Frjáls verslun - 01.08.1977, Qupperneq 12
Frumvarp til fjárlaga
Aætlaðar tekjur ríkisins af
innflutningi um 25 milljarðar
Búizt við innflutningi um 6500 bíla. Gert ráð fyrir fullum afköstum
■ álverinu. Ríkið býst við 9,8 milljarða hagnaði Á.T.V.R.
í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1978, sem nýlega var lagt fram,
er greinargerð um einstaka tekjuliði ríkissjóðs. Er þar gerð grein
fyrir áætluðum beinum sköttxun, gjöldum af innflutningi og
seldri vöru og þjónustu. Fer hér á eftir yfirlit yfir nokkra þessa
tekjuþætti samkvæmt upplýsingum með fjárlagafrumvarpinu.
Gjöld af innflutningi nema
25.447 m.kr. í áætlun 1978 eða
20,4% iheildartekna ríkissjóðs,
og er það nær sama hlutfall og
í fjárlögum 1977. Til saman-
burðar má nefna, að á árinu
1972 námu gjöld af innflutn-
ingi 30,5% af heildartekjum.
Sé litið aftur til áranna 1968
og 1969, þ.e, fyrir gildistöku
aðildarsamnings íslands að
EFTA og síðar viðskiptasamn-
ingsins við EBE, voru þessi
gjöld um 37% ríkisteknanna.
TOLLTEKJUR
Almennar tolltekjur ríkis-
sjóðs eru nú áætlaðar 16.314
m.kr. í ár eða rúmlega 18%
meiri en í f járlagaáætlun, eink-
um vegna mun meiri innflutn-
ings en miðað var við í fjár-
lagaáætlun, ekki sízt innflutn-
ings hátollavöru. í áætlun
næsta árs er gert ráð fyrir 7—
8% aukningu almenns vöruinn-
flutnings að magni í samræmi
við hinar almennu forsendur
tekjuáætlunarinnar um breyt-
ingar þjóðarútgjalda. Búast
má við, að innflutningsverð í
erlendri mynt hækki um 7 % að
meðaltali á árinu 1978, en mið-
að við gengi í september 1977
svarar það til um 12% verð-
hækkunar í krónum. Samsetn-
ing innflutnings eftir tollflokk-
um er hér áætluð að mestu ó-
breytt frá árinu í ár, en á þessu
ári hefur mikið verið flutt inn
af ýmiss konar hátollavörum
og reynist tollhlutfall í ríkis-
sjóð því sennilega nokkru
hærra en 1976. í frumvarpinu
er reiknað með tollalækkun í
ársbyrjun 1978 samkvæmt gild-
andi tollskrá, og er tolltekju-
tap ríkissjóðs af þeim sökum
talið nema um 1.600—1.800 m.
kr. 1978, Tolltekjur ríkissjóðs
1978 eru nú áætlaðar 17.730
m.kr. eða tæplega 9% meiri en
á þessu ári. Almennur vöruinn-
flutningur er á hinn bóginn
talinn aukast um nær 20% að
verðmæti en vegna tollalækk-
unarinnar lækkar tollhlutfall
innflutningsins úr 16,5% 1977
í rúmlega 15% 1978.
INNFLUTNINGSGJALD AF
BIFREIÐUM
Innflutningsgjald af bifreið-
um er áætlað 2.100 m.kr. í ár
og er það 500 m.'kr. umfram
fjárlagaáætlun vegna mun
meiri bílainnflutnings en reikn-
að var með. í ár er talið, að
alls verði fluttir inn um 6.500
bílar, en bílainnflutningur var
afar lítill árin tvö á undan,
3.350 bílar 1975 og 2.755 bílar
1976 samanborið við 8.400 bíla
að meðaltali næstu þrjú árin á
umdan. Á næsta ári er búizt við
svipuðum bílainnflutningi og í
ár og að óbreyttri gjaldskrá og
með tilliti til verðbreytinga má
reikna með, að innflutnings-
gjald af bifreiðum verði um
2.300 m.kr. á árinu 1978.
Innflutningsgjald af benzíni
er í ár áætlað óbreytt frá fjár-
lagatölum eða 2.410 m.kr. Eins
og fyrr segir er í frumvarpinu
gert ráð fyrir, að benzíngjald
verði hækkað verulega undir
lok þessa árs í því skyni að
auka vegagerð. Með hækkun
benzíngjaldsins nú um 15 kr.
pr. lítra er talið, að heildartekj-
ur af benzíngjaldi verði 4.660
m.kr. 1978 eða 2.250 m.kr.
meiri í ár. Er iþá ekki gert ráð
fyrir frekari hækkun benzín-
gjalds á árinu. Gúmmígjald er
áætlað 90 m.kr. á næsta ári.
Af öðrurn aðflutningsgjöld-
um má nefna, að gjald af gas-
og brennsluolíu er áætlað 485
m.kr. á næsta ári og er það 20
12
FV 8 1977