Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 16

Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 16
við leiklhús í grannlöndunum, þar sem rí'kisstyrkur er 80— 90%. Tekjurnar voru áður í formi skemmtanaskatts, en eru nú bein framlög í samræmi við fjárhagsáætlun beint af fjár- lögum. Gífurleg aðsókn hefur verið að leikhúsinu oig undanfarin 5 ár hefur áhorfendafjöldi ekki farið niður fyrir 90 þúsund og allt upp í 100 og 130 þúsund. Það kostar mikið að reka menninigarfyrirtæki sem þetta og ekki má gleyma að nálega 80 % af tilkostnaðinum eru launagreiðslur og í rauninni eru starfsmenn einum þriðja færri hér en við sambærileg hús í Bretlandi, Norðurlöndunum, að ég tali nú ekki um Þýzkaland. MENNINGIN EKKERT SKRAUTBLÓM, SEM ER f ENGUM TENGSLUM VIÐ SLAGÆÐAR ATVINNU- LÍFSINS f sambandi við rekstur leik- hússins þá hefur heyrst sú skoðun að nef fyrir viðskiptum almennt sé höfuðkostur í stjórn leikhússins. Þar hef ég þá skoð- un að það verði algjörlega að haldast í hendur við þekkingu á aðferðum leikhússins sjálfs og verkefnum þess. Oft var rætt um staðsetn- ingu Borgarleikhússins og ég var spurður að því hvar ég teldi að það ætti að standa. Sumum fannst svarið dálítið einkennilegt, er ég sagði að það ætti að standa í næsta ná- grenni við bankana. En með því vildi ég undirstrika að menningin á ekki að vera skrautblóm, sem er í engum tengslum við slagæðar atvinnu- lífsins. Ég var mjög mótfallinn að Borgarleikhúsinu var valin staður í Kringlumýri, ekki vegna staðarins, heldur vegna þess að ég hef bá trú að Reykia- vík þurfi ekki á tveimur mið- bæjarkjörnum að halda. Gamli miðbærinn í kvosinni er ekki lifandi lengur. Þetta stafar af því að lifandi borgarstemning getur ekki skapast af því, að einna helstu tengsl fólksins ut- an heimilanna séu fólgin í því Þjóðleik- húsið tók nýlega í notkun nýjan ljósabúnað. Einn starfs- inanna í ljósa- herberginu er hér við vinnu sína. að draga niður bílrúðu og kall- ast á. KOSTNAÐUR VIÐ HVERJA UPPSETNINGU SKIPTIR MILLJÓNUM KRÓNA En hefur Þjóðleikhúsinu tek- ist að vera á áætlun fjárlaga eða fer það umfram í rekstri? Þessu svaraði Sveinn Einarsson þannig: — Það hefur komið fyrir og það er viðbúið í rekstri sem þessum þar sem vertíðin getur verið upp og niður. Fjár- lagagerð getur ekki staðist hundrað prósent, það er utopia að ímynda sér slfkt. Hins vegar höfum við verið heppin síðustu ár og þess vegna getað verið stolt yfir að standast áætlun. Hvað kostar svo að setja upp einstaka sýningar? Sveinn sagði: — Það er ákaflega mis- jafnt. Óperur, þar sem aðgöngu- miðaverð er hærra eru ákaf- lega dýrar. Hljómsveit, kór og einsöngvarar hleypa kostnað- inum gífurlega upp. Ef margir taka þátt í sýnimgu verður hún dýrari, ef leikmynd er flókin og búningarnir. Þetta er ákaflega misjafnt. Við höf- um haft fyrir sið að gefa ekki upp neinar tölur, þær geta blekkt, en hver uppsetning skiptir milljónum. Sumar sýn- ingar skila því margfalt til baka en aðrar ekki. EKKI HRIFINN AF HEIMSKULEGUM AUGLÝS- INGUM SEM LEIKARAR KOMA FRAM í Fastráðnir leikarar við Þjóð- leikhúsið eru 30, fastráðnir dansarar 10, en 5—10 sömgvar- ar. Félagar í Þjóðleikhúskórn- um eru ek’ki fastráðnir. Fast- ráðnir starfsmenn Þjóðleik- hússins í heild eru um 100 manns, 250—300 hafa laun í hverjum mánuði, en alls um 600 manns hafa einhver laun hjá Þjóðleikhúsinu. Ráðningarform leikara eru tvö. 17 leikarar eru á svokölluðum A samnimgi, sem er til langtíma, en hinir leikararnir svo og 3 leikstjórar eru ráðnir frá ári til árs. Þjóðleikhússtjóri hefur verið settur frá ári til árs. Leikarar hafa einnig umsvif á öðrum sviðum t.d. koma þeir fram í útvarpi, auglýsingum í sjónvarpinu og á skemmtunum. En hvert er álit Sveins Einars- sonar á þessu? — Það er grund- vallarregla að Þjóðleikhúsið á að ganga fyrir. Mér finnst eðli- legt að leikarar komi fram í útvarpi, sjónvarpi, lesi upp á skemmtunum o.þ.h. ef það bitn- ar ekki á starfi þeirra við Þjóð- lei’khúsið. En ég er ekki hrifinn af heimskulegum auglýsingum, sem leikarar hafa komið fram í. Þorri áhorfenda ber þær gjarn- an saman við það hlutverk, sem leikarinn fer með í Þjóðleik- húsinu. Þetta getur spillt fyrir leikaranum ef hann er t.d. að leika í dramatísku verki, ef ekki beinlinis skaðað hann, sagði Sveinn Einarsson að lok- um. 16 FV 8 1977
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.