Frjáls verslun - 01.04.1976, Blaðsíða 63
Fyrirtækið Islandia í IHálmey:
Hycjgst stofnsetja 18
keðjuverzlanir fyrir
íslenzkar vörur
Rætt við Svölu og Hilmar Sigurðsson
íslenzk hjón í Málmey, þau Svala og Hilmar Sigurðsson, eru að
athuga möguleika á að mynda keðju 18 verzlana víðsvegar um
Svíþjóð, sem sérhæfðu sig í sölu á íslenzkum framleiðsluvörum,
einkanlega ullar- og prjónavöru. Þau hjónin hafa þegar öðlazt
verulega reynslu á þessu sviði því að þau reka nú verzlun með
íslenzkar vörur í stóru vöruhúsi í miðborg Málmeyjar en verzlun
sína ncfna þau Islandia.
Stokkhólmi, sem nefnd var
Islandia. Olof Isaksson hafði
forgöngu um að sýning þessi
var haldin en naut aðstoðar
ýmissa annarra fagmanna, bæði
sænskra og íslenzkra. Tilgang-
urinn með sýningunni og smá-
ritum, sem gefin voru út í til-
efni af henni, var áð glæða á-
huga Norðurlandabúa á íslandi.
Með texta og myndum var sam-
spilið milli fortíðar og nútíðar,
mannsins og náttúrunnar túlk-
að. Það voru aðallega sænska
þjóðminjasafnið og norræni
menningarmálasjóðurinn, sem
lögðu fram fjármuni til þessa
sýningarhalds. Á sýninguna í
Stokkhólmi, sem stóð frá 14.
september til 7. nóvember
komu 15 þús. manns en síðan
var sýningin haldin í Gauta-
borg, nokkrum borgum Finn-
lands, í Danmörku, Noregi og
Færeyjum og loks í Norræna
húsinu í Reykjavík. Alls munu
rúmlega 70 þús. manns hafa
skoðað sýninguna.
# Vaxandi áhugi
Olov Isakssom sagði, að áhugi
á málefnum fslands hefði vaxið
mikið undanfarin ár og eru fé-
lagar í félaginu Svíþjóð-Ísland
nú um 300. Annað slagið koma
fyrirlesarar frá íslandi og hald-
in eru myndasýningakvöld. Þá
efnir félagið líka til fslands-
ferða, og er nú í uppsiglingu
ferð 30 mannia hóps til íslands,
Færeyja og Grænlands.
Þess má geta, að Olov Isaks-
son kom fyrst til íslands árið
1967 og vann þá að fomleifa-
uppgreftri hér með Kristjáni
Eldjárn, þáverandi þjóðminja-
verði. Sem forstöðumaður þjóð-
minjasafnsins sænska hefur
Olov átt hlut að uppgreftrin-
um í miðborg Reykjavíkur, sem
staðið hefur yfir nokkur undan-
farin ár. Stofnun hans hefur
unnið að þessari leit að bæ
Ingólfs í samvinnu við Reykja-
víkurborg en árið 1979 er á-
formað að efna til mikillar sýn-
ingar á niðurstöðum rannsókn-
anna í Reykjavík og ennfremur
svipaðra vísindarannsókna, sem
fram hafa farið í Grænlandi og
á Nýfundnalandi.
Þau Svala og Hilmar sögðu
að til athugunar væri að koma
upp þessum keðjuverzlunum,
sem síðar yrðu seldar væntan-
legum rekstraraðilum, en þeir
myndu samkvæmt samningi
eiga viðskipti við heildverzlun
þeirra hjónanna, sem flytur inn
vörur frá Sambandinu og fleiri
íslenzkum fyrirtækjum.
í NÝRRI STÓRVERZLUN
Hilmar Sigm’ðsson hefur í
allmörg ár rekið heildsölufyrir-
tæki í Málmey, er verzlar með
fjarskiptatæki. Hann sagði að
innflutningurinn frá Islandi
hefði byrjað eins og hvert ann-
að tómstundagaman fyrir 7-3
árum, en þá ráku þau hjónin
sumarverzlun fyrir túrista í
Svala Sigiurðsson í sýningardeild verzlunar sinnar og Sambands-
ins á Scandinavian Fashion Week í Kaupmannaliöfn nýlega.
FV 4 1976
59