Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 79
Svíþjóð hafði þetta að bjóða, og
var gerður viðskiptasamningur
við það um tölvuvinnslu á ár-
inu 1973. Hið sænska tölvu-
þjónustufyrirtæki vinnur al-
hliða bókhald fyrir um það bil
40.000 fyrirtæki. Er það ein
meginástæðan fyrir því á hve
hagsitæðu verði er mögulegt að
fá þessa þjónustu keypta.
— Hefur tölvubókhald ein-
hverja kosti umfram önnur bók-
haldsform?
— Tvímælalaust. Höfuðkost-
ir tölvubókhalds eru meiri
hraði, öryggi og ekki má
gleyma gífurlegum sundurlið-
unarmöguleikum. Tökum eitt
dæmi um sundurliðun: Fyrir-
tæki hefur á boðstólum vörur,
sem skipta má í 10 vöruflokka.
Eftir hverja vinnslu má á auð-
veldan hátt fá fram sérstök yf-
irlit, sem sýna árangur hvers
vöruflokks. Tölvunni eru gefn-
ar upplýsingar um álagningar-
prósentu fyrir hvern vöruflokk
um sig og reiknuð birgðabreyt-
ing kemur fram.
Rekstrar- og efnahagsreikn-
ingur er skrifaður sjálfkrafa í
hverri vinnslu. Á rekstraryfir-
liti koma fram hreyfingar s.l.
mánaðar svo og hreyfingar frá
áramótum. Einnig kemur fram
hve mörg % af sölu hinir ein-
stöku kositnaðarliðir taka. Þá
er mögulegt að fram komi ef
óskað er áætlun eða saman-
burður við fyrra ár.
Fyrirtæki í dag verða að gera
kröfur til bókhaldsins. Gott
bókhald má ekki aðeins vera
saga eða aðeins upplýsingar
fyrir opinbera aðila. Það er of
seint að fá yfirlit yfir rekstur-
inn á næsta ári. Það er nú sem
við þurfum svar við eftirfar-
andi spurningum til þess að
taka mikilvægar ákvarðanir:
1. Er kostnaðurinn of hár mið-
að við veltu og hvaða liðir
eru of háir?
2. Hvaða vörur kasta ekki
nægilega af sér til rekstrar-
ins?
3. Eru vörubirgðir of háar?
4. Hefur lækkað vöruverð haft
verri áhrif en áætlað var?
5. Eru innkaupin óhagkvæm?
Þetta eru aðeins nokkrar
spurningar, sem stjórnendur
fyrirtækja þurfa reglubundið
að vita um reksturinn. Mánað-
arleg rekstrar- og efnahags-
yfirlit hjálpa að sjálfsögðu til
við að svara ótal spurningum
um rekstur og hag fyrirtækis-
ins.
— Er tölvubókhald ekki aðal-
lega fyrir stærri fyrirtæki t. d.
kostnaðarlega séð?
— Alls ekki. Þess misskiln-
ings hefur einmitt gætt að
tölvubókhald væri svo dýrt að
aðeins hin stærstu fyrirtæki
væru fær um að notfæra sér
það. Tölvubókhald er ekki dýr-
ara en önnur bókhaldsform. í
hópi okkar viðskiptavina eru
fyrirtæki með innan við 1000
fylgiskjöl og má segja að kostn-
aðurinn sé í hlutfalli við fjölda
fylgiskjala. í okkar verðlistum
er enginn fastakostnaður og því
eru allir færir um að vera með.
— Nú fer tölviuvinnslan fram
1 Svíþjóð. Hvernig hefur það
reynst?
— Allar sendingar milli Sví-
þjóðar og íslands fara fram með
hraðpósti. Daglegar ferðir eru
milh landanna og s.l. 3 ár hafa
allar sendingar komið fram. Að
sjálfsögðu eru gerðar öryggis-
ráðstafanir gegn skakkaföllum.
Ef t. d. útskriftir glatast í pósti
frá Svíþjóð fáum við strax
aukaútskrift.
— Hvernig hefur gengið' að
vinna markað fyrir þetta bók-
haldsform og hvað með’ fram-
tíðarhorfur?
— Það má segja að það hafi
gengið all vel. Hins vegar verð-
um við oft varir við tortryggni
þegar tölva er nefnd, en hugar-
far manna er mjög að breytast
í þessum efnum. Við höfum far-
ið hægt af stað og ekki aug-
lýst starfsemi okkar að ráði, en
hópur ánægðra viðskiptavina er
að okkar mati ekki hvað lak-
asta auglýsingin. Betur kemur
í Ijós upplýsingagildi tölvubók-
halds þegar bókhald ákveðins
hóps innan sams konar rekstrar
er unnið á tölvu. í dag eru
m. a. 8 nýlenduvöruverzlanir,
sem notfæra sér þjónustu okk-
ar. Við vinnum nú að því að
hver og ein verzlun fái skýrslu-
gerð hvernig hún stendur mið-
að við meðaltalið. Við bindum
miklar vonir við að slíkt verði
vinsælt í framtíðinni.
TRÉSMIÐJA
SIGURGEIRS
INGIMARSSONAR
Borgarbraut 55,
Borgarnesi.
|I/ r
Husasmiði a
iðnaðar- og
íbúðarhúsum.
Innréttingasmíði.
•
Smíði á gluggum,
hurðum o. fl.
•
Sími 93-7295,
Borgarnesi.
FV 6 1976
79