Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 65
Borgarverk hf.:
Verktakastarfsemi og
vinnuvélaleiga
Verkefni um allt Vesturlandskjördæmi
Sigvaldi Arason heitir ungur athafnamaður í Borgarnesi, sem er
stofnandi og fyrirsvarsmaður Borgarverks li.f., en það tekur að
sér ýmis konar jarðvinnu m.a. gerð grunna af húsum. Fyrirtæki
þetta var stofnað árið 1974, en áður hafði Sigvaldi unnið við
vörubílaakstur og á vinnuvélum í 10 ár.
Sigvaldi skýrði svo frá í við-
tali við F.V., að nú í sumar
störfuðu 13 manns hjá Borgar-
verki, en tækin, sem fyrirtækið
á, eru fjórar gröfur, tveir vöru-
bílar, jarðýta og grjótborvagn.
Borgarverk tekur að sér ýmis
konar verkefni við vegagerð og
húsgrunna. Það hefur mikið
unnið fyrir Borgarneshrepp
m. a. var stærsta verkefnið,
sem fyrirtækið hefur fengið til
þessa, unnið fyrir hann, en það
er gatnagerð í nýju hverfi,
svokölluðu Sandvíkurhverfi
skammt frá Borg. Þar er unnið
við þrjár götur, sem íbúðarhús
rísa við.
VEGAFRAMKVÆMDIIÍ
I Norðurárdal og Dalsmynni
er unnið að vegabótum, sem
Vegagerð ríkisins hefur fengið
Borgarverk til að vinna. Sömu-
leiðis eru vélar frá fyrirtækinu
í vegavinnu á Holtavörðuheiði,
en þar er verið að gera nýjan
veg, sem 75 milljónum króna
verður varið til á þessu ári.
Þetta eru verkefni, sem standa
munu fram á haust og hið sama
er að segja um grjótnám fyrir
hafnarframkvæmdir á Akra-
nesi. Annars má segja að Borg-
arverk vinni að verkefnum um
allt Vestuiiandskjördæmi og
norður í Hrútafjörð. Auk þess-
ara meiriháttar framkvæmda,
sem getið hefur verið, eru vél-
ar fyrirtækisins leigðar ti'
minni verka heima á bæjum í
sveitunum.
VERKEFN ASKORTUR f
VETUR?
Sigvaldi Arason sagði, að
mestar annir væru að sjálf-
sögðu yfir sumarmánuðina, en
nokkur verkefni væru líka fyr-
ir hendi yfir veturinn. Þannig
hefði það komið sér mjög vel
Sigvaldi Arason, framkv.stj.
að kaupfélagið lét vinna að
uppgreftri vegna nýrrar bygg-
ingar fyrir mjóikursamlag í
Borgarnesi í vetur og eins hef-
ur hreppurinn reynt að haga
framkvæmdum sínum þannig,
að þær séu að verulegu leyti
unnar yfir vetrarmánuðina.
Fastur mannskapur hjá Borgar-
verki yfir vetrarmánuðina er
5-6 menn. Að sögn Sigvalda er
nokkur óvissa framundan með
verkefni.
Um fjármálahlið reksturs af
þessu tagi sagði hann, að jarð-
vinnutæki eins og hann notaði
kostuðu ný hátt á þriðja tug
milljóna og hlyti hver einasti
maður að sjá, hversu erfitt væri
að fjármagna siík kaup. Lána-
möguleikar í þessu sambandi og
til rekstrar væru nánast engir.
Erlend lán væru ekki fyrir
hendi lengur og það eina, sem
upp á væri að hlaupa væru
venjulegir víxlar og þá helzt
til 45 daga. Sigvaldi tók þó
fram, að sparisjóðurinn í Borg-
arnesi hefði reynzt mjög hjálp-
legur sínu fyrirtæki og gert sitt
til að örva þessa starfsemi.
FV 6 1976
65