Frjáls verslun - 01.02.1977, Síða 17
einn sf „ofbeldissinnuðu aug-
lýsendunum.“
Forstjóri auglýsingastofu,
sem gerði auglýsingaáætlun
fyrir Jell-O frá General Foods
árið 1959, en hún hafði að for-
sögn að koma hvergi nálægt
glæpamyndunum, telur að brátt
muni mesta púðrið úr þeirri
stemningu, sem fyrir þessum
málum er nú hjá almenningi.
„Það hafa svo mörg fyrirtæki
heyrt neytendurna segja fyrr
og síðar: „Burt með allt kyn-
svallið og blóðsúthellingarnar“,
segir hann.
ÁRÓÐUR KEPPINAUTA
Hjá Frank M. Smith, tals-
manni CBS, kemur fram sú
skoðun, að samkeppnissjón-
armið dagblaða og tímarita
ráði einhverju af árásum þess-
ara fjölmiðla á sjónvarpið og
eins pólitísk sjónarmið af hálfu
sumra annarra gagnrýnenda.
Aðstoðarforstjóri auglýsinga-
deildar NBC-sjónvarpsstöðv-
anna segir, að ekki séu nema
örfá dæmi um að sjónvarps-
stöðvar hafi beðið fjárhagsleg-
an skaða vegna þessarar hreyf"
ingar og það vegna þess að aug-
lýsendur hættu á síðustu
stundu við að verja fjármagni
til sýninga á þáttum af því að
þeir voru feimnir við byssu-
leikina og töldu að þættirnir
sýndu of mikið ofbeldi. „Venju-
lega er hægt að selja öðrum
auglýsingatímann, en það verð-
ur að gera það fljótt og á lægra
verði af því að viðskiptavimur-
inn veit að við erum í vand-
ræðum“, segir hann.
„Oft eru ákvarðanir um aug-
lýsingar í sjónvarpi teknar með
aðstoð tölvu á þann veg að hún
upplýsir hve margir horfi á
viðkomandi dagskrárefni og
hvort áhorfendaskarinn sé sam-
ansettur á þamn veg, sem aug-
lýsandinn óskar. Tölvan getur
ekki dregið skýra línu milli of-
beldis, of mikils ofbeldis og
bullandi ofbeldis. En allt bend-
ir til þess að fleiri mannverur
séu farnar að glíma við skil-
greininguna, bæði 'hjá sjón-
varpsstöðvunum, auglýsinga-
stofunum og auglýsendunum.
Það er í sjálfu sér góðra gjalda
vert.“
<1
áwíftogdreir
Reiknað er með að hagnaður útvarps- og sjón-
varpsstöðvanna ABC, CBS og NBC í Bandaríkjun-
um á sl. ári verði umtalsverður en í fyrra voru öll
met slegin. Eftirspurn eftir sjónvarpsauglýsinguin
fer vaxamdi en í heild eru þær háðar ströngum
tímatakmörkunum. Auglýsingagjöld hafa hækkað
um 15—20% á milli ára. Talið er að þessi fjölmiðl-
unarfyrirtæki hafi hagnazt um 224 milljónir dollara
í fyrra en það er 35,4% meira en 1975.
Viðskipti Sovétríkjanna við umheiminn munu í
framtíðinni fara að miklu leyti fram í nýr.ri bygg-
ingu, sem verið er að reisa í Moskvu, Alþjóðavið-
skiptamiðstöðinni. Þar verða skrifstofur 200 fyrir-
tækja, tvö hótel, verzlanir, skemmtistaðir og funda-
salir. Bandarisk fyrirtæki hafa selt tæki iyrir 60
milijónir dollara i þessa nýju byggingu. Frumteikn-
ingar voru gerðar 1973. Flestir kaupsýslumenn af
Vesturlöndum verða að vinna á hótelherbergjum
sínum í Moskvu og mjög erfitt er að finna skrif-
stofuhúsnæði þar. aIIs munu t.d. 22 bandarisk fyr-
irtæki halda uppi starfsemi i Moskvu. Nýja við-
skiptamiðstöðin mun auðvelda þeim störfin.
— • —
Útlitið er mjög ólíkt hjá tveim helztu framleið-
endum dýrra bíla í Evrópu. Hjá Mercedes Benz rík-
ir bjartsýni og er ráðgert að smíða 400 þús. bíla
á þessu ári. Framleiðslan í fyrra var 375 þús. bílar
sem var 17% aukning frá fyrra ári. Hljóöið er ann-
að í forráðamönnum Volvo í Gautaborg. Einn þriðji
af afkastagetu verksmiðjanna er ekki nýttur og á
fyrra helmingi ársins er fyrirhugað að draga enn úr
framleiðslunni í Svíþjóð. Frestað hefur verið áform-
um um að hefja bílaframleiðslu í nýrri verksmiðju,
sem stendur næstum fullgerð í Chesapeake í Virgin-
íu í Bandaríkjunum. Sala Volvo árið 1976 var
miklu minni en spáð hafði verið.
— • —
Vöruútflutningur Norðmanna árið 1976 nam um
41 milljarði norskra króna og er það 81,3% aukn-
ing miðað við árið á undan. Ef olía, skip og olíu-
borpallar e,ru undanskilin nemur aukningin 12,5%
að íheildarupphæð 30 milljarðar. Olíuútflutningur-
inn nemur 7 milljörðum króna eða um 17% af
heildarútflutningi Norðmanna. Þessi tala hækkar á
yfirstandandi ári og síðar, þegar Statfjordolíulinda-
svæðið verður tekið í notkun.
— • —
Alþjóðleg matvælasýning verður haldin í Bella
Center í Kaupmannahöfn dagana 29. marz til 3.
apríl. Nefnist hún „Food Fair 77“ og er ein stærsta
af svæðisbundnum sýningum, sem haldnar eru í
Evrópu. Má að því leyti bera hana saman við Sial í
París og Anuga í Köln. Síðasta sýning af þessu tagi
var haldin 1975 og voru þátttakendur um 7000 frá
27 löndum. Sýnd voru matvæli frá öllum heims-
hornum.
PV 2 1977
19