Frjáls verslun - 01.02.1977, Page 81
bandsins, og Bifreiðaverkstæði
SÍS.
Jötunn hf. framleiðir raf-
mótora, en einnig er við fyrir-
tækið almenn deild, sem annast
rafmótoraviðgerðir og skipavið-
gerðir. Þar fara einnig fram
viðgerðir á þeim heimilistækj-
um, sem SÍS hefur flutt inn.
Starfsmenn Jötuns hf. eru 23.
Á Bifreiðaverkstæði SÍS er
rekið almennt hifreiðaverk-
stæði, standsetningarverkstæði
og bílaryðvörn. Húsnæðið er
1250 m- og starfa þar yfir 20
bifvélavirkjar.
Glit
Glit hf. framleiðir leirmuni
svo sem matar- og kaffistell,
vasa, platta, öskubakka, skálar
og ýmis konar listmuni. Sífellt
er verið að gera framleiðsluna
fjölbreyttari með hví að fram-
leiða nýjar gerðir Ieirmuna, og
eru nú í verksmiðjunni fram-
leidd um það bil 100.000 stykki
af hinum ýmsu leirmunum. Sér-
hæft fólk er notað til að lianna
nýja framleiðslu.
Glit hf. er að Höfðabakka 9,
en í það hús flutti fyrirtækið
árið 1971. Grunnflöturinn er
2200 m-, en í húsinu er fram-
leiðsla Glits, lager og skrifstof-
ur. AIIs starfa 34 hjá fyrirtæk-
inu.
1/3 hluti framleiðslunnar er
beinn útflutningur, 1/3 hluti er
sala til erlendra ferðamanna
hér á landi og 1/3 fer í hinár
ýmsu verslanir í landinu.
• • •
Byggingafélagið
Armannsfell
Byggingafélagið Ármannsfell
hf. flutti að hluta til í húsið
Funahöfða 19 fyrir þremur ár-
um. Grunnflötur hússins er
1600 m-, en 'þar er birgðastöð,
trésmíðaverkstæði, skrifstofur
ásamt teiknistofu og þar fer
einnig fram ýmis konar for-
vinnsla. í trésmiðjunni eru
framleiddir gluggar, innrétting-
ar og hurðir í byggingar, sem
fyrirtækið reisir.
Nú er Byggingafélagið Ár-
mannsfell m. a. að byggja fjórð-
ungssjúkrahús á Isafirði, geð-
deild Landspítalans, sambyggð
23 íbúða að Hæðargarði í
Reykjavík og nú er einnig ver-
ið að hefja byggingu fjölbýlis-
húsa á Isafirði.
54 vinna hjá Byggingafélag-
inu Ármannsfelli hf.
• • •
lYfiöfell og lYiat-
stofa lYliðfells
í tveimur húsum, 400 og
600 m2, við Funahöfða 7 reka
Matstofa Miðfells: Matarbakkar
frá matstofunni.
fyrirtækin Miðfell hf. og Mat-
stofa Miðfells s.f. starfsemi
sína. Fyrirtækin hafa aðskilinn
rekstur, en starfsemin hófst á
árinu 1973.
Miðfell h.f. er almennt verk-
takafyrirtæki á sviði jarðvinnu,
gatnagerðar og malbikunar auk
ýmis konar byggingarstarfsemi.
Hjá fyrirtækinu starfa 40-200
manns eftir aðstæðum og verk-
cfnum.
Á Matstofu Miðfells s.f. er
hins vegar búinn til niatur,
sem settur er í sérstaka ein-
angraða bakka. 20 fyrirtæki
kaupa mat hjá Matstofunni og
er búinn til matur fyrir ,um það
bil 800 manns. 12 manns vinna
hjá Matstofu Miðfells s.f.
Miðfell h.f. er nú að hefja
framkvæmdir að nýrri bygg-
ingu á lóðinni Funahöfða 9.
FV 2 1977
83