Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 106

Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 106
'Frá I ritsijórn Sambúð iðnaðar og verzlunar Áróður íslenzkra iðnfyrirtækja í auglýs- ingatímum sjónvarpsins að undanförnu hef- ur vakið verðskuldaða athygli. Eins og mál- um er nú komið í viðskiptum þjóðarinnar við útlönd og með hliðsjón af þeirri nauð- syn að tryggja fulla atvinnu á vinnumark- aði innanlands er liklegt að almenningur sé einkar móttækilegur fyrir þeim rökum, sem á loft er haldið i hvatningu iðnrekenda um kaup á íslenzkum framleiðsluvörum. Það lilýtur að vera mikið kappsmál okkur sem öðrum að vera sjálfum okkur nógir á sem flestum sviðum. Að vísu eru Islendingar flestum öðrum háðari innflutningi í ein- liverri mynd og við getum aldrei notið sam- bærilegra lífskjara við næstu nágranna okk- ar nema mcð öflugri vérzlun við útlönd. Til þess að hér gcti dafnað framleiðsluiðnaður fyrir íslenzkan markað þarf t. d. umtals- verðan innflutning hráefna. Um það er því ekki að ræða að taka upp viðskiptalega ein- angrunarstefnu. En l'rá þjóðhagslegu sjónar- miði hljótum við að velja þann kostinn að vinna hér innanlands úr erlendum hráefn- um el'tir því sem við verður komið i stað j)ess að kaupa vaminginn fullunnan erlendis frá. Fyrir þessu verður þó að sctja skilyrði um að vcrð og gæði hinnar innlendu vöru séu sambærileg við þau kjör, sem erlendir vöruframleiðendur og umboðsmcnn þeirra hérlendis geta lioðið neytendum. Annars var eftirtektarvert að fylgjast með þeim deilum, sem risu milli innflytjcnda og forráðamanna iðnkynningarinnar vegna sjónvarpsauglýsinganna. Nokkrum stór- kaupmönnum þótti sárt að sjá vörumerki sín nefnd í neikvæðum tilgangi í auglýsing- uniun. Samkvæmt rcglum sjónvarpsins var liægt að banna slíkan samanburð, sem þarna var gerður. En almennt hefur heildverzlunin aftur á móti ekkert grætt á þeim lagfæring- um, sem gerðar voru á umræddri kynningar- mynd að undirlagi hennar sjálfrar, nema síður væri. Þetta mál hefur beint athygli manna að þeirri viðkvæmni, sem einkcnnir sambúð verzlunar og iðnrekstrar, þessara tveggja máttarstoða frjáls framtaks í landinu. Það er mjög miður að til ágreinings af þcssu tagi skuli koma opinberlega. En hann á sínar orsakir, scm kannski eru djúpstæðari en margir halda í fljótu bragði. Þó að um noltkurn hagsmunaárekstur sé að ræða milli verzlunar og iðnaðar, þegar innlend framleiðsla leysir innflutning af hólmi, hefur þess ekki orðið vart að inn- flutningsvcrzlunin streittist á móti þeirri þróun. Fiilltrúar hennar hafa ekki síður en aðrir landsmenn yfirleitt fagnað vexti og viðgangi innlends iðnaðar. Aftur á móti er ljóst, að íslenzk iðnfyrir- tæki hafa enn sem komið er að mjög litlu leyti hagnýtt sér dreifingarkerfi heildverzl- unarinnar og þá kosti, sem það hefur upp á að bjóða eftir áralanga reynslu og uppbygg- ingu miðað við þanu árangur, scm eitt og eitt iðnaðarfyrirtæki getur vænzt af tilraun- um sínum á sama sviði. Þetta er hagræðing- armál, sem snýst líka um verulegar fjárupp- liæðir í dreifingarkostnaði. Þegar á heildina er litið hlýtur það að vera öllum fyrir beztu að þarna eigi sér stað verkaskipting og að dreifingarkerfi lieildverzlunarinnar verði nýtt til hins ítrasta í þágu innlends iðnaðar. 98 FV 5 1976
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.