Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 96
Ilm hcima og geima
— Mig dreymdi fallegan
draum í nótt. Mig dreymdi
sem sé að ég væri í veiðitúr
með Brigitte Bardot.
— Og hvað gerðist, halt’u á-
fram.
— Ég fékk stærsta lax, sem
ég hef nokkurn tíma veitt.
— Fjandans bílar. Helvítis
hjólin. Bölvaðar skellinöðrurn-
ar.
Palli litli stóð á gangstéttar-
brúninni og bölvaði ökutækjun-
um, sem áttu leið framhjá. Það
var ógerningur að komast yfir
götuna fyrir umferðinni.
>á bar að sóknarprestinn,
sem heyrði bölbænirnar.
— Litli vinur. Svona talar
maður ekki ef maður vill kom-
ast til himnaríkis.
— Ég er sko ekkert á leiðinni
til himnaríkis. Ég er að fara út
í mjólkurbúð að kaupa fransk-
brauð.
— Afhverju hleypur hérinn
helmingi hraðar, þegar hann er
á flótta undan hvítum hundi en
svörtum?
— Þá er hann stórlega skelk-
aður, því hann heldur að hund-
urinn hafi farið úr jakkanum
til að ná meiri ferð.
— Ég hef svolítið að segja
ykkur, elskurnar, sagði olíu-
sheikinn við allar konurnai
sínar.
— Ég er orðinn bálskotinn í
öðru kvennabúri.
— • —
— Þetta var það hundleiðin-
legasta partí, sem ég hef nokk-
■urn tíma lent í, sagði tátan við
vinkonu sína og sambýliskonu.
— Nú, þú komst nú samt
anzi seint heim.
— Það var bara af því að ég
fann ekki brjóstahaldarann.
— Hvað ætlar þú að verða,
þegar þú ert orðinn stór?
— Ætli mar fálmi ekki í
fingrafarið hans pabba.
Það birtist auglýsing í dreif-
býlisblaðinu:
„Lærið að leika á píanó.
- Nei, sjáðu bara, Helga. Fjögurra blaða smári!
w, •» "V
96
FV 6 1976