Frjáls verslun - 01.05.1976, Side 35
Arnarflug hf.:
Vill kynna starfsmannahópum
og félagasamtökum
kosti leiguflugsins
IXfokkrar ódýrar, stuttar utanlandsferðir fyrirhugaðar
í sumar á vegum slíkra aðila
— Við gerum okkur ljóst, að liað verður fyrst og fremst íslenzki markaðurinn, bæði ferðir með fs-
lendinga til útlanda og flutningur erlendra ferðamanna til íslands, sem mun fleyta okkur áfram
fyrst um sinn að minnsta kosti. Eg held að okkar bíði líka það verkefni að gera íslenzkum al-
menningi, starfsmannahópum og félagasamtökum, Ijóst, að það er í sjálfu sér ekkert meira mál í
dag að taka á leigu Boeing-þot'u til utanlandsfer ða en það var að leigja sér rútubíl fyrr á árum.
Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri.
Þetta sagði Magnús Gunnars-
son, framkvæmdastjóri hins ný-
stofnaða Arnarflugs hf., þegar
við litum inn á skrifstofu fé-
lagsins í „Gullauganu“ svo-
nefnda á horni Fellsmúla og
Síðumúla nú fyrir skemmstu.
Magnús er viðskiptafræðingur
að menntun, hefur kynnzt ýms-
um fyrirtækjarekstri á síðustu
árum og kennt í Verzlunarskól-
anum. Hann hefur fengið
nokkra nasasjón af ferða-
mennsku, því að undanfarin
sumur hefur hann verið farar-
stjóri íslendinga suður á Spáni.
Magnús er hins vegar að leggja
inn á nýjar slóðir með starfi
sínu hjá Arnarflugi, því að flug-
félagsrekstur hefur hann ekki
áður stundað og benti með bros
á vör á bókina „Airline Manage-
ment“, sem lá á borðinu hjá
honum, — því til sönnunar, að
nýja starfið gerði kröfur til
meira náms og þekkingarleitar.
RÚTUBÍLL OG BOEING
Við inntum Magnús nánar
eftir því, hver kjör Arnarflug
gæti boðið íslendingum í styttri
hópferðum, þar sem hann hafði
nefnt samanburðinn milli rútu-
bíls og Boeing. Sagðist Magnús
vilja með þessu vekja athygli á
nýjum möguleikum til ferða-
laga á styttri flugleiðum í milli-
landaflugi eins og til dæmis til
írlands eða vesturstrandar Nor-
egs, þar sem flugvélin gæti ef
til vill beðið í tvo eða þrjá daga
eftir hópnum. Núna er hægt að
bjóða flugfar til írlands í leigu-
flugi á 18—20 þús. kr. fram og
til baka ef hvert sæti er skipað
í vélinni.
— Það hafa ýmsir félagahóp-
ar leitað til okkar og spurt um
verð fyrir ferðir af þessu tagi,
m.a. vegna eins dags ferða til
Flugfreyjurnar, sem starfa munu fyrir Arnarflug í sumar hafa
verið á námskeiði að undanförnu.
FV 5 1976
33