Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 41

Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 41
IMáttúruverndarráð Urmið að skipulagi aðgerða í nýjum þjóðgarði í Jökulsárgljúfrum Þörf á að varða gönguleiðir í óbyggðum Um helming af þcirri fjörtíu milljón króna fjárveitingu sem Náttúruverndarráð hefur til ráðstöf- unar á þessu ári verður varið til framkvæmda í þjóðgörðunum í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum með það fyrir augum að bæta aðstöðu fyrir fcrðafólk og stuðla jafnframt að vernd'un umhverfisins á þcssum fjölsóttu stöðum. Árni Reynisson fram- kvæmda- stjóri Náttúru- verndar- ráðs. Reyndar er aðstaðan í Skafta- felli samkvæmt áætlunum ráðs- ins að miklu leyti fullgerð. Þar er sjö hektara svæði ætlað fyr- ir tjaldstæði og á því veitinga- búð og snyrtiskáli ásamt íbúð- um fyrir gæzlufólk. Þetta svæði er opið fyrir ferðafólk á tíma- bilinu frá byrjun júní út sept- ember og er gjald á því svipað og gerist á öðrum skipulögðum tjaldstæðum á landinu. # 20 þús. gistinætur í Skaftafelli í viðtali við Árna Reynisson framkvæmdastjóra Náttúru- verndarráðs kom fram, að í Skaftafelli í Öræfum voru gisti- nætur á tjaldstæðinu hátt í 20 þús. í fyrra en þrátt fyrir auk- inn ferðamannastraum þar eystra, einkanlega eftir opnun hringvegarins, hefði ekki orðið vart við nein teljandi vandamál vegna spillingar landsins eða slæmrar umgengni gesta. Þvert á móti væru þau vandamál minni en almennt hafði verið reiknað með þegar Öræfasveit- in komst þannig í alfaraleið. í Jökulsárgljúfrum, frá Detti- fossi og niður í Ásbyrgi eru aft- ur á móti vandamál á ferðinni, sem úrlausnar bíða hjá Nátt- úruverndarráði. Þar er einnig þjóðgarður en umferð um svæð- ið var þegar orðin mjög mikil, er Náttúruverndarráð tók við umsjón með þvi. Vegur liggur með gljúfrinu vestanverðu framhjá ýmsum sérkennilegum náttúrufyrirbærum eins og Hljóðaklettum, þar sem hafa þarf mikla aðgát ef takast á að vernda þau. Undanfarin tvö sumur hefur ráðið látið fyl-gj- ast með ferðamennsku á þess- urn slóðum og í fyrra komu þangað um 10 þúsund manns yfir sumarið, hafði fjölgað um helming milli ára. Vegurinn, sem farinn er, getur orðið ill- fær í vondum veðrum og út frá honum myndast traðir, sem eru til lýta. Vegagerð er því einn þáttur í verkefninu, sem þarna bíður úrlausnar. Þá hafa nátt- úrufræðingur og arkitekt enm fremur verið að huga að heppi- legu frambúðartjaldstæði, sem hugsanlegt er að myndað verði utarlega í Ásbyrgi. Liggja til- lögur nú fyrir til athugunar í sumar en framkvæmdir geta væntanlega hafizt á næsta ári. Gerð göngubrúar yfir gljúfrið við Vígabjarg er lika til athug- unar en með því myndi opnast hringleið þarna um, milli brúar á þjóðveginum og göngubrúar, með 20 km vegalengd á milli þeirra. # Þjóðgarður undir Jökli? Aðspurður sagði Árni að ekki væri komið að ákvörðunum um fleiri þjóðgarða en því væri ekki að leyna, að svæðið undir Jökli hefði komið til tals í því FV 5 1976 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.