Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 85
AUGLÝSING
STÁLHÍJSGAGIMAGERÐ STEIIMARS JÓHAIMIMSSOIMAR:
IMýstárleg skrifstofuhúsgögn
, Stálhúsgagnagcrð Steinars
Jóhannssonar hcfur aldrei áð-
ur tckið þátt í húsgagnasýn-
ingu og hafði hví litla viðmið-
un við aðrar sýningar á undan-
förnum árum. Mikið var spurst
fyrir um framleiðsluvörur fyr-
irtækisins eftir að sýningunni
í Laugardalshöll Iauk og
taldi Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
framkvæmdastjóri, fulla þörf á,
að slíkar sýningar væru haldn-
ar annað hvert ár.
Eins og sést á meðfylgjandi
mynd var Stálhúsgagnagerð
Steinars Jóhannssonar með al-
gjöra nýjung í framleiðslu
sinni, þ. e. a. s. sófasett og gler-
bcrð ásamt bólstruðum skrif-
stofuhúsgögnum, sem ætluð eru
til útflutnings.
Sófasettið var vinsælt um-
ræðuefni á sýningunni og seld-
ist það meðan á sýningunni
stóð. Verð á slíku setti er kr.
180.400, en þau eru einnig til
með ullaráklæði og kosta þá
kr. 115.300.
Skrifstofuhúsgögnin þóttu ný-
stárlegt fyrirbrigði og var mik-
ið spurt um verð, en þau eru
frekar dýr, enda mikið vandað
til framleiðslunnar og kosta kr.
750.000 og er þá innifalið í
verðinu skrifborð ásamt stól og
tveggja sæta sófa, og stóru og
litlu sófaborði.
Eldhúshúsgögnin vom mikið
skoðuð, enda hefur Stálhús-
gagnagerð Steinars Jóhannsson-
ar margra ára reynslu í gerð
eldhúshúsgagna og njóta þau
mikilla vinsælda.
Auk þess framleiðir fyrir-
tækið margs konar stóla, þ. á tn.
stóla með háum fæti, sem ætl-
aðir eru til að sitja í við vinnslu
í hraðfrystihúsum, stálhúsgögn
fyrir félagsheimili, skóla og
iðnaðarhúsnæði, ásamt algeng-
um skrifstofustólum og borðum
til ýmissa nota.
HLSGAGIMAVERZLLIMIIM SKEIFAIM:
Fjölmargar gerðir húsgagna,
teppa og áklæða
Húsgagnavcrslunin Skeifan,
Laugavegi 59, Rcykjavík, hefur
upp á fjölmargar gerðir hús-
gagna, tgppa og áklæða að
bjóða, því samhliða því að
framleiða bólstruð eru seld t
vcrsluninni húsgögn frá öðruin
húsgagnaframleiðendum og inn-
flutt húsgögn. Húsgagnafram-
Iciðslan fer fram að Smiðju-
vegi 6, Kópavogi.
Einnig er í versluninni mikið
úrval af teppum frá Englandi,
ullar- og acrilteppi ofin með
axminster eða Wilton vefnaði
svo og fjölmargar gerðir af
áklæðum svo sem ullar- og
leðuráklæði í mörgum litum.
Á húsgagnasýningunni
prýddu bólstruð húsgögn ásamt
teppum bás húsgagnaverslun-
arinnar Skeifunnar og kosta
sófasettin frá kr. 210.000-
329.000. í versluninni eru hins
vegar fáanlegar allar gerðir
af húsgögnum svo sem skrif-
stofuhúsgögn, borðstofuhús-
gögn, rúm, stólar, sófasett og
sófaborð svo eitthvað sé nefnt.
Magnús Jóhannsson, for-
stjóri, kvaðst hafa tekið þátt í
öllum húsgagnasýningum, sem
haldnar hafa verið hérlendis,
og kvað hann nauðsynlegt að
halda slíkum sýningum áfram
í framtíðinni. Hann var ánægð-
ur með útkomu sýningarinnar
og sagði, að eftirspurnin væri
að aukast eftir sýninguna.
FV 6 1976
85