Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1975, Side 98

Frjáls verslun - 01.10.1975, Side 98
It fl Frá iritstjárn Sparnaður hjá ríkinu Þcss er licðið með nokkurri eftirvæntingu, Jivernig þingmenn þjóðarinnar ætla að haga lokaafgreiðslu fjárlaga fyrii' næsta ár, hvort þeir lialdi hækkunum á opinberum útgjöld- um innan þrengstu marka eins og fjármála- ráðlierra hefur gert tillögu um, eða hvort landsJiomasjónarmiðin verði heildarliags- munum þjóðarinnar allrar yfirsterkari í vit- und liinna kjörnu fulltrúa, þegar þeir mætu menn þurfa að taka alstöðu. Vonandi fer fjárlagafrumvarpið ekki úr böndunum á síð- ustu afgreiðsludögum í þinginu eins og svo ol t áður, þegar hentistefna einstakra þing- manna og hreppapólitík hafa stórspillt þeirri stefnumörkun, sem í frumvarpinu liefur fal- izt. Það fjárlagafrumvarp, sem nú liggur frammi, er tímamótafrumvarp að því leyti til, að í fyrsta skipti um langt árabil cr nú gerð heiðarleg tilraun til að spyrna við íot- um í ringulreið verðljólgunnar og jafnframt gelin fyrirheit um að komast fyrir ýmsar meinsemdir í fjármálum ríkisins. Svo sam- gróin eru þó þessi kaun hinum lieilbrigðari vefjum i uppbyggingu hins opinbera fjár- málakerfis, að óábyrgir forsprakkar kröfu- gerðarhópanna relca u])p stríðsöskur, þcgar við þau er liomið eins og t. d. reyndin hefur orðið í sambandi við lánakjör námsmanna. En ríkisstjórnin virðist ekki ætla að láta brambolt stúdenta liindra sig í að breyta lánareglum. Hún ætlar líka að taka lnð al- menna tryggingakerfi og lieilbrigðisþjónustu lil endurskoðunar með það fyrir augum að koma á ineiri ráðdeild og sparnaði. Því mið- ur er á þessu stigi ekld nægilega Ijóst, Jivaða þælti almannatrygginga á að sltoða sérstak- lega og hætt er við að meiriháttar tillögur um breytingar verði ekld jafnáhrifaríkar og lil er ætlazt, ef þeim verður laumað bakdyra- megin inn á Alþingi á síðustu dögum fjár- lagaumræðuimar. Af mörgu er svo sem að taka. Á fjöl- mörgum sviðum er sjálfsagt og eðlilegt að láta einstaklingana, sem þjónustunnar njóta, taka meiri ])átt í kostnaði við hana lieldur en nú er gert. Otvíkkun á heilbrigðisþjónustu ríkisins lielur fremur verið stunduð af kappi en forsjá og hún liefur lmðið heim bruðli með ljármuni almennings og misnotkun. Hvað t. d. um ókeyj)is tannlæknaþjónustu fyrir unglinga, sem kemur fram í því, að tanngarðarnir í sumum einstaldingum, scm þjónustunnar njóta, eru eins og gullnámur? Sú þjónusta er ókeypis. Ekki er sagt orð, þó að reikningar fyrir liana Iiljóði upp á litlar tvö lmndruð þúsund krónur í einu til- felli. Enginn spyr, live rik þörf hafi vcrið fyr- ir allar gullfyllingamar. Lítið dæmi, en nokk- uð skýrt, um þá hættu, sem er á fcrðum. Nú cr kominn tími til að menn spyrji og hafi strangar gætur á ráðstöfun þessara sam- eiginlegu fjármuna okkar. Fjármálaráðlierrann nýtur áreiðanlega fyllsta stuðnings meirihluta landsmanna i áformum sínum um að koma á bættum vinnubrögðum að þessu leyti. Hann má líka gjarnan bcita ríku aðhaldi í samskiptum við embættismenn hjá stofnunum ríkisins og fyrirtækjum þess. S11kkið og óráðsían hjá sumum þeirra liefur verið opinberlega stað- fest í skýrslum sérfræðinga, sem skipaðir hafa verið til að athuga rekstur þeirra. En svo virðist sem allar hagræðingartillögnrnar lendi niðri í skúffu hjá forstjórunum eða kannski í hréfakörfunni. Lítt bólar á að- gerðum i samræmi við niðurstöður þessara athugana. Fjármálaráðuneytið þarf að fylgja þeim fast eftir og ráðherra ])ess að hafa for- göngu um að svo sé gert. 98 FV 10 1975

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.