn hér upp úr áramótunum
til leiguaksturs, bæði með dísel-vél og 4ra strokka sparneyt-
inni benzínvél. Nýi bíllinn er ekki einungis frábrugðinn eldri
Datsun leigubilum hvað útlit snertir, lieldur er hann búinn t. d.
með vökvastýri og diskahemlum.
Hin gerðin er Datsun S120-A,
sem á að leysa 100-A gerðirnar
af hólmi með vorinu, en 100-A
hefur verið í framieiðslu í
fimm ár. 120-A er fremur iítill
bíii, framhjóiadrifinn og þykir
hafa frábæra akstureiginleika.
Hann stenst ströngustu örygg-
iskröfur á Bandaríkja- og Sví-
þjóðarmörkuðum, en að sögn
umboðsaðila leggja margir ísl.
kaupendur því miður litið sem
ekkert upp úr örygginu, held-
ur hugsa þeir aðeins um hvar
þeir fá stærstu bíiana fyrir
peningana. Einnig eru örygg-
isreglur og eftirlit með öryggis-
búnaði á íslandsmarkaði í lág-
marki miðað við önnur vestræn
lönd. 120-A er spáð miklum
vinsældum t. d. í Svíþjóð og i
Bandaríkjunum.
YFIR 30 GERÐIR FRAM-
LEIDDAR
Annars framleiða Datsun
verksmiðjurnar um 30 gerðir
bíla og hafa 17 þeirra verið
fluttar hér inn. Eins árs á-
byrgð, eða í 20 þúsund km er
á bílnum, og kemur bílaverk-
fræðingur hér tvísvar á ári til
að kynna nýjungar, kanna
hugsanlega galla í bílum hér
og leysa ágreining þar að lút-
andi.
TRABANTINN ER
ÓDÝRASTI BÍLLINN HÉR
Ingvar Helgason hefur einn-
ig um árabil flutt inn Trabant
frá A.-Þýskalandi, en vegna
anna hjá verksmiðjunum eru
þeir skammtaðir hingar og er
skammturinn í ár uppseldur.
Trabant er vel öryggisbúinn,
með brotstýri, stálgrind í húsi
o. fl. Hann verður ódýrasti bíll-
inn á markaðnum hér á næsta
ári en í ár kostaði hann innan
við 500 þúsund.
40 MILLJÓNA VARAHLUTA-
LAGER DATSUN í TOLL-
VÖRUGEYMSLU
Varahlutaþjónusta Datsun er
með nokkuð sérstökum hætti
þar sem verksmiðjurnar eiga
nú um 40 milljóna króna lag-
er í tollvörugeymslu hér og
eru hlutirnir leystir út eftir
hendinni. Tölva reiknar út
hvaða varahlutir þurfa að
vera fyrirliggjandi miðað við
fjölda bíla og aðsetur hér. Er
þetta einstæð þjónusta hjá
bílaumboði hérlendis. Trabant
verksmiðjurnar eiga einnig
varahluti í tollvörugeymslu
hér.
TVÖ ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
SKAPA VAL VIÐSKIPTA-
VINA
Tvö verkstæði sjá um við-
hald á Datsun og Trabant og
eru þau undir eftirliti erlendra
sérfræðinga. Nánari upplýsing-
ar veita Ingvar Helgason og
sölumenn hans að Sogvegi 6.
Trabant bílarnir eru skammt-
aðir á Islandsmarkað og seljast
alltaf upp.
Nýi Datsun leigubíllinn er að mörgu leyti mun fullkomnari en
eldri gerðir og útlitið er einnig fallegra.
FV 10 1975
87