Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 33

Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 33
og hafa átt lögheimili hér á landi minnst 3 ár. Fullan líf- eyri fá þeir sem hafa átt lög- heimili hér að minnsta kosti 40 ár. Frestun á töku ellilífeyris hækkar hann í stigum. Þannig fær lífeyrisþegi, sem rétt á á fullum lífeyri, sem tekur hann strax við 67 ára aldur 23.919 kr. á mánuði, en sé lífeyririnn tekinn fyrst við 72 ára aldur er hann 39.960 kr. á mánuði. Frest- un fram yfir 72ja ára aldur veldur ekki frekari hækkun- um. Lífeyrir hjóna, sem bæði fá lífeyri er 90% af lífeyri tveggja einstaklinga, og einnig er heim- ild til þess að greiða maka elli- lífeyrisþega allt að 80% ein- staklingslífeyris. Þannig yrði lífeyrir hjóna, ef bæði tækju hann fyrst við 67 ára aldur, 43.054 kr. á mánuði og í hinu tilvikinu 71.928 kr. Með breytingarlögum 21. maí 1974 var ákveðið að greiða elli- iífeyrisþegum uppbót á lífeyr- inn, en fyrir var heimild til þess í lögum. Séu aðrar tekjur ellilífeyrisþega ekki meiri en 120.000 kr. á ári, er greidd upp- bót, kr. 20.992 á mánuði. Þann- ig fengi einstaklingur, sem tæki ellilífeyri fyrst 67 ára, 44.911 kr. á mánuði og hjón 80.840 kr., en einstaklingur. sem tæki líf- eyrinn fyrst 72 ára fengi 60.952 kr. á mánuði og hjón kr. 109.714. Heimild er til þess að greiða ellilífeyrisþega barna- lífeyri, kr. 12.239, með hverju barni, sem hann hefur á fram- færi sínu undir 17 ára aldri. # Ekkjubætur og lífeyrir — Sú kona ,sem á lögheimili hér á landi og verður ekkja inn- an 67 ára aldurs á rétt á bótum í 6 mánuði eftir lát manns síns, kr. 29.970 mánaðarlega. Hafi hún barn yngra en 16 ára á framfæri sínu, á hún ennfrem- ur rétt á bótum í 12 mánuði í viðbót, kr. 22.473 mánaðar- lega. Þegar ekkjubætur falla nið- ur, á sú kona sem var orðin 50 ára við lát manns síns rétt á lífeyri til 67 ára aldurs. Upp- hæð hans miðast við aldur kon- unnar, þegar lífeyrisréttur stofnaðist, og er til dæmis 11.960 kr. á mánuði við 50 ára aldur og kr. 23.919 við 60—-66 ára aldur. Ekklar njóta ekki samsvarandi réttinda. 0 Sjúkra- og slysatryggingar — Tryggingarnar greiða sjúkrahjálp, dagpeninga, ör- orkubætur og dánarbætur. Sjúkrahjálp er í flestum tilvik- um greidd að fullu, en annars að % hlutum. Lífsnauðsynleg lyf eru greidd að fullu, önnur ýmist að 3A hlutum eða helm- ingi, og ferðakostnaður til læknis að hálfu til % hlutum. Dagpeningar greiðast í allt að 52 vikur. Þeir eru 1.289 kr. á dag auk 277 kr. á hvern heimil- ismann, sem viðkomandi hefur á framfæri sínu. Örorkubætur og örorkulífeyrir eru samsvar- andi lægsta ellilífeyri og sam- svarandi álag greiðist einnig. Dánarbætur til hvors foreldris eru 374.521 kr. Slysatryggingar ná til slysa við vinnu og fleira, en atvinnu- rekendur geta sleppt trygging- unni fyrir sig, maka sinn og börn yngri en 16 ára. Sjúkra- trygginga njóta allir. # Lífeyrissjóðirnir — í dag eru flestar stéttir skyldaðar til að vera í lífeyris- sjóði. Iðgjöld sjóðanna eru 10% af launum viðkomandi sjóðfé- laga, ýmist heildarlaunum, svo sem í Lífeyrissjóði Sjómanna, eða af grunnlaunum, svo sem í Lífeyrissjóði E. f. Lífeyrissjóð- irnir veita sjóðfélögum sínum rétt til ellilífeyris, örorkulífeyr- is, lífeyri til maka og barna við fráfall og flestir lífeyrissjóðir stunda lánastarfsemi til sjóðfé- laganna. Ellilífeyrir miðast oftast við eitthvað meðaltal launa sein- ustu starfsár viðkomandi. Greiðist síðan ákveðinn %- hluti þessa meðaltals, miðað við hve lengi viðkomandi hefur verið sjóðfélagi, þó þannig að réttur til ellilífeyris stofnast ekki fyr en við 65 ára aldur og eftir 10 ára iðgjaldagreiðslu. Nú orðið er lífeyririnn þó oft miðaður við gildandi laun í sömu grein og viðkomandi vann í, vegna verðbólguáhrifa. Þann- ig eiga alþingismenn rétt á allt að 70% þinglauna miðað við laun hverju sinni, en sjómenn allt að 50% þeirra meðaltals- launa, sem þeir þénuðu sein- ustu 10 starfsár sín. Samtök at- vinnurekenda reka ekki eigin lífeyrissjóð. # Frjálsar tryggingar — Svokölluð áhættulíftrygg- ing er eina form frjálsra trygg- inga, sem notað er hérlendis að nokkru marki, í því skyni að tryggja afkomuna, auk sjúkra- og slysatrygginga. Þá er fjöl- skyldu hins tryggða greidd á- kveðin upphæð við fráfall hans, en tryggingin fellur svo úr gildi við ákveðinn aldur trygg- ingartaka, til dæmis 65 ára ald- ur. Tryggingarupphæðin og ið- gjöldin eru yfirleitt vísitölu- bundin. Iðgjaldaupphæðin miðast við aldur hins tryggða þegar trygg- ingin er tekin. Miðað við 5 milljón króna útborgun við dauða, er iðgjald fyrir mann, sem hefur tekið trygginguna 25 ára gamall, um 17 þúsund kr. á ári. en um 26 þúsund fyrir annan, sem hefur tekið hana 40 ára. # Stjórnandinn — Fyrirtækið stendur og fell- ur með stjórnandanum. Nær undantekningarlaust má rekja það til stjórnandans ef reksturinn mistekst. Þó að það sé ekki alltaf beint stjórn- FV 8 1977 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.