Frjáls verslun - 01.05.1976, Síða 63
gaf ein þeirra af sér 18 sek-
úndulítra af 68 gráða heitu
vatni með dælingu. Sl. vor var
svo boruð ein hola til og gaf
hún af sér 13 sekúndulítra af
jafnheitu vatni sjálfrennandi.
Upphaflega var ætlunin að
sameina hitaveituna fjarhitun
með kyndistöð, en árangurinn
af þessari síðustu holu varð til
þess að við getum sennil. hætt
við kyndistöðina. Þetta kæmi
sér vel hvað snertir rekstrar-
kostnað í framtíðinni, en stofn-
kostnaðurinn hefði orðið svip-
aður.
Á sl. ári var lögð aðal-
æð inn í bæinn og gengið frá
dreifikerfi í % hluta bæjarins
eða 107 hús. Á þessu ári er
fyrirhugað að bora nýja holu
og hefst borunin í maí. Það er
talið að um meira heitt vatn sé
að ræða þarna en áður var tal-
ið og á að dýpka þá holu sem
síðast kom vatn úr og bora
nýja. Á þessu ári á líka að
Ijúka lagningu dreifikerfisins.
# Gatnagerð
Bæjarstjórn Siglufjarðar hef-
ur nýlega samþykkt að leggja
á gatnagerðargjöld hér, en það
hefur ekki verið gert áður. Bú-
ið er að gera 10 ára áætlun um
gatnagerðina og miðar hún að
því að leggja varanlegt slitlag
á allar götur bæjarins. Núna
eru um 20% af götum steypt-
ar hérna og verður haldið á-
fram á þeirri braut á Eyrinni,
en annars staðar á að leggja
malbik. Ekki er ljóst ennþá
hver tekur verkið að sér en
búast má við að það verði
Norðurbraut. Ekki verður lagt
neitt af steypu eða malbiki
næsta sumar, en skipta á um
um jarðveg og endurnýja lagn-
ir fyrir 17 milljónir á Eyrinni
næsta sumar. Það verk getum
við sameinað lagningu dreifi-
kerfisins fyrir hitaveituna. —
Samkvæmt 10 ára áætluninni
er gert ráð fyrir að meðal-
kostnaður við gatnagerðina
verði 35 milljónir á ári næstu
10 árin og er þá reiknað út
frá verðlagi í ágúst 1975.
§ Hafnarframkvæmdir
Á fjárlögum þessa árs voru
veittar 20,6 milljónir króna til
hafnarframkvæmda á Siglu-
firði. Hefja á undirbúning að
smíði löndunar- og viðlegu-
bryggju fyrir togarana vestan
við hafnarbryggjuna. Bærinn
leggur 25% á móti ríkinu þann-
ig að samtals verður unnið fyr-
ir 27,5 milljónir á þessu ári.
Hins vegar má segja að þeir
peningar fari allir í botninn,
því þetta verður lagt í upp-
gröft og dýpkun á staðnum.
0 Skipulagsmál
Siglufjarðarkaupstaður hefur
ráðið arkitektinn Karl Erik
Rocksen til að vinna að aðal-
skipulagi fyrir bæinn, en þess
var orðin brýn þörf. Það var
orðið lítið um íbúðarhúsalóðir
í bæjarlandinu nema þar sem
snjóflóðahætta er fyrir hendi.
Nú er gert ráð fyrir að Eyrin
verði skipulögð upp á nýtt,
að gömul og illa útlítandi hús
verði fjarlægð og byggðin þétt
með byggingu raðhúsa og fjöl-
býlishúsa. — Byggingafram-
kvæmdir tóku mikinn fjörkipp
á síðasta ári og er eftirspurn
eftir byggingalóðum að aukast.
# Heilsugæzlustö5
í undirbúningi er bygging
heilsugæzlustöðvar fyrir Siglu-
fjarðarlæknishérað, sem nær
yfir Siglufjörð og Fljótin. Þessi
bygging er á algeru áætlunar-
stigi ennþá og er ekki ákveðið
hvenær verður hafizt handa
við hana.
# Ráðhúsbygging
Bæjarskrifstofurnar á Siglu-
firði búa við mikil þrengsli
eins og er og er því í ráði að
taka tvær fokheldar hæðir of-
an við bókasafn Siglufjarðar
til notkunar. Eftir er að byggja
stigahús við enda hússins til
þess að hægt verði að komast
upp á hæðirnar, en þegar þessu
verður lokið fær bærinn rúm-
góða hæð til eigin afnota og
mun leigja bæjarfógetaemb-
ættinu efstu hæðina. Lítillega
var byrjað á þessari fram-
kvæmd sl. haust og gert er ráð
fyrir áframhaldandi fram-
kvæmd á þessu ári.
Gestur Fanndal, kaupma'ður.
Vantar
upplýsingar
um
verðlag
erlendis
— Það er gott að versla á
þcssum stað og get ég nefnt það
sem dæmi, að ég hef ekki þurft
a'ð afskrifa skuld síðustu 10 árin
þótt cg láni milljónavirði af
vörum. Að ráði föður míns þá
lána ég þeim sem eru af skil-
vísri ætt. „Lánaðu afanuon“,
sag'ði hann. Sá sem þetta segir
er hinn góðkunni siglfirski
kaupmaður Gestur Fanndal,
sem samfellt hefur stundað
verslun á Siglufirði frá árinu
1934.
— Ég byrjaði með matvöru-
verslun við Aðalgötuna, sagði
Gestur, en flutti hingað í Suð-
urgötuna árið 1950. Ég keypti
þetta hús rétt fyrir stríðsbyrj-
un. Sá sem átti það hafði ekki
áhuga á því að fá mikla pen-
inga strax, en vildi heldur fá
vexti. En svo kom stríðið og
FV 5 1976
57