Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 44

Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 44
hlut, hvort heldur það er bíll eða mannbroddar, þá skulum við kalla allar greiðslur af hon- um til hins opinbera toll, hvort heldur það er tollur, vörugiald, söluskattur eða þ. u. 1. Skatt skulum við svo kalla allar greiðslur til ríkis, sveitarfélaga eða önnur slík gjöld tengd rekstri eða ágóða. En snúum okkur fyrst að tollunum. Af allri fjárfestingu iðnfyrir- tækja hérlendis þarf að greiða toll, hverju nafni sem nefnist, nema þeirri vinnu, sem unnin er beint á staðnum. Tollur af flestum vélum er 11%, en al' mörgum vélum og öðrum tækj- um er hann 55%, 77%, 94% og 101%. Af byggingarefni má nefna: sement 30%, timbur 38%, raflagnaefni 77%, hrein- lætistæki 155%, þakjárn 63%, gólfdúkur 91% og öll aðkeypt vinna (ekki unnin á staðnum) 20%. Ætli að við gætum ekki sætzt á það, að meðaltollur af vélum og húsnæði iðnfyrirtæk- is sé 20%. Þennan toll þurfa fyrirtæk- in í nágrannalöndunum ekki að greiða. Er nokkurt vit í þessu? Ég segi nei. Það er ekki stórt iðnfyrirtæki, sem kostar 100 milljónir króna. Danir þurfa að greiða 100 millj., en við 120 milljónir. 20 milljón krónur í ríkissjóð til þess að mega koma upp litlu fyrirtæki. Svo eigum við^að keppa! Þá eru það skattarnir. Marg- ur vildi kannski spyrja, hvort við viljum ekki greiða skatta. Jú, við viljum það, en ekki meiri skatta en hinir atvinnu- vegirnir. Iðnaðurinn greiðir al- mennt 1% aðstöðugjald af veltu, en rekstur fiskiskipa 0.2% og fiskiðnaður 0.5%. Iðn- aðurinn greiðir 3.5% í launa- skatt, en enginn slíkur skattur er á fiskveiðum. Hvers vegna er þetta svona? Við kvörtum ekki undan tekjusköttum, ef þeir eru lagðir eins á aðra. En svo eru enn tollar. Þ. e. mismunurinn á innflutnings- tollum af fullunninni innfluttri iðnaðarvöru annars vegar og efnivörunni hins vegar. Þarna getur að vissu leyti veríð nokk- ur vandi. Hjá sumum fyrir- tækjum getur það verið efni- vara (vara til framleiðslu), sem er fullunnin vara hjá öðr- um. En hvað sem því líður, þá lækkuðu tollar talsvert af svo- kölluðum EFTA-vörum nú um s.l áramót. Tollar lækkuðu einnig af innfluttri efnivöru. En hún lækkaði á sama tíma, þess vegna voru allar birgðir fyrir- tækjanna um áramót með há- um tolli, en áhrif tollalækkan- anna á fullunnu vörunni komu strax fram. Þarna var engan skilning að finna. Eggert Hauksson framkv.stj. Allir þeir þættir um tolla og skatta, sem hér eru nefndir, er það sem við iðnrekendur köll- um vanefndir af hálfu hinna opinberu aðila. Þeim finnsit það ekki. En þegar stofnuð eru fyr- irtæki í eigu ríkisins eða út- lendinga, þá er annað hljóð. „Öll tæki og vélar svo og bygg- ingarefni til fyrirtækisins, skulu undanþegin aðflutnings- gjöldum og söluskatti“. Svo kvörtum við iðnrekendur und- an því, að íslenzkur iðnaður njóti ekki skilnings! F.V.: — Þú hefur verið all fjölorður um þá skatta og önn- ur gjöld, sem íslenzkur iðnaður hefur þurft að greiða fram yfir erlendu keppinautana og aðra innlcnda atvinnuvegi. Getur þú gefið mér einhverja hugmynd um stærð þeirra gjalda? Haukur: — Jú, það ætti að vera hægt í stórum dráttum. Það er viðurkennt, að hinn svo kallaði „uppsafnaði“ söluskatt- ur nemi sem næst 3.5% af sölu- verðmæti iðnfyrirtækja. Þetta er söluskattur, sem kernur á alla aðkeypta þjónustu, orku og ýmisönnur aðföng. Verksmiðju- iðnaðurinn greiðir að minnsta kosti 0.5% hærri aðstöðugjöld en hinir atvinnuvegirnir. Þá greiðir hann toll af framleiðslu- tækjunum, og hans vegna mætti áreiðanlega bæta við 1% eða meiru. En látum okkur nægja 4% í bili, það er nógu hrika- legt. Velta framleiðslu- eða verksmiðjuiðnaðarins árið 1975, að frádregnum þjónustu- og viðgerðargreinum, mun hafa verið sem næst 45.000 milljón krónur. Samkvæmt því er þessi blóðmjólkunarskattur 1800 milljónir, en hann gæti eir.s verið yfir 2000 milljónir. Um- setning í þessum greinum mun hafa verið 4-5 milljónir á starí'- andi mann. Það gerir 160-200 þúsund krónur á starfsmann. Margur getur svo hugleitt það í kyrrþey, hvers vegna íslenzk- ur iðnaður greiðir lág laun og er oft illa samkeppnisfær. Eg geri ráð fyrir því, að þessi skattur á Plastprent á þessu ári muni nema á bilinu 7-9 milljón krónum. Inni í þessu dæmi er svo ekki rafmagnsverðið. Og inni í dæminu er ekki heldur klafi hinna háu vaxta, sem hin- ir atvinnuvegirnir greiða ekki, og ekki heldur afleiðingar þess fjármagnssveltis, sem þessi at- vinnuvegur verður að þola. Al- varlegustu afleiðingar þessarar stefnu hljóta að vera og verða lélegri lífskjör í landinu. F.V.: — Félag ísl. iðnrekenda hefur staðið að þeirri athyglis- verðu nýjung að bjóða þing- mönnum og öðrum áhrifamönn- um í heimsóknir í fyrirtækin og til viðræðufunda. Sýnist ykkur að þetta hafi aukið skiin- ing viðkomandi á málefnum ís- lenzks iðnaðar? Ilaukur: — Án efa hafa slík boð borið nokkurn árangur. Sannleikurinn er sá, að allt of margir þessara aðila þekkja lít- ið verksmiðjuiðnaðinn. Hann er margbreytilegur og því ekki auðvelt að afla sér heildar yfir- 44 FV 6 1976
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.