Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 19
í viðræðum við bróður sinn Bandaríkjaforscta. Hinar myndirnar er,u feknar af Billy sem skemmti-
krafti en þá er hann í essinu sínu.
við höfnum 25 tilboðum á móti
hverju einu, sem við tökum.
Ég geri ekkert, sem er pólitískt
í eðli sínu og ég vinn lítið fyrir
góðgerðarstofnanir. Sum góð-
gerðarfélög vinna merkilegt
starf, en stai'fi maður fyrir eitt
þeirra, er maður næstum skuld-
bundinn til að gera eitthvað
fyrir þau öll. En í sannleika
sagt held ég, að sum þessara
samtaka séu braskfyrirtæki. Eg
veit reyndar að svo er.
Sp.: — Hefur þér nokkurn
tíma verið boðið að koma
fram erlendis?
Sv.: — Ég hef tvisvar farið
þeirra erinda til Kanada. Ég fór
á heimsmeistarakeppnina i
magasveiflu sem háð var í Van-
couver af því að mér fannst
það hljóma skemmtilega. Ég
var dómari og áttaði mig ekki
á að þetta var háalvarleg sam-
keppni. Keppendurnir höfðu
æft sig allt árið og þeir komu
úr öllum áttum.
Sp.: — Ætlarðu að halda á-
fram í skemnit'anaiðnaðinum
allan tímann, sem bróðir þinn
verður í Hvíta húsinu?
Sv.: —Ég hef ekki beint hug-
leitt það. Hitt get ég sagt ykk-
ur að ég er yfirleitt bókaður
tvo mánuði fram í tímann.
Sp.: — Hefur það aldrei flog-
ið að þér, að þetta framferði
geti komið illa við forsetann?
Sv.: -—- Við ræðum það aldrei.
Ég segi honum ekki hvernig
hann eigi að gegna skyldum
sínum í Hvíta húsinu og hann
segir mér heldur ekki fyrir
verkum. Ég fæ miklu fleiri lof-
samleg bréf um þetta en nei-
kvæð.
Sp.: — Hvernig svararðu á-
sökunum um að þú sért að gera
forsetaembættið þér að féþúfu?
Sv.: — Þær dynja stöðugt á
mér. Ég svara því þannig, að
enginn hafi sakað mig um
gróðabrall, þegar ég var að
reka áróður fyrir foi’setakosn-
ingarnar.
Sp.: — Þykir þér miður, þeg-
ar fólk segir svona lagað?
Sv.: — Nei.
Sp.: — Hefurðu misst eitt-
hvað af vinum hér í Plains
vegna þessa?
Sv.: — Alveg örugglega.
Fólkið í Plains má ekki vamm
sitt vita. Og eins og þið vitið
er ég umdeildur. Ég hef glatað
nokkrum vinum í Plains vegna
þess að ég segi meiningu mína.
Sp.: — Hefur frægð bróður
þíns eða athafnir sjálfs þíns
haft áhrif á rekstur linetubú-
garðs fjölskyldunnar?
Sv.: — Við höfum tapað
nokkrum viðskiptavinum. Það
á þó fi’ekar rætur að rekja til
deilnanna um hvort svei'tingj-
ar ættu að fá aðgang að kirkj-
unni okkar. Ég blandaði mér
aldrei í það mál, en Jimmy var
á bólakafi í því allt frá byrjun.
Við misstum líka viðskiptavini,
þegar svertingjar voru látnir
ganga í sömu skóla og hvítir.
Þá sendi ég börnin mín í einka-
skóla. Hér er aðskilnaður kyn-
þáttanna einna mestur af öllum
svæðum í Bandaríkjunum.
Hvað verzluninni viðkemur,
þá sýnist mér mikil gróska
framundan i sölu á hnetum til
fei’ðamanna, sem leið eiga hér
um.
Sp.: — Hvernig gengur benzín-
salan og verzlunin við hana?
Sv.: — Brúttótekjur verða
um hálf milljón dcllara í ár eða
meira. Við seljum í kringum
tvö þúsund öskjur af bjór á
þessu ári.
Sp.: — Hvernig er það í sam-
anburði við útkomuna fyrir
tveimur eða þremur árum?
Sv.: — Brúttótekjurnar voru
sennilega um 100 þús. þá en ég
gaf álíka mikið af bjór og ég
seldi. Hagnaðarprósentan hefur
þó fallið, því að vinnulaun hafa
hækkað og tryggingarnar líka.
Ég hef orðið að fjórfalda á-
byrgðartrygginguna hjá mér
vegna alls túristastraumsins,
sem kemur til mín.
Sp.: — Hvað gerirðu við alla
pcningana, sem þú hefur í tekj-
ur núna?
FV 8 1977
10