Frjáls verslun - 01.04.1976, Síða 77
skuttogara. Hér veigra menn
sér við að fara út í léttan iðnað
vegna samkeppninnar við f'lug-
völlinn í kaupi og fríðindum.
Ég vil sérstaklega undirstrika
fríðindin, sem menn af stór-
Reykjavíkursvæðinu hafa. Þau
eru eins og verðlaun fyrir að
búa ekki, hér suður frá.
— Að öðru leyti held ég, að
þróunin í verzlun og viðskipt-
um sé með eðlilegum 'hætti.
Verzlunarfyrirtæki hér sýna að
við höldum í horfinu við harða
samkeppni við Reykjavík. Hér
hafa risið upp stórmarkaðir í
matvöru og nú er verið að taka
í notkun tollvörugeymslu, sem
stóreykur hagræðið hér á Suð-
urnesjunum.
Að síðustu sagði Hákon, að
þeir hefðu sama vanda sem og
aðrir við að stríða í rekstri fyr-
irtækja í sambandi við þungar
álögur þess opinbera, stóraukin
tilkostnað og ekki hvað sízt hin
úreltu verðlagsákvæði.
Bæjarmál:
Lokið við lagningu hita-
veitu fyrir árslok 1978
Rætt við Jóhann Einvarðsson bæjarstjóra
Nú hefur þegar verið boðið
út efni í dreifikerfi í hitaveitu
fyrir 1. áfanga í Keflavík og
Njarðvíkur mun verkútboð
fara fram á næstu vikum. Á-
ætlað er að vatni verði hleypt
á fyrir mitt ár ’77 og ljúka
lagningu hitaveitu fyrir öll
byggðarlögin fyrir árslok ’78,
en sem k'unnugt er standa
yfir framkvæmdir á lagningu
hitaveitu fyrir Suð'urnesin öll á
vegum sveitarfélaganna og rík-
isins.
Jóhann Einvarðsson, sem er
fæddur og uppalinn Reykjavík-
ingur, hefur verið bæjarstjóri í
Keflavík frá því árið 1970, en
áður gegndi hann því starfi á
ísafirði á árunum 1966-—’70. í
samtali við Frjálsa verslun
greinir hann frá helstu fram-
kvæmdum og atvinnulífi í bæn-
um, en Keflavík er nú ört vax-
andi byggð í miklum blóma.
Samkvæmt bráðabirgðatöl-
um Hagstofu íslands 1. desem-
ber 1975 bjuggu 6169 íbúar í
bænum, en árið 1974 voru þeir
6097 og ’73 5978. Sýnir það, að
íbúatalan eýkst milli 1 og 2%
á ári.
BYGGING ÍÞRÓTTAHÚSS
OG SKÓLA
Nú er verið að ljúka við
byggingu nýs áfanga við Gagn-
fræðaskólann og er áætlað að
taka nýju viðbótarbygginguna
í notkun í haust. í þessum á-
fanga verða 7 almennar
kennslustofur, sérstofa fyrir
söng- og tónlistarnám, stofa fyr-
ir teiknikennslu og handavinnu
drengja og aðstaða fyrir lækni
og heilsugæslu. Alls eru um 600
nemendur í skólanum.
Að þessum framkvæmdum
loknum er fyrirhugað að hefja
byggingu íþróttahúss og barna-
Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóri í Keflavík.
skóla. Bæði verkefnin eru mjög
brýn*. Ekki hefur verið unnt að
fullnægja námsskyldu í íþrótt-
um og þrengsli eru orðin mjög
mikil í barnaskólanum, þar sem
eru um 1000 nemendur. Áætlað
er að reisa nýja barnaskólann í
vesturbænum, þar sem fjar-
lægðir eru orðnar svo miklar.
Einnig er í bígerð að koma á
fót fjölbrautarskóla í Keflavík
með hinum sveitarfélögunum á
Suðurnesjum. Búist er við að
starfsemi skólans geti hafist í
haust.
VIÐBYGGING VIÐ SJÚKRA-
HÚSIÐ
Um næstu áramót verður
fokheld viðbygging við sjúkra-
húsið í Keflavík, sem er sam-
eiginlegt framtak sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum. 28 sjúkra-
rúm eru á sjúkrahúsinu í Kefla-
vík og bætast nú 15 við. Sjúkra-
rýmið er alltaf yfirfullt og bæt-
ir nýja viðbyggingin úr mjög
brýnni þörf. Einnig verður í
viðbyggingunni stórbætt að-
staða starfsfólks, stórt eldhús
og ný fæðingar- og kvensjúk-
dómadeild.
Þegar er komið varanlegt
slitlag á 30—40% gatnakerfis-
ins í bænum, en nýjar fram-
kvæmdir verða látnar bíða
fram yfir hitaveituframkvæmd-
irnar.
MIKIÐ BYGGT AF EIN-
BÝLISHÚ SUM
Á síðasta ári voru í smíðum
109 hús með 153 íbúðum, sam-
tals 62.954 m3. Mest var um
byggingu einbýlishúsa eða 98.
Á síðasta ári var lokið við smíði
53 húsa með 74 íbúðum. Þá
FV 4 1976
73