Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1977, Page 77

Frjáls verslun - 01.02.1977, Page 77
Ártúnshöfði Þangað sækja um 4000 manns vinnu hjá um 100 fyrirtækjum Ráðgert að Ijúka uppbyggingu hverfisins 1980 Stærsta iðnaðarhverfið, sem risið hefur hér á landi er á Ár- túnshöfða í Reykjavík. Þar starfa nú um 100 fyrirtæki og um 4000 manms sækja þangað vinnu daglega. í stærsta húsinu vinna allt að 500 manns. Á Ár- túnshöfða starfa fjölmargar greinar iðnaðarins við misjöfn skilyrði. Þar hafa risið fyrir- tæki, sem starfa við fullkomn- ustu skilyrði, en einnig fyrir- tæki, sem starfa í lélegum húsa- kynnum og búa við slæma vinnuaðstöðu. Iðnaðarhverfið á Ártúns- höfða takmarkast af Elliðavogi til vesturs, Grafarvogi til aust- urs og Vesturlandsvegi til suð- urs. Fyrirtækin á Ártúnshöfða hafa myndað með sér félags- skap, Ártúnshöfðasamtökin, í þeim tilgangi að koma fram gagnvart opinberum aðilum, þegar um er að ,ræða sameigin- lega hagsmuni félagsmanna, einnig að stuðla að samstöðu um fegrun og snyrtingu, hrein- læti og almenna reglusemi á félagssvæðjnu og að gæta hags- muna félagsmanna gagnvart utanaðkomandi aðilum. Formaður Ártúnshöfðasam- takanna er Kristmundur Sörla- son, framkvæmdastjóri Stál- vers hf. og Stjörnustáls hf. Stálver hf. framleiðir götuljósa- stólpa fyrir Reykjavíkurborg og Rafmagnsveitu ríkisins svo og sjávarísvélar svo eitthvað sé nefnt. Stjörpustál hf., er fyrir* tækjasamsteypa, sem rekur verktakastarfsemi og innan þess starfa 350 manns. FJÖLBREYTT STARFSEMI UM 100 IÐNFYRIRTÆKJA Til þess að gefa mynd af hvers konar fyrirtæki starfa á Ártúnshöfðanum má nefna vél- smiðjur, járnsteypur, bílaverk- stæði, trésmiðjur, blikksmiðjur, steypustöðvar. Þar fer einnig fram gas- og súrefnisfram- leiðsla, rafmótoraframleiðsla Sambandsins og Sementsverk- smiðja ríkisins er þar með af- greiðslu, svo og er þar malbik- unarstöð. Póstur og sími er þar með starfsemi svo og Vegagerð ríkisins og á Ártúnshöfðanum er einnig birgðastöð Reykja- víkurbo.rgar fyrir hitaveituna og rafmagnsveituna svo og sorpeyðingarstöð. Einstakling- ar reka einnig ýmis konar starfsemi þar s.s. saumastofur, leirbrennslu og verktakastarf- semi. Eina menntastofnun má finna meðal allra þessara iðn- aðarfyrirtækja, en það er Tækniskóli íslands. LOKIÐ VIÐ UPPBYGGINGU HVERFISINS UM 1980 Uppbygging iðnaðarhverfis- ins á Ártúnshöfða hófst 1967— 68. Fyrstu fyrirtækin hófu þar starfsemi sSna um 1970, en það voru Stálver hf. Miðfell og ís- tak. Reyndar hóf Byggingar- iðjan þar starfsemi sína áður en uppbygging hverfisins hófst. Enn eru mörg hús í smíðum og ekki er áætlað að lokið verði við uppbygginguna fyrr en um 1980. Hverfið er skipulagt þannig, að fyrirtaéki í svipaðri fram- leiðslu, eða á líku sviði eru á sama svæðinu. Þannig eru t.d. fyrirtæki í þungaiðnaði á einu svæði, bílaiðnaðurinn á öðru, húsgagnaframleiðsla og tré- smiðjur á því þriðja og loks léttari iðnaður. Sagði Kristmundur, að það hefði háð mörgum fyrirtækjun- um, hve strangar reglur hefðu verið settar varðandi hæðir húsa, því það hefði ekki hentað öllum fyrirtækjum. FRÁGANGUR GATNA OG LÝSING Á VIÐUNANDI HÁTT EITT HELSTA HAGS- MUNAMÁL ÁRTÚNSHÖFÐA- SAMTAKANNA Kristmundur sagði, að for- ráðamenn fyrirtækjanna hefðu séð sig tilneydda til að stofna Ártúnshöfðasamtökin til að koma fram fyrir hönd þessa stóra iðnaðarhverfis vegna sameiginlegra hagsmunamála. Eitt helsta hagsmunamál samtakanna nú er að gengið verði frá götum og aðkeyrslum og þær malbikaðar og komið verði upp lýsingu á viðunandi hátt. Sagði hann, að ekkert hefði verið gert af hálfu borg- aryfirvalda til að koma þessum málum í rétt horf. Annað hagsmunamál félags- ins eru strætisvagnaferðir inn i hverfið, en nú er um 10—12 mínútna gangur frá næstu strætisvagnastoppistöð inn í hverfið. Stefnt er að því að koma upp sameiginlegri vörslu í hverfinu, hvað snertir um- gengni, fegrun og sérstaka næt- urvörslu. Að lokum sagði Kristmund- ur að takmarkið væri að byggja upp stórt og fallegt iðnaðar- hverfi, sem aðlaðandi væ.ri fyr- ir fólk að starfa í. FV 2 1977 79

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.