Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1976, Síða 21

Frjáls verslun - 01.05.1976, Síða 21
væri að sinna þeim án þess að það bitnaði á aðalkröfunum. AUKNAR KRÖFUR UM GÆÐI Þegar Sovétrikin fóru að koma vörum sínum á framfæri á heimsmarkaðinum var þjóð- arbúskapur þeirra kominn á allt annað stig. Innanlands- markaðinum hafði þá að mestu leyti verið séð fyrir nægu magni af vörum. Neytandinn er hættur að biðja einfaldlega um vél eða flík, nú biður hann um gæði sem standast kröfur heimsmarkaðsins. Kröfur inn- anlandsmarkaðsins verða æ lík- ari pví sem gerist meðal er- lendra viðskiptaþjóða Sovét- ríkjanna. Auknir möguleikar Sovétríkj- anna á sviði tækni og efnahags- mála hafa einnig í för með sér raunhæfa möguleika á upp- byggingu sérstaks útflutnings- iðnaðar, en þörfin fyrir hann hefur aukist mjög á þessum tímum bættrar sambúðar ríkja með mismunandi stjórnskipu- lag. Þetta var eitt af þeim verk- efnum sem til umræðu voru á 25. þingi kommúnistaflokksins. Erlendir viðskiptavinir sann- færast æ betur um að sovéskur iðnaður getur framleitt og fram- leiðir nú þegar margar tegundir véla og tæknilegra áhalda bet- ur en þeir sem hingað til hafa séð heimsmarkaðinum fyrir þessum vörum. Auk þess eru framleiddar í Sovétríkjunum ýmsar vörur sem ekki eru fram- leiddar annarsstaðar. í sjálfu sér er þetta alveg eðlilegt og getur vart öðruvísi verið á tím- um tæknibyltingarinnar og þeirrar auknu verkaskiptingar sem hún hefur í för með sér. Kapítalísku ríkin skiptast stöð- ugt á sérthæfðri iðnframleiðslu sín á milli og sama máli gegnir um sósíalísku ríkin. En þeir fyrrnefndu ætluðu aldrei að fást til að stíga næsta skref, þ.e. að beina viðskiptum sínum einnig til sósíalísku ríkjanna og þá fyrst og fremst Sovétríkj- anna. En nú er ísinn að bráðna og viðskipti austurs og vesturs færast stöðugt í aukana og ryðja úr vegi ýmsum tilbúnum hindrunum. SKIPULAGNING VIÐSKIPTA Reynslan sýnir að viðskipti sem skipulögð eru til langs tíma fela í sér sérlega mikla mögu- leika. Að sjálfsögðu taka Sovét- ríkin ekki að sér að byggja upp sérstakan útflutningsiðnað fyrir ákveðna viðskiptavini á Vestur- löndum án þess að hafa trygg- ingu fyrir sölu á framleiðslunni til langs tíma. Sömu sögu er að segja um innflutning. Það er ekkert vit í að undirrita samnr ing um innflutning á tækjum án þess að hafa tryggingu fyrir þvi að innflutningnum verði ekki hætt af einhverjum ástæð- um sem koma Sovétríkjunum ekki við. Allt eru þetta einfaldar stað- reyndir og ekki frábrugðnar því sem viðurkennt er í alþjóða- viðskiptum. En til eru þeir aðil- ar á Vesturlöndum, sem krefj- ast þess að eftir þessu sé farið þegar þeir sjálfir eiga í hlut, en telja ekki ástæðu til þess þegar um Sovétríkin er að ræða. HAGNAÐUR AF ALÞJÓÐ- LEGRI VERKASKIPTINGU Sovétríkin hafa aldrei gert ó- réttláta samninga, ek'ki einu sinni þegar þau voru tæknilega langt á eftir helstu kapítalista- ríkjunum og voru aðeins að byrja að standa á eigin fótum efnahagslega. Það væri því fár- ánlegt að ætlast til þess að þau byrjuðu á því núna, þegar þau eru orðin að voldugu iðnríki og hafa forystuhlutverk með hönd- um á ýmsum mikilvægum svið- um iðnaðar, tækni og vísinda. Nú á dögum fyrirfinnst ekki það vandamál, fjárhagslegt eða tæknilegt, sem Sovétríkin geti ekki ráðið framúr, annaðhvort uppá eigin spýtur eða í sam- vinnu við hin sósíalísku löndin. En við viljum ógjarna verða af þeim gagnkvæma hagnaði sem fólginn er í alþjóðlegri verka- skiptingu á breiðari grundvelli, þ.e.a.s. milli ríkja sem búa við ólíkt stjórnskipulag. Sovétríkin bjóða öllum samstarf á grund- velli jafnréttis og gagnkvæms hagnaðar, og velja síðan úr til- boðunum sem þeim berast. Ef bandarískt fyrirtæki er ekki reiðubúið að taka að sér sovéskt verkefni er gerður samningui' við fyrirtæki í V-Evrópu eða Japan. Eins og nú er ástatt í heiminum, er samkeppnin meiri meðal þeirra sem taka að sér verkefni heldur en þeirra sem bjóða þau út. ÁSTÆÐULAUS ÓTTI Uppá síðkastið hefur allmikið verið um það rætt i borgara- pressunni, að Sovétríkin hafi boðið út stór verkefni í Vestui'- löndum og séu nú komin með óhagstæðan viðskiptajöfnuð i mörgum tiIfeUum. Látinn er í ljós ótti um að Sovétríkin reyn- ist ekki fær um að borga lánin þegar þar að kemur. Hinsvegar láta fyrirtækin sem hafa lánað Sovétríkjunum aldrei í ljós slík- an ótta. Stjórnendur þeirra vita mætavel, að þegar um lán er að ræða líður langur tími frá því lánið er veitt og þar til kemur að skuldadögunum. Sovétríkin hafa meðal annars gert samn- inga á grundvelli uppbóta, þ.e. þau hafa fengið lán til að reisa nokkur fyrirtæki með því skil- yrði að láta af hendi hluta fram- leiðslu þeirra þegar þar að kem- ur. Tæki og vélar eru þá skráð kreditmegin í bókhaldinu, en útflutningur framleiðslunnar hefst þegar fyrirtækið byrjar framleiðslu og er gert ráð fyrir því í samningunum. Það er erf- itt að trúa því, að höfundar kenninganna um lánstrausts- leysi Sovétríkjanna skrifi í á- hrifamikil blöð án þess að hafa vitneskju um svo einföld atriði. Um hvað ætla þeir að skrifa þegar málin hafa snúist við og útfjutningur er hafinn á fram- leiðslu þeirra fyrirtækja sem nú er verið að flytja inn tæki og vélar í? Þá er hætt við að við- skiptajöfnuðurinn verði óhag- stæður fyrir einhvern annan en Sovétríkin. FV 5 1976 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.