Frjáls verslun - 01.11.1976, Page 49
Matvælarannsóknir ríkisins
Veita heilbrigðisnefndum á landinu
þjónustu á sviði matvælagerlarannsókna
Matvælarannsókn'um ríkisins
var komið á fót hinn 1. mars
s.l. en þessi stofnun á að veita
öllum heilbrigðisnefndum á
landinu þjónustu á sviði mat-
vælagerlarannsókna. Frá 1.
mars hafa verið rannsökuð
2600 sýni aðallega frá Stór-
Reykjavíkursvæðinu, en starf-
semin fer fram í húsi rannsókn-
arstofnunar fiskiðnaðarins til
bráðabirgða.
Guðlaugur Hannesson, gerla-
fræðingur, er forstöðumaður
þessarax nýju stofnunar, sem
heyrir undir Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið. í við-
tali við F.V. sagði Guðlaugur,
að nauðsynlegt væri að stofn-
unin fengi húsnæði undir starf-
semi sína til þess að geta sinnt
rannsóknunum sem skyldi. Til
þess að geta veitt heilbrigðis-
nefndum fullnægjandi þjón-
ustu þyrfti stofnunin að geta
rannsakað um 3000 sýni fy.rir
heilbrigðiseftirlit á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og um
3000 sýni fyrir heilbrigðis-
nefndir úti á landi.
ORSAKIR MATARSKEMMDA
OG VARNIR GEGN ÞEIM
Guðlaugur sagði, að Mat-
vælarannsóknir ríkisins væri
eftirlitsstofnun til að koma á
fót eðlilegri neytendavernd og
mundi starfa í nánum tengslum
við heilbrigðisnefndir og ættu
þær að annast sýnatökur og
refsiaðgerðir. Hins vegar sagð-
ist hann vilja fá leyfi til þess
að stofnunin geti gert sjálf-
stæðar rannsóknir á hinum
ýmsu vöruflokkum. Hann sagði,
að fólk væri of tregt til að
kvarta og væri ek'ki alltaf nógu
kröfuhart gagnvart vörunum
og ætti óspart að notfæra sér
þjónustu opinberra aðila eins
og heilbrigðiseftirlits, ef það
fær skemmda eða gallaða vö.ru.
Meginorsakir skemmda í mat-
vælum eru einkum líffræðileg-
ar, efnafræðilegar og eðlis-
fræðilegar. Það sem kallast líf-
fræðilegar skemmdir mynd-
ast aðallega vegna starf-
semi gerla, eiturmyndunar
gerla (sýkla) og sníkjudýra.
Efnaf.ræðilegar skemmdir stafa
af efnabreytingum eins og
þráa, ýmsum aukaefnum svo og
eiturefnum og hættulegum efn-
um. Eðlisfræðilegar skemmdir
Guðlaugur Hannesson,
gerlafræðingur.
verða vegna þornunar, frost-
bruna og il'lrar meðferðar mat-
væla.
Guðlaugur sagði, að til þess
að varna matvælaskemmdum
kæmi einkum til fernt. f fyrsta
lagi rotvarnir t.d. kæling, sölt-
un, reyking, frysting, súrsun og
niðursuða, í öðru lagi þrifnað-
ur i meðferð og vinnslu, í þriðja
lagi skoðun eða skynmat, sem
heilbrigðiseftirlit annast og svo
vísindalegt eftirlit í fjórða lagi.
SETTIR ERU LÖGBOÐNIR
GERLASTAÐLAR FYRIR
NEYSLUVARNING
Gerlarannsóknir eru gerðar
með gerlatalningu á föstu æti
eða með því að ákvarða lík-
legasta fjölda gerla í fljótandi
æti. Einnig eru notuð ýmis sér-
hæfð æti fyrir ýmsar tegundir
gerla.
Settir eru ákveðnir lögboðnir
gerlastaðlar fyrir mat, mjólk
og neysluvatn hér á landi. Þar
er ákvæði um hámarksge.rla-
fjölda og kveðið á um hvaða
sýklategundir megi ekki finn-
ast í matvælum.
Guðlaugur sagðist telja það
óeðlilegt, að eftirlit með magni
fúkalyfja i mjólk eða mjólkur-
afurðum sé í höndum mjólkur-
samlaganna en ekki hins opin-
bera. Nú þegar gera á breyt-
ingar á sölu og dreifingu mjólk-
urafurða þá hlýtur eftirlit að
þurfa að kosta meiri fyrirhöfn,
þar sem nauðsynlegt er að
fyigja öllum ákvæðum varð-
andi t.d. síðasta söludag og
selja ekki mjólk fram yfir þann
tima.
Hann sagði einnig að við
gerlarannsóknir kæmi ýmislegt
í ljós í sambandi við óeðlilegan
gerlafjölda í vissum tegundum
matvæla. Oft hefur varan verið
geymd of lengi í verslunum t.d.
eins og álegg, sem ekki er pakk-
að í loftþéttar umbúðir svo og
fars eins og kjötfars og ýmsar
aðrar vörutegundir.
Hér á landi eru starfandi hin-
ar ýmsu rannsóknarstofnanir
atvinnuveganna og gegna þess-
ar stofnanir veigamiklu hlut-
verki fyrir framleiðendur. Eru
það bæði opinberar rannsókn-
arstofnanir og svo rannsóknar-
stofur einkafyrirtækja. Hver
oninber stofnun sér um ákveðn-
ar rannsóknir, en Guðlaugur
sagði að lokum, að takmarkið
ætti að vera, að hans mati, að fá
alhliða efna- og gerlarannsókn-
ir á neysluvarningi sem neytt
er innanlands á sama stað, en
ekki i sitt hvorri stofnuninni.
FV 11 1976
47