Frjáls verslun - 01.11.1976, Qupperneq 31
Líkleg þróun bankaeftirlits
hér á landi
Eftir Ólaf Orrason, viöskiptafræðing
Bankaeftirlitsstarfsemi á ís-
landi er í sífelldri mótun. Hér á
eftir verðux bent á nokkur at-
riði, sem hljóta að koma til
kasta bankaeftirlitsins í náinni
framtíð, en benda má á það, að
setja þarf fullkomnari löggjöf
um bankaeftirlit á íslandi, lög-
gjöf, sem færir eftirlitinu meiri
völd til að gera þær ráðstafan-
ir, sem það telur nauðsynlegar
í hvert skipti.
Hér á eftir fer útdráttur úr
prófritgerð Ólafs Orrasonar,
viðskipt^fræðings í H.Í., sem
hann skrifar um opinbert eftir-
lit með rekstri innlánsstofnana
á íslandi, en með innlánsstofn-
unum er átt við viðskiptabanka,
sparisjóði, innlánadeildir sam-
vinnufélaga og Söfnunarsjóð
íslands. í þessari grein verður
aðallega fjallað um líklega þró-
un bankaeftirlits hér á landi.
Bankaeftirlit hefur sam-
kvæmt gildandi lögum vald til
að stöðva re'kstur sparisjóðs, ef
rekstur sjóðsins er ótryggur að
mati þess. Gagnvart bönkunum
hefur banJkaeftirlitið hins veg-
ar ekkert slíkt vald, en ef mis-
ferli á sér stað ber að tilkynna
það ráðherra.
Til þess að sterkt bankaeftir-
lit sé starfandi hérlendis hlýtur
það að þurfa að hafa ský.rari og
ákveðnari völd en nú er, til að
stöðva rekstur innlánsstofnun-
ar þegar í óefni er komið, þann-
ig að tími vinnist til að endur-
skipuleggja reksturinin, eða
hvort endanlega verður að
leggja stofnunina niður og gera
upp skuldir. Einnig er ljóst, að
þörf er á lagaheimildum, sem
gera bankaeftirlitinu það kleift
að knýja fram þær aðgerðir,
sem það kann að telja óhjá-
kvæmilegar til að koma rekstri
innlánsstofnunar á réttan kjöl,
þegar vandamálin eru þó ekki
orðini það erfið viðfangs að til
lokunar þurfi að koma. Vissu-
lega er hér um mjög vandmeð-
farin mál að ræða, en horfast
verður í augu við þau, þegar
lög og reglur um bankaeftirlit
koma næst til endurskoðunar.
Með því að bankaeftirlitið
hefði meiri völd með framan-
skráðum hætti væri hag inn-
stæðueigenda enn betur borgið
en nú er og í ýtnsum tilvikum
yrði unht að stöðva óheillavæn-
lega þróun áður en í hreint ó-
efni væri komið. Oft heyrast
raddir um það, þegar illa horf-
ir hjá banka eða sparisjóði að
bankaeftirlitið hefði fyrir löngu
átt að vera búið að grípa í
taumana. Það hefði líka án efa
gert það í mörgum tilvikum,
en hefur skort vald til þess.
TR Y GGING ARS JÓÐUR
SPARISJÓÐA
Rétt er að minnast hér á lög-
gjafaratriði, sem varðar mjög
framtíðarstarf bankaeftirlits-
ins, en það er hugsanleg stofn-
un sameiginlegs tryggingar-
sjóðs fyrir sparisjóðina og ef til
vill einnig fyrir hlutafélags-
banka. Sá tryggingarsjóður,
sem nú er starfandi fyrir spari-
sjóðina er ekki tryggingarsjóð-
ur í réttri merkingu þess orðs.
Raunverulegur tryggingarsjóð-
ur sparisjóðanna ætti m.a. að
hafa eftirfarandi hlutverk:
a) Tryggja full skil á innláns-
fé við endurskipulagningu
eða slit sparisjóðs.
b) Veita sparisjóðum aðstoð á
annan hátt og stuðla al-
mennt að eflingu sparisjóðs-
starfsemi í landinu. í þessu
skyni ætti stjórn trygging-
arsjóðs að vera heimilt að:
1. Veita sparisjóði lán eða
yfirtaka vissar eignir
sparisjóðs.
2. Ganga í ábyrgð fyrir
sparisjóð, en samkvæmt
núgildandi lögum er
sparisjóði bannað að
ganga í ábyrgðir fyrir
aðra aðila.
í þeim sparisjóðalögum, sem
áætlað er að leggja fyrir Al-
þingi, er einmitt gert ráð fyrir
slíkum tryggingarsjóði spari-
sjóða og er gert ráð fyrir að
framlög sparisjóðanna til
tryggingarsjóðs verði í uppihafi
0,3%c af heildarinnlánsfé spari-
sjóðanna. Áætlað er að for-
stöðumaður bankaeftirlits eigi
fast sæti í stjó.rn tryggingar-
sjóðs og hefur stjómdn heimild
til að rannsaka eða láta rann-
saka allt, sem varðar rekstur
og efnahag sparisjóðanna, þar
með talin framkvæmd endur-
skoðunar. Getur stjórn trygg-
ingarsjóðs í þessu sambandi
krafist hvers konar upplýsinga
frá sparisjóðunum.
Ef tryggingarsjóður verður
settur á stofn fyrir bæði spari-
sjóði og hlutafélagsbanka felst
í því mikið öryggi fyrir inn-
stæðueigendur hjá hverri stofn-
un um sig og slíkt getur vissu-
lega /haft töluverð áhrif á
starfssvið og starfshætti banka-
eftirlitsins.
AUKIN ENDURSKOÐUN
HJÁ INNLÁNSSTOFNUNUM
Yfirleitt hafa innlánsstofnan-
irnar tekið endurskoðun banka-
eftirlitsins mjög vel og óskir
hafa komið fram hjá sumum
þeirra að bankaeftirlitið taki að
sér endurskoðun 'hjá þeim. Sér-
staklega hefur þetta komið í
ljós eftir að bankaeftirlitið
sannaði gildi sitt í banka ein-
um hér í borg eins og komið
hefur fram í fréttum.
Ljóst er að bankaeftirlitið
getur aldrei tekið að sér endur-
skoðunarframkvæmd hjá inn-
lánsstofnunum. Eitt meginverk-
efni bankaeftirlitsins á næstu
árum hlýtur að vera að beita
FV 11 1976
29