Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 17
Vörukynning
Vaxandi þátttaka íslenzkra
fyrirtækja í vörusýningum
erlendis
Lmtalsverð aukning sl. tvö ár
Síðastliðin 2 ár hcfur verið
mikil aukning á liátttöku í cr-
lendum vörusýningum, scm Ut-
flutningsmiðstöðin hefur séð
um skipulagningu á. Á fyrri
helming þessa. árs varð engin
breyting á þessari þróun. Or-
sök þessara auknu sýningar-
þátttöku eru bæð'i aukin umsvif
gamalgróinna útflutningsfyrir-
tækja svo og tilkomu nýrra út-
flutningsfyrirtækja. Nú í ha.ust
hafa íslensk fyrirtæki tekið
þátt í eftirfarandi vörusýning-
um.
SCANDINAVIAN MENS-
WEAR FAIR
Þátttakandi af fslands hálfu
í þessari sýningu var prjóna-
stofan Iðunn, sem sýndi herra-
og barnapeysur og var þetta í
þriðja skipti sem þeir taka
þátt í þessari sýningu. Á þess-
um sýningum hafa þeir náð
ágætis viðskiptasamböndum
bæði í Danmörku og í Færeyj-
um.
WORLD FISHING EXHIBI-
TION, HALIFAX
4 íslensk fyrirtæki tóku þátt
i fiskveiðatækjasýningunni
World Fishing Exhibitibn í
Halifax í Kanada dagana 31.
ágúst til 7. sept.
Fyrirtækin sem sýndu voru
Elliði Norðdahl Guðjónsson
h.f., sem sýndi handfæravind-
ur og neta- og línuspil, Hamp-
iðjan sem sýndi net, kaðla og
garn. J. Hinriksson h.f., sem
sýndi toghlera og blakkir og
Sjóklæðagerðin h.f. og Hilda
h.f. sýndu í sameiningu alls
konar sjóklæði. Markmið Sjó-
klæðagerðarinnar og Hildu var
einungis að kynna vörurnar,
athuga hvort þær hentuðu
kanadíska markaðinum, hvort
þær væru samkeppnisfærar og
atihuga með hugsanlega dreifi-
aðila.
Sýningarsvæði íslensku fyr-
irtækjanna var um 80 m- og
var Útflutningsmiðstöðin einn-
ig með sýningarbás, þar sem
gefnar voru upplýsingar um ís-
lenska útflytjendur svo og al-
mennar upplýsingar um ísland.
Sýningu þessa sóttu um
25.000 manns og fjöldi sýnenda
var nær 200 frá 14 löndum.
Árangur af þessari sýningu
var mjög góður. Gerðar voru
margar fyrirspurnir og um-
talsverðar pantanir bárust og
vænta fyrirtækin sér mikils á
næstunni af þessum viðskipta-
samböndum er náðust.
SCANDINAVIAN FASHION
WEEK
7 íslensk fyrirtæki tóku þátt
í sýningunni Scandinavian
Fashion Week í Kaupmanna-
höfn dagana 15.—18. septem-
ber. fslensku fyrirtækin sem
tóku þátt voru Álafoss, Alis,
Hilda, Les-Prjón, Prjónastofa
Borgarness, Röskva og Sam-
bandið iðnaðardeild.
Öll þessi fyrirtæki hafa tek-
ið þátt í vörusýningum erlend-
is áður nema Röskva. Röskva
er tiltölulega nýtt útflutnings-
fyrirtæki, sem selur handprjón
og prjónafatnað prjónaðan í
handprjónavél á íslenskum
heimilum.
Fyrirtækin sýndu öll í sam-
eiginlegri fslands deild sem var
300 m2 og var Útflutningsmið-
stöðin einnig með sýningarbás,
þar sem gefnar voru upplýs-
ingar um íslenska útflytjendur,
iðngreinina, svo og almennar
upplýsingar um ísland.
Að sögn fulltrúa þeirra fyrir-
tækja sem tóku þátt í sýning-
unni virðist sem sala á sýning-
unni hafi verið meiri en búist
var við, einkum þegar haft er
í huga að aðalsölutími til versl-
ana fyrir haust- og vetrarfatn-
að er á vorin og er því einung-
is um sölu á fatnaði að ræða
sem hægt er að afgreiða strax
eða til afhendingar á næsta ári.
IGEDO INTERNATIONAL
MODEMESSE, DÚSSELDORF
í IGEDO sýningunni tóku nú
þátt Álafoss, Hilda, Iðnaðar-
deild Sambandsins og Les-
Prjón. Þátttaka í þessari
sýningu er nú orðin nokkuð
reglubundin og var þetta
þriðja IGEDO sýningin sem
íslenskir aðilar taka þátt í á ár-
inu. Aðsókn að sýningunni, og
árangur íslensku fyrirtækjanna
virtist nú vera minni en oft áð-
ur.
FV 8 1977
17