Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 47

Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 47
í skinnaverksmiðjunni. Upphaf verksmiðjurekstursins á Akureyri var gfærurotun vegna útflutnings á þessu hráefni. Nú er það fullnýtt í tízkufatnað, sem saumaður er til útflutnings. hátt. Þá var einnig keypt prjónastofa Ásgríms Stefáns- sonar. sem síðar var nefnd fata- verksmiðjan Hekla. Eftir stríð- ið jukust umsvifin þannig mjög mikið. F.V.: — Hvaða fyrirtæki hcyra nú undir iðnaðardeild- ina? Hjörtur: — Það eru ullar- verksmiðjan Gefjun, skinna- verksmiðjan Iðunn, skóverk- smiðjan Iðunn, fataverksmiðjan Hekla og svonefndur Hug- myndabanki sem er staðsettur á Akureyri. Síðan er það sæng- urgerðin á Sauðárkróki, fata- verksmiðjan Höttur í Borgar- nesi, saumastofa Gefjunar, verzlunin Torgið og Jótunn hf. i Reykjavík. Einnig ber að telja nokkrar sameignarverksmiðjur eins og prjónastofuna Dyngju á Egilsstöðum, sem við eigum að % móti Kaupfélagi Héraðsbúa. Efnagerðina Sjöfn og Kaffi- brennslu Akureyrar eigum við til helminga á móti Kaupfélagi Eyfirðinga. Nýjasta fyrirtækið er svo Plasteinangrun h.f. á Akureyri, en í því eigum við 45.5% af hlutabréfum, Kaupfé- lag Evfirðinga annað eins og einstaklingar 9,5%. Plasteinangrun hefur starfað um nokkurra ára bil og fram- leitt einangrunarplast og plast- poka. en nú hefur orðið um- svifamikil aukning á fyrirtæk- inu. bar sem bað hefur byrjað framleiðslu á alls konar veiðar- færum. F.V.: — Hve margir starfa hjá bessum fvrirtækjum og hvert or framleiðsluverðmæti hjá þeim? Hjörtur: — Hjá öllum þess- um fyrirtækjum starfa samtals 920 manns en hjá fyrirtækjum, sem iðnaðardeildin á ein, geri ég ráð fyrir að starfi um 750 manns. Framleiðslan árið 1976 var 4,7 milljarðar króna og við búumst við að aukningin verði um 50%, á þessu ári í krónum talið. Utflutningurinn var í fyrra um það bil einn þriðji af heildarframleiðslunni. F.V.: — Af hverju hefur Ak- ureyri orðið miðstöð iðnaðar- starfsemi Sambandsins í stað þess að hún dreifðist' víðar um landið? Hjörtur: —- Ástæðan er sú, að stofninn var fyrir hendi á Akureyri og óneitanlega er viss hagkvæmni af því að hafa þetta allt á sama stað. Það minnkar flutningskostnað, sem er mikill hér á landi. Ullarverksmiðjan Gefjun framleiddi garn og dúk og skinnaverksmiðjan Iðunn vann skinnin til frekari með- ferðar, þannig að mönnum fannst rétt að hafa úrvinnsluna á sama stað. F.V.: — Er mikil ásókn í það af liálfu annarra bygfirðarlaga að fá verksmiðiur iðnaðardeild- arinnar veistar í síuu umdæmi? Hjörtur; — Já, mjög mikil. Sannleikurinn er sá. að varla iíður sú vika, að ekki sé beðið um að við setjum upp iðnað einhvers staðar á landinu. Þess- ar beiðnir hafa komið frá mörg- um stöðum í hverri einustu sýslu landsins. F.V. :— Hvað hafa menn þá íhuara. Fleiri prjónastofur? Iljörtur: — Óneitanlega er mikið um beiðnir um sauma- eða prjónastofur. Það er á viss- an hátt afar skiljanlegt. því að tilkostnaðurinn við að setja upp saumastofur er lítill. Vélakostn- aðurinn er lágur og fjármagns- þörfin lítil. Það er fyrst og fremst launakostnaðurinn og hráefniskostnaður, sem skiptir máli. Þess vegna hafa augu manna svo mjög beinzt að saumastofunum. Hins vegar er takmarkað, hvað hæg-t er að bæta við af saumastofum og spurning, hvort ekki verði að tryggja betur stöðu þeirra, sem þegar eru starfandi áður en ráð- izt verði í að setja upp fleiri stofur. F.V.: — Hvernig sýnist þér út'lit fyrir rekstur sauma- og prjónastofanna á næstu miss- erum eða allra næstu árum? Hjörtur: — Útlitið er mjög alvarlegt eins og er. Á þessu ári höfum við orðið fyrir geysi- legum áföllum, stærri og meiri en nokkru sinni á einu ári svo lengi sem ég man. Það kann að vera, að árið 1966, sem var mjög erfitt íslenzkum iðnaði, komist eitthvað til jafns við þetta. Framtíð íslenzks iðnaðar er undir því komin ,að við getum hamið verðbólguna, sem hér geisar og háir allri framleiðslu svo gífurlega mikið, að því verður tæpast lýst. Til dæmis hefur rekstrarkostnaður hækk- FV 8 1977 47

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.