Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1976, Síða 13

Frjáls verslun - 01.05.1976, Síða 13
em greiðslur afborgana og vaxta bundnar vísitölu bygg- ingarkostnaðar. REKSTUR BYGGÐASJÓÐS í málefnasamningi núverandi ríkisstjórnar er ráð fyrir því gert, að framlag ríkissjóðs til Byggðasjóðs nemi 2% af út- gjaldatölu fjárlagafrumvarps hvers árs, en þetta þýðir í reynd stórum aukið starfsfé til handa sjóðnum. í samræmi við þetta samkomulag var framlag ríkis- sjóðs til Byggðasjóðs ákveðið 860 millj. kr. í fjárlögum ársins 1975. Er þetta mikil hækkun framlags miðað við það, sem lögin um Byggðasjóð ákveða sjóðnum, en árið 1974 nam framlag ríkissjóðs til Byggða- sjóðs 297 millj. kr. Á árinu 1975 voru samþykkt ný lán og styrkir úr Byggða- sjóði að fjárhæð 1.603,2 millj. kr. Eru þá meðtalin 10% við- bótarlán til innlendrar skipa- smíði að fjárhæð 366 millj. kr., en Byggðasjóður hefur annast þau lán fyrir hönd ríkisstjórn- arinnar, og til þeirra hefur ver- ið aflað sérstaks fjár. BÆTTU LAUSAFJÁRSTÖÐU FYRIRTÆKJA f SJÁVAR- ÚTVEGI Á árinu 1975 óskaði ríkis- stjórnin eftir því, að Byggða- sjóður hefði meðalgöngu um veitingu lána til fyrirtækja í sjávarútvegi til að bæta lausa- fjárstöðu þeirra í samræmi við lög nr. 55 frá 27. maí 1975. Var hér um að ræða fyrirtæki, sem ekki höfðu möguleika til að fá svo nefnd skuldbreytingalán samkvæmt hinum almennu reglum. Byggðasjóður tók í þessu skyni 300 millj. kr. lán úr Gengishagnaðarsjóði 1975 og lánaði fé þetta til fyrirtækja og einstaklinga í sjávarúvegi í samráði við viðskiptabankana, og var féð greitt bönkunum til lokaráðstöfunar. Ógreidd lánsloforð Byggða- sjóðs í árslok 1975 námu 693 millj. kr., en í árslok 1974 námu þau 219 millj. kr. Útborgað lánsfé Byggðasjóðs á árinu 1975 nam 1.286 millj. kr. auk fyrrgreindra skuld- breytingalána 294 millj. kr. LÁN TIL ÝMISSA FRAMKVÆMDA Alls voru samþykkt 425 lán og styrkir úr Byggða sjóði á ár- inu 1975. Mjög verulegur hluti þessara lána var vegna nýsmíði, kaupa eða endurbóta á fiski- skipum eða samtals um 680 milljónir. Til fiskvinnslu fóru 187 millj. og til sveitarfélaga 290 milljónir. En lán Byggða- sjóðs voru veitt til ýmissa ann- arra framkvæmda eins og með- fylgjandi sýnishorn bera með sér. Þau eru tekin á víð og dreif úr skýrslu sjóðsins: Akraneskaupstaður: Bráða- birgðalán vegna íþróttahúss 6 millj., Aðalsteinn Árnason, Hálsahreppi: Lán til uppbygg- ingar hænsnabús 1 millj., Kaup- félag Borgfirðinga: Lán til upp- byggingar mjólkurstöðvar og reykhúss 8 millj., Eyjar hf., Hellissandi: Lán til fjárhags- legrar endurskipulagningar 6 millj., Tómas Enok Thomsen, Ólafsvík: Lán til byggingar verkstæðis og vélakaupa fyrir pipulagningarstarfsemi 1 millj., Stykkishólmshreppur: Lán til þess að leggja fram sem eigið fé í hótelfélag í Stykkishólmi 8 millj., Hafnarsjóð'ur Reyk- hólahafnar; Styrkur til hafnar- gerðar við Karlsey, Reykhólum 5 millj., Tálknafjarðarhreppur; Lán til borunar eftir heitu vatni 1 millj., Búnaðarsamb. Vest- fjarða, Mosvallahreppi; Bráða- birgðalán til kaupa á steypu- hrærivél o.fl. 2,2 millj., Átak, stá, ísafirði: Lán til 9 sveitar- félaga á Vestfjörðum til kaupa á færanlegum olíugeymum fyr- ir gatnagerð 6 millj., Illönduós- hreppur: Lán til byggingar iðn- garða 7,5 millj., Loðfeldur hf., Sauðárkróki: Lán til fjárhags- legrar endurskipulagningar 3 millj., Þórður Þórðarson, Siglu- firði: Lán til uppbyggingar framleiðslu úr gervimarmara 2 millj., Prentverk Odds Björnssonar hf., Akureyri: Lán til byggingar prentsmiðjuhúss 12 millj., Bílaleiga Austur- lands hf., Egilsstöðum: Lán til byggingar húss 2 millj., Sam- band sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi, Egilsstöðum: Styrkur til leitar að byggingar- efni i sjó 1 millj., Stangaveiði- félag Reykjavíkur: Lán til laxa- ræktar á Lagarfljótssvæði og í Breiðdalsá 1,5 millj., Tungulax hf., Kirkjubæjarhrepp: Lán til byggingar fiskeldistöðvar að Öxnalæk 5 millj., Leiðvalla- hreppur: Bráðabirgðalán til fyrirhleðslu við Kúðafljót 6 millj., Mosfell sf., Hellu: Lán til byggingar húss fyrir fram- ieiðslu á tjöldum o.fl. 1,6 millj., Stokkseyrarhrepp'ur: Lán til eflingar atvinnu 1975—1977 6 millj., Selfosshreppur; Lán til byggingar veitingaaðstöðu 1975 —1977 9 millj., Reiðskólinn V.- Geldingaholti, Gnúpverjahr.: Lán vegna greiðsluerfiðleika 1 millj., Kjöris hf., Hveragerði: Lán til stækkunar á húsnæði og vélakaupa fyrir ísframleiðslu 1,5 millj. LÁNTÖKUR: Á árinu 1975 tók Byggða- sjóður þrjú lán hjá Fram- kvæmdasjóði alls að fjárhæð 243,8 millj. kr. Fjár þessa var aflað eingöngu til að standa straum af 10% viðbótarlánum til skipasmíða innanlands, en Byggðasjóður hefur haft af- greiðslu þeirra á höndum eins og fyrr greinir. Ennfremur tók Byggðasjóður 300 millj. kr. lán úr Gengishagnaðarsjóði, eins og getið er um hér að framan, til að veita fyrirtækjum í sjávar- útvegi svo nefnd skuldbreyt- ingalán. REIKNINGAR BYGGÐASJÓÐS Á árinu 1975 námu hreinar tekjur Byggðasjóðs 77,6 millj. kr. og framlag ríkissjóðs nam 860 millj. kr. eða alls 937,6 millj. kr. Gengistap á erlendum lánum nam 46,8 millj. kr., sem er einigöngu vegna 10% skipa- smíðalána, veittir styrkir voru 31,7 millj. kr. og afskrifuð lán námu 12,4 millj. kr. Aukning eigin fjár sjóðsins á árinu 1975 varð því 846,7 millj. kr. og nam það í árslok 1.871,4 millj. kr. FV 5 1976 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.