Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1977, Side 63

Frjáls verslun - 01.02.1977, Side 63
Hótel IVfælifell Hugmyndin að byggja nýtt 35 manna hótel á Sauðárkróki Bílaleiga tekur til starfa — Hótelið er mjög lítið, ekki nema 7 herbergi, og síðan herbergi úti í bæ. Það' gefur því auga leið að hér er upp pantað meira og minna allan ársins hring. Samt er það í minnsta lagi til að bera sig, en með mikilli vinnu og sparsemi í rekstri er hægt að láta enda ná sarnan en væri hægt að hafa það mjög þokkalegt ef gistirými væri töluvert miklu meira því í raun og veru bætist ekki við neinn umframkostnaður þar sem starfsfólkið gæti annað fleiri herbergjum. Hótelið er með vínveitingaleyfi, sem hefur úrslitaþýðingu um að reksturinn rúllar. Hér hafa ekki skapast nein vandræði af barnum og engar kvartanir borist frá bæjarbúum, mér vitanlega. Það er Guðmundur Tómas- son eigandi Hótels Mælifells á Sauðárkróki sem hefur orðið og veitir okkur innsýn í rekst- ur lítils 'hótels úti á landi. Guð- mundur keypti hótelið og tók formlega við því um áramótin 75—76. En þar sem Guðmund- ur hefur mikla trú á Sauðár- ki’ók sem ferðamannabæ er hann með ýmis áform á prjón- unum þar að lútandi. NÝTT HÓTEL — Það er hugmyndin að byggja 35 herbergja hótel hér á Sauðárkróki með góðum grillstað og 250 manna veit- ingasal sem hægt verður að skipta í smærri einingar fyrir fundi og minni einkasam- kvæmi. Þetta er bráðnauðsyn- legt fyrir bæinn því þetta hótel er orðið gamalt og lélegt og geysidýrt að gera endur- bætur á því. Ég er búinn að fá lóðina að því marki að hún er merkt sem slík á nýju mið- bæjarskipulagi, sem verið er að hanna, og er ætlunin að byrja framkvæmdir að ein- hverju leyti á næsta ári ef fjármagn fæst. — Ég álít að Sauðárkrókur geti orðið mikill ferðamanna- bær. Sauðárkrókur hefur margt til að bera umfram aðra bæi Norðanlands. Hann er miðsvæðis hér í sýslunni og héðan má skipuleggja skoðun- arferðir vítt og breitt um Norð'- urland, einnig er mjög góð að- staða hér til sjóstangaveiði og Drangeyjarferða fyrir náttúru- Guðmundur Tómasson, hótelstjóri á Sauðárkróki. skoðara. Þegar fer að líða að því að nýja hótelið opnar verð- ur byrjað að s'kipuleggja þess- ar ferðir auk þess sem ég mim opna hestaleigu. Húsið fyrir hestaleiguna er þegar risið en eftir er að útvega hesta sem henta fyrir svona starfsemi. ÁRSHÁTÍÐARGESTIK AÐ SUNNAN? — Yfir vetrarmánuðina gefst fólki kostur á að stunda vetrar- íþróttir 'hér en hér er ágætt skíðaland og nýbúið að taka lyftu í notkun þar. Einnig hef ég hugsað hvort ekki sé hægt að fá hópa úr Reykjavík og annars staðar að af landinu til að halda sínar árshátíðir hérna og yrðu þeir hópar sóttir hing- að þeim að kostnaðarlausu. Fólkið gæti síðan dvalið yfir helgi sér til hvíldar og ánægju. Um samkeppnina við aðra bæi fyrir norðan sagðist Guð- mundur hvergi vera smeykur. — Mér finnst að heilb.rigð sam- keppni þurfi að vera á milli bæjanna hér á Norðurlandi. Ég mun bjóða upp á ákveðinn pakka sem er gisting í viku, fæði og skoðunarferðir upp á hvern einasta dag þar sem aldrei verður farið á sömu slóðir og tel ég að það hafi ég fram yfir önnur hótel, sem ekki hafa upp á eins fjölbreyttar skoðunarferðir að bjóða. Að lokum vil ég taka það fram að í marsmániuði opna ég bíla- leigu, sem verður rekin í tengsl- um við hótelið. FV 2 1977 65

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.