Frjáls verslun - 01.02.1977, Page 65
Siglufjörður
IVIeð tilkomu skuttogaranna
jókst tiltrú fólksins á staðnum
IVlikil gróska í atvinnuuppbyggingu á Siglufirði
Samtal við bæjarstjórann, Bjarna Þ. Jónsson
— Ég er Reykvíkingur og hef verið hér í tvö og hálft ár. Það er ganian að koma hingað og alveg
ómetanlegt að finna hug fólksins og hvernig allir standa saman um að byggja staðinn upp á
nýjan leik. Að vísu standa mörg gömul hús í vegi fyrir nýjum framkvæmdum því allir vilja fá
lóðir fyrir nýjar atvinnugreinar eða stækka við sig. Það er sárt fyrir marga að sjá hinn gamla
heildarsvip bæjarins breytast en mcnn láta það ekki á sig fá þar sem uppbyggingin situr í fyrir-
rúmi. Þannig mælti hinn ungi bæjarstjóri Siglfirðinga Bjarni Þór Jónsson í viðtali við blaðamann
FV fyrir skömmu cn hann var beðinn að segja hvað helst væri á döfinni í Siglufirði, en eins og
kunnugt er hefur hlaupið mikil gróska í atvinnulíf Siglfirðinga síðustu árin.
Bjarni Þ. Jónsson,
bæjarstjóri.
— Það evu margir hissa á því
að hér skuli vera húsnæðis-
vandamál, þar sem bæjarbúum
fækkaði um þriðjung á 20 ár-
um og lítið var um húsbygg-
ingar. Staðreyndin er sú að
þegar skuttogararnir komu og
atvinnuástand batnaði jókst
bjartsýni fólks á staðnum,
fyrst Siglfirðinga sjálfra sem
fóru að fjárfesta í nýbygging-
um og síðan kom þetta eins og
skriða yfir okkur. Við vorum
mjög illa undir það búnir að
útvega lóðir uindir nýbygging-
ar, en brugðum skjótt við og
fórum að vinna að nýju aðal-
skipulagi fyrir bæinn sem lagt
verður fram á þessu ári. Unnið
er nú að því að þétta byggðina
svo að ekki ber eins mikið á ný-
byggingum eins og þar sem
heilu hverfin rísa. Þá er unnið
að því að fjarlægja þau hús
sem o.rðin eru það illa útlítandi
og fólk treystir sér ekki til að
endurbæta vegna kostnaðar.
HITAVEITA FORGANGS-
FRAMKVÆMD
— Um helstu framkvæmdir
á vegum bæjarins er hitaveitan
númer eitt. Við ráðgerum að
ljúka við tengingu húsa á þessu
ári. Við höfum ekki ennþá
fengið nægilega mikið vatn.
Vatnsþörf bæjarins er 50 sek-
úndulítrar af 67 stiga heitu
vatni eins og nú fæst úr þeirri
borholu, sem gefur mesta
vatnið. Dælt hefur verið úr
þeirri holu í um mánaðartíma,
FV 2 1977
67