Frjáls verslun - 01.08.1977, Qupperneq 27
Agrip af próf riigerft :
Starfshættir stjórnenda
— eftir Björn Leví Itirgisson, viðskiptafræöing
Athugun sú, er greint verður frá hér á eftir, mun vera sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis. Til-
gangur hennar er að reyna að benda á leiðir og ráð til að stjórnendur megi nýta tíma sinn sem
bezt. Einnig er tilgangurinn að athuga, livort einhver skyldleiki sé milli starfshátta íslenzkra
stjórnenda og starfsbræðra þeirra erlendis.
Grundvöllurinn að vali fyr-
irtækja í athuguninni er úrtak
Þjóðhagsstofnunarinnar, sem
notað hefur verið við gerð iðn-
aðarskýrslna stofnunarinnar.
Öll fyrirtækin starfa að ein-
hverju leyti við iðnað, þó að
stór hluti starfsemi nokkurra
þeirra sé verzlun. Valin voru
fimmtán fyrirtæki, úr stærðar-
flokki III, en það eru fyrirtæki,
sem hafa fleiri en 1680 sly.sa-
tryggðar vinnuvikur samkvæmt
skýrslum Hagstofu íslands. Öll
fyrirtækin eru staðsett í
Reykjavík. Þrjátíu og þrjú fyr-
irtæki eru í þessum flokki í
Reykjavík. Þegar undanskilin
höfðu verið þau fyrirtæki, sem
eru ríkisrekin og þau sem skáru
sig úr heildinni vegna stærðar
sinnar voru eftir tuttugu og níu.
Af þeim voru valin fimmtán
af handahófi. Þó réðist valið að
nokkru eftir því, hversu auð-
velt var að ná sambandi við
stjórnendur fyrirtækjanna. Til
dæmis voru nokkrir þeirra, sem
upphaflega voru valdir, erlend-
is og því breyttist úrtakið lítil-
lega.
Athugunin fór þannig fram
að lagður var listi með tólf
spurningum fyrir efsta stjórn-
anda hvers fyrirtækis. Spurn-
ingunum var svarað samkvæmt
eigin mati stjórnendanna. Eng-
ar tímaathuganir voru gerðar,
þannig að svör varðandi tíma-
ráðstöfun eru áætlanir og ber
því að taka svörin með fyrir-
vara. Einn þeirra stjórnenda,
sem var í úrtakinu hafði þó
framkvæmt tímaathugun og
voru svör hans byggð á þeirri
athugun. Allir stjórnendurnir
að einum undanskildum, skil-
uðu svörum.
LENGD
VINNUVIKUNNAR
Meðaltal unnins tímafjölda á
viku hjá þeim þrettán stjórn-
endum, sem svöruðu fyrstu
spurningunni var 49,8 tímar.
Könnun í Bandaríkjunum, gerð
af tímaritinu „Fortune“ árið
1956 sýndi, að bandarískir
stjórnendur vinna fleiri tíma í
viku en íslenzkir starfsbræður
þeirra, eða 57—60 tima í viku.
Athugun Luijk í Hollandi sýndi
að vinnuvika stjórnenda þar
var 60 tímar eða meira.
Stjórnendur þeir, sem Carlson
athugaði í Svíþjóð unnu einn-
ig mjög mikið, eða 8V2 til
11V2 tíma á dag auk helgar-
vinnu. Það hefur hins vegar
sýnt sig, bæði samkvæmt könn-
un Burns og einnig samkvæmt
könnun, sem Rosemary Stewart
framkvæmdi 1967, að vinnu-
vika brezkra stjórnenda er mun
styttri en í áðurgreindum lönd-
um, aðeins 42—44 tímar.
Greinilegt er, af ofangreind-
um tölum, að stjórnendur þurfa
mjög oft að leggja á sig lengri
vinnuviku, en undirmenn
þeirra, til að ýta undir vöxt og
viðgang fyrirtækja sinna.
Peter F. Drucher minnist á
það í bók sinni ,,The Effective
Executive“, hve stutt vinnuvika
brezkra stjórnenda er miðað við
vinnuviku bandarískra stjórn-
enda. Hans skoðun er sú, að
stjórnendur þurfi að leggja á
sig langan vinnudag til að fyr-
irtæki þeirra staðni ekki eða
dragist aftur úr öðrum í tækni-
þróun og öðrum mikilvægum
atriðum. Brezkir stjórnendur
hafi hins vegar viljað njóta
mikils frítíma, eins og undir-
menn þeira. Drucher álítur að
þetta sjónarmið sé ein af orsök-
um mjög hægfara þróunar og
jafnvel stöðnunar margra
brezkra fyrirtækja eftir síðari
heimsstyrjöldina og eigi sinn
þátt í því, að Bretland hefur
di’egist aftur úr öðrum löndum
í tækniþróun o.fl.
Islenzkir stjói'nendur virðast
því leggja á sig nokkru lengri
vinnudag en þeir brezku, en
komast þó ekki nálægt hol-
lenzkum og bandarískum starfs-
bræðrum sínum.
Dreifingu á tímafjölda hjá
einstökum stjórnendum má sjá
á mynd 3.
VINNUSTAÐUR OG
TRUFLANIR
Þó að oft sé erfitt að ná sam-
bandi við stjórnendur fyrir-
tækja og fólk láti stundum orð
um það falla að þeir séu aldrei
við, þá kemur annað í ljós, þeg-
ar svör við fjórðu spui’ningu á
listanum eru athuguð. Á mynd
fjögur sjáum við, hve miklum
tíma hver stjórnandi eyðir að
meðaltali innan fyi’irtækisins.
Enginn eyðir þar minna en
60% af vinnutímanum og mest
allt að 94% (mynd 4). Að með-
altali eyddu stjórnendur 81%
af tíma sínum innan eigin fyr-
irtækis. Samkvæmt niðurstöð-
um Rosemary Stewart eyddu
brezkir stjórnendur nokkru
meiri tíma innan eigin fyrir-
tækja eða 91%.
En hve miklu ráða stjórnend-
urnir um það, hvernig þeir
nota þann tíma ,sem þeir dvelja
FV 8 1977
27