Frjáls verslun - 01.05.1976, Side 44
ísland er eitt auðugasta Iand heims af náttúruauðæfum, fallegu Iandslagi og óspilltu
umhverfi. Búast má við að f jöldi manna noti því sumarleyíi sitt til þess að skoða landið
og aka nýja hringveginn. Þess vegna fer Frjáls verzlun í hringferð um landið með
lesendur sína og fjallar um aðstæður á hótelum utan Reykjavíkur, samkvæmt upp-
lýsingum forstöðumanna þeirra. Upplýsingar hafa þó ekki borizt frá öllum hótelum,
sem samband var haft við.
HÓTEL AKRANESS,
Bárugötu, sími 93-2020.
Gisting: 12 eins, tveggja og þriggja manna her-
bergi eru á hótelinu. Verð á eins manns herbergi
er kr. 2.160, tveggja manna kr. 3060 og þriggja
manna kr. 4.100. Morgunverðurinn. kostar kr. 450
og aðrir réttir eru skv. matseðli.
Hótelstjóri: Níels Jónsson.
HÓTEL EDDA,
Reykholti, Borgarfirði.
Gisting: 64 herbergi eru á hótelinu. Verð á
eins manns herbergi með handlaug er kr. 2.450.
Verð á tveggja manna herbergi með handlaug er
kr. 3.200. Svefnpokapláss á Eddu 'hótelunum er
frá kr. 700-1050 eftir aðstöðu. Morgunverðar-
hlaðborð kostar kr. 550. Opið er frá miðjum júní
til ágústloka.
Hótelstjóri: Vilhjálmur Einarsson.
HÚSAFELL
Gisting: Smáhýsi 2 til 8 manna með rafmagni
og vatni allt árið alls 90 rúm. Opið yfir sumar-
tímann.
HÓTEL BORGARNES,
Borgarnesi, símar 93-7119 og 93-7219.
Gisting: Hótel Borgarnes hefur yfir að ráða 19
herbergjum á hótelinu og 6 herbergjum í bæn-
um. Verð á eins manns herbergi er kr. 2.520,
sumarverð. Verð á tveggja manna herbergi er kr.
3.330 og 3.600, stærra herbergi. Verð á hjónaher-
bergi með baði er kr. 5.220. Aukarúm í herbergi
kostar 950 krónur. Morgunverðarhlaðborð er á
kr. 630 og hádegis- og kvöldverður frá kr. 750—
1500. Hótelið býður upp á sérstakan fjölskyldu-
afslátt allt árið.
Hótelstjóri: Geir Björnsson.
HÓTEL FORNIHVAMMUR
Gisting: 7 herbergi 17 rúm. Opið allt árið.
GISTIHEIMILIÐ ÓLAFSVÍK
Gisting: 19 herbergi, 38 rúm. Opið allt árið.
HÓTEL STYKKISHÓLMUR
Gisting: 18 herbergi, 36 rúm. Opið yfir sumar-
tímann.
HÓTEL FELL,
Grundarfirði.
Gisting: 8 herbergi 16 rúm. Opið yfir sumar-
tímann.
HÓTEL BIFRÖST
Gisting: 26 herbergi, 60 rúm. Opið yfir sumar-
tímann.
HÓTEL BJARG,
Búðardal.
Gisting: 5 herbergi, 12 rúm. Opið allt árið.
42
FV 5 1976