Frjáls verslun - 01.08.1977, Blaðsíða 31
Ágrip af prófritgerð
Fjölskyldufyrirtæki og
kynslóðaskipti
— eftir Skúla Kjartansson, viðskiptafræðing
Vi& fráfall ciganda, sem liaft hefur með höndum stjórn fyrirtækis síns, minnka þær tekjur, sem
fjölskyldan liefur haft af rckstrinum, verulega. Erfitt getur reynst að finna hæfan eftirmann og
Iaunakostnaðiur hans kemur beint niður á tekjum fjölskyldunnar. Hjá smærri fyrirtækjum, sem
hafa aðeins gefið af sér nægjanlegar tekjur til þess að framfleyta fjölskyldunni sómasamlega, verð-
ur lítið eftir.
Sé sú leið valin, að selja fyr-
irtækið, dreifast greiðslurnar á
nokkur ár, jafnvel áratug, bæði
vegna skattaástæðna og vegna
þess, að fjármagn til fyrirtækja-
kaupa liggur sjaldan á lausu.
Þessa peninga er erfitt að binda
þannig að þeir geti gefið af sér
öruggar og jafnar tekjur. í
slíku verðbólguþjóðfélagi, sem
hér er myndu afborganirnar
minnka mjög í raunvirði, eftir
því sem liði á tímabilið. Fjöl-
skyldan hefði þannig sæmileg-
ar ,,tekjur“ meðan verið væri
að greiða fyrirtækið upp, en
síðan féllu þær niður að mestu.
Sá möguleiki er þó fyrir hendi
að gera framfærslusamning við
söluna.
Við söluna gæti töluverður
hluti söluhagnaðarins orðið
tekjuskattsskyldur. Söluhagn-
aður reiknast sem mismun-
ur á söluverði og bókfærðu
virði fyrirtækisins, en ekki því
virði, sem erfðafjárskattur hef-
ur verið greiddur af. Með því
að semja um greiðslu eftirlauna
til maka fyrri eiganda, mætti
lækka söluverðið til skatts.
# Almannatryggingar
Ein mikil-
vægasta
ákvörðun
stjórnand-
ans er að
velja sér
eftirmann.
Reynslan
sýnir að
stjórnand-
inn er
driffjöðrin
í fyrirtæk-
inu eða
þegar
verst
gcngur,
veikasli
hlekkur-
inn.
— Almannatryggingar eru
skyldutryggingar á vegum hins
opinbera og greinast þannig frá
hinni frjálsu vátryggingarstarf-
semi, sem rekin er af einstökum
vátryggingarfélögum. Núgild-
andi lög um almannatrygging-
ar voru sett 20. april 1971, og
hefur þeim verið breytt lítillega
siðan, auk þess að upphæðum
hefur verið breytt alloft. Til al-
mannatrygginga teljast: I. Líf-
eyristryggingar, sem taka með-
al annars til ellilífeyris, ekkju-
bóta og ekkjulífeyris. II. Fjöl-
skyldubætur, III. Slysatrygg-
ingar og IV. Sjúkratryggingar.
• Ellilífeyrir
— Rétt til ellilífeyris eiga
þeir, sem eru 67 ára eða eldri
FV 8 1977
31