Frjáls verslun - 01.04.1976, Blaðsíða 9
Hans G. Andersen,
sendihcrra, mun hafa far-
ið á laun til Oslóar á dög-
unum til viðræðna við
norska ráðamenn um
landhelgismálið. Hans
hefur undanfarið sctið
hafrdttarráðstefnuna í
New York. Norðmenn
vinna markvisst á bak við
tjöldin að lausn deilunn-
ar og vakti leyniferðin því
athygli víða, en þó mest í
London.
Utanríkisráðuneytið hef
ur látið í Ijós óánægju
með það hve iðinn Stein-
grímur Hermannsson er
við að úthlutarússneskum
„visindamönnum“ vega-
bréfsáritun til íslands, en
Rannsóknarráð ríkisins
getur gert slíkt án vitund-
ar ráðuneytisins. Síðasta
afrek Steingríms er að
samþykkja að 40 „vís-
indamenn“ komi í sumar
með 8 tonn af sprengiefni.
Ekki eru til geymslur fyr-
ir allt dínamítið, sem nota
á í „vísindalegum til-
gangi“, en ef til vill ætla
vinir Ráðstjórnarríkjanna
að geyma eitthvað af
því? Meðan Einar
Ágústsson er illur út í
Steingrím, hefur sá síðar-
nefndi gagnrýnt Jón
Skaftason, þingmann, á
lokuðum flokksfundi fyr-
ir að skrifa eftirtektar-
verða grein í Ingólf, blað
framsóknarmanna á
Reykjanesi, 8. apríl s.l.
Greinin er heiðarlegt upp-
gjör á stjórnmálaástand-
inu, Jón er nú eitt helsta
leiðtogaefni flokksins, en
Steingrímur þolir það
ekki, enda ætlar hann sér
að leysa Ólaf formann af
hólmi.
Senn líður að því að hið
nýja og saklausa banka-
ráð Alþýðubankans verð-
ur að ráða bankastjóra.
Fáir vilja sækja um
bankastjórastólana tvo,
en á aðalfundi bankans
var Björn Jónsson, for-
seti ASÍ, eina banka-
stjóraefnið sem nefnt var
á nafn.
— • —
Kjartan Ólafsson, rit-
stjóri Þjóðviljans, er sagð-
ur álita að bann eigi að
taka við þingsæti Magn-
úsar Kjartanssonar í
næstu kosningum og um
leið flokksforystunni.
Ýmsir bandalagsmenn
segja að flokkurinn klofni
enn einu sinni, ef svo
harður „Moskvukommi“
komist í þá valdaaðstöðu.
Svavar Gestsson, ritstjóri
sama blaðs, hefur hingað
til haft augastað á fram-
boði í höfuðborginni, en
verður að leita eftir fram-
boði úti á landi og eru
Austfirðir númer tvö á
óskalista hans.
— • —
Það virðast lítil takmörk
fyrir því hve miklar
hækkanir ríkisreknu fyr-
irtækin fá hjá stjórnvöld-
'um til að lagfæra rekst-
urinn hjá sér. Sements-
verksmiðjan er nýbúin að
fá hækkunarheimild frá
Iðnaðarráðuneytinu upp á
38%, þ.e.a.s. að frá því í
byrjun árs 1974 hefur
tonnið af sementi hækkað
úr liðlega 5 þús. kr. í tæp-
lega 16.600 kr. nú, eða um
rúmlega 400%. Þeir sem
til þekkja segja að hækk-
unin nú sé fengin til að
greiða niður á stuttum
tíma sementskvörn sem
keypt var í fyrra og safna
í sjóð fyrir sementsferju,
sem er í smíðum.
Eftir því er tekið, hve
margir af fréttamönnum
sjónvarpsins hafa sagt
upp starfi sínu eða eru á
förum nú. Þykir þetta
býsna merkilegt, þar sem
fyrirfram gætu menn
haldið að um eftirsóknar-
verð störf væri að ræða.
Vonandi reynir útvarps-
ráð að komast að hinu
sanna um hvað þessum
flótta valdi og gera við-
eigandi ráðstafanir. Ólaf-
ur Ragnarsson hætti ný-
lega á fréttastofu sjón-
varps. Svala Thorlacius
hefur sagt upp og ætlar
að hefja lögfræðistörf.
Sonja Diego bíður eftir
atvinnutækifæri annars
staðar og Jón Hákon
Magnússon mun væntan-
lega hefja störf hjá fjöl-
þjóðastofnun í Vestur-
Evrópu fljótlega.
— • —
Guðni í Soinnu heldur
sínu striki þrátt fyrir
erfiðleikana í vetur vegna
Air Viking. Hann liefur
að undanförnu unnið að
undirbúningi ferðaáætl-
unar Sunnu til suður-
Ianda, sem ekki hefur
gengið fyrirhafnarlaust.
Þegar Guðni var þar syðra
fyrir nokkru kom í ljós,
að allar hótelpantanir
Sunnu höfðu verið strik-
aðar út og reyndar færð-
ar á nafn Samvinnuferða.
Skýringin var sú, að
fyrrverandi starfsmaður
Guðna, sem nú vinnur
fyrir Samvinnuferðir,
hafði orðið á undan sín-
um fyrrverandi húsbónda
þangað suður og látið
hagræða málum á þenn-
an veg. En Sunna er ekki
dauð úr öllum æðum enn
og ætlar að stunda blóm-
legan túrisma í sumar eins
og áður.
FV 4 1976
9