Frjáls verslun - 01.04.1976, Blaðsíða 89
fylgt nokkuð vel eftir með gerð
gangstétta.
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
Alfreð sagði, að nýbúið væri
að úthluta 80 einbýlishúsalóð-
um í nýju ibúðarhverfi og er
byrjað á um 90% þeirra. íbúð-
arskortur er samnefnari allra
sveitarfélaga og hefur verið
stöðnun í byggingum þar til
fyrir 3 árum að skriður komst
á. Hreppsnefndin hefur ekki
viljað taka upp gatnagerðar-
gjöld og er það því aukin byrði
fyrir sveitarfélagið, en árangur
er að koma í Ijós, þar sem að-
komufólk er að byrja að byggja
hérna vegna þess.
Einnig nýtur sveitarfélagið
ekki góðs af þeirri miklu at-
vinnu hér í Sandgerði, því hér
hafa svo margir atvinnu sem
ekki eru búsettir hér. En það er
greinilegt að fólk sér að það er
orðið arðbærara að fjárfesta
hér í íbúðarbyggingum, með til-
komu bættrar aðstöðu við höfn-
ina og eins gatnagerðarinnar.
Þá spilar vegurinn milli Kefla-
víkur og Sandgerðis líka inn í
eftir að hann var malbikaður.
FYRIRMYNDAR SLÖKKVI-
LIÐ
Við höfum hér í Sandgerði
fyrirmyndar slökkvilið sem við
erum stoltir af enda stjórnað af
einum af undirforingjum „Patt-
ons“. Við erum að byggja
slökkvi- og björgunarstöð, sem
fyrirhugað er að taka í notkun
seinna á þessu ári. Þetta er
mikið hús um 2000 m3 (björg-
unarstöðin 1430 m3) og er búið
að vera 3 ár í smíðum. Kostnað-
ur er áætlaður 9,7 millj. tilbúið
undir tréverk, en ætti að vera
um 18 millj. samkvæmt bygg-
ingarvisitölu. Ástæðan fyrir
þessum mismun er sú að
slökkviliðið og Slysavarnarfé-
lagið Sigurvon hafa byggt húsið
í sjálfboðaliðsvinnu.
Einnig erum við búnir að
vera með í undirbúningi í-
þróttahúss, en teikningarnar
voru tilbúnar 1972. Nú eru út-
boðsgögn tilbúin en þá vantar
heimild frá ríkinu til að hefja
framkvæmdir. Nú fer öll leik-
fimikennsla skólanna fram í
samkomuhúsi staðarins, en við
lögðum það niður sem slíkt.
Það er alls kostar ófullnægj-
andi, því þar verðum við að
hafa alla félagsstarfsemi einnig
til húsa, sagði Alfreð að lokum.
FV 4 1976
85