Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 7
i stuKtu mali
# Sýningar í Frakklandi
í samráði við franska verzlunarfull-
trúann hér á landi, Daniel Paret, og
sendiráð íslands í París hefur veriö
unnið að athugun á heppilegum vöru-
sýningum fyrir íslensk fyrirtæki í
Frakklandi.
Einkum hefur athyglin beinst að
mögulegri þátttöku í kvenfatasýning-
unni Pret á Porter Feminin, sem hald-
in er í París vor og haust og prjóna-
vörusýningunni Salon de Maille í Par-
ís. Þess má geta að nú nýveriö hafa
þau Pálína Jónmundsdóttir frá Ála-
fossi og Hans Kr. Árnason frá Sam-
bandinu, iðnaðardeild, ásamt fulltrúa
frá sendiráðinu í París veriö á kven-
fatasýningunni til að líta á vörufram-
boð með það fyrir augum að vera með
á þessari sýningu næsta vor.
# Verzlunarumsvif opinberra
starfsmanna
íframhaldi af umræðum á aöalfundi
F.Í.S. 1976, um verzlunarumsvif opin-
berra starfsmanna, hefur stjórn félags-
ins faliö skrifstofu þess að leita eftir
því við félagsmenn að þeir veiti skrif-
stofunni þær upplýsingar sem þeir
hafa um opinbera starfsmenn sem
stundi eða hafi veruleg og óeölileg af-
skipti af verzlunarekstri í eigin þágu.
Áætlað er að skrifstofan kanni síðan
hvert einstaka tilfelli.
# Eldri bílar
Fyrirhugaö var að þeir bílar sem
væru liggjandi frá árinu 1974 færu á
uppboð í febrúar sl. en það varð niður-
staða málsins að þessir bílar voru allir
tollafgreiddir gegn greiðslufresti á að-
flutningsgjöldum þannig að aðflutn-
ingsgjöldin voru greidd með 5 jöfnum
afborgunum mánaðarlega, bannig aö
ekki kom til uppboðs á þessum bílum.
Hér var um að ræöa rúmlega 100 bíla í
eigu fjögurra innflytjenda.
*
# Afrýjunarnefnd
Áfrýjunarnefnd Bílgreinasambands-
ins og F.I.B. tók til starfa um miðjan
febrúar sl. Á þeim tíma sem liðinn er
hefur starfsmaður fengið allmörg mál
til meöferðar eða um 30 mál, sem skráð
hafa veriö hjá honum, og eru um 20
þeirra þegar leyst, auk þess sem sátta-
maður, Pétur Maack Þorsteinsson, hef-
ur fjallaö um ýmis smá mál, sem greiö-
lega hefur leystst úr.
Af þeim málum sem óleyst eru er eitt
mál sem nú þegar bíður dóms nefndar-
innar sjálfrar.
# Ræðismann vantar
Ambassador ríkis í Suöur-Ameríku
hefur látið í ljós þá ósk við Verzlunar-
ráð íslands að það bendi á heppilegan
mann til þess að vera ólaunaður ræöis-
maður fyrir land sitt með búsetu í
Reykjavík.
Þeir félagsmenn V.Í., sem áhuga
hafa á nánari upplýsingum, eiga að
hafa samband við framkvæmdastjór-
ann á skrifstofu ráösins.
# Breytingar á tollskrá
Um næstkomandi áramót mun taka
gildi nv tollskrá vegna samninga ís-
lands við EFTA og EBE. Mun þessi toll-
skrá að öllum líkindum gilda næstu
þrjú árin eða fram til 1980. Auk samn-
ingsbundinna tollalækkana, sem eiga
að koma til framkvæmda, stendur
einnig til að gera þær lagfæringar á
núverandi tollskrá, sem þurfa þykir.
Verzlunarráð íslands hefur farið
þess á leit við félagsmenn sína, að þeir
sendi skrifstofu ráðsins athugasemdir
um æskilegar breytingar á núverandi
tollskrá.
FV 5 1976
7