Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 60
Hellissandur:
Atvinnulíf snýst fyrst og
fremst um fisk
— enginn framleidsluiðnaður, en stærsta framkvæmdin er
bygging grunnskóla
Neshreppur utan Ennis, sem
nær yfir þéttbýlisstaðina á Rifi
og Hellissandi, er með skrif-
stofur sínar í Félagsheimilinu
Röst. Þar hitti Frjáls verslun
svei'tarstjórann, Samúel Olafs-
son og féllst hann fúslega á að
segja lesendum blaðsins frá at-
vinnulífi í hreppn.um.
— Þar sem atvinnulíf hér
snýst fyrst og fremst um fisk er
sennilega best að ég byrji
á fiskvinnslufyrirtækjunum,
sagði Samúel. — Stærst á því
sviði er Hraðfrystihús Hellis-
sands, sem aðallega er með
frystingu á fiski, en verkar dá-
lítið í salt og skreið. Fyrirtækið
hefur starfað í um það bil 30
ár. Það er í nokkuð gömlu hús-
næði, en góðu og vélakostur
hefur verið endurnýjaður reglu-
lega. Það eru um 30—50 manns
sem vinna hjá Hraðfrystihús-
inu en framkvæmdastjóri þess
er Rögnvaldur Ólafsson. Önn-
ur fiskverkunarfyrirtæki eru
öll smærri í sniðum. Kristján
Guðmundsson er með saltfisk-
verkun á Rifi og er með 10—15
manns í vinnu. Jökull h.f. heitir
saltfiskverkun á Hellissandi
sem er með svipuðu fyrirkomu-
Samúel Ólafsson, sveitarstjóri.
lagi. Framkvæmdastjóri þess er
Skúli Alexandersson. Stærsti
útgerðaraðilinn í hreppnum er
Skarðsvík h.f. sem gerir út sam-
nefndan bát. Það er stærsti bát-
urinn á staðnum og hefur verið
með aflahæstu bátum á landinu
undanfarin ár. Framkvæmda-
stjóri Skarðsvíkur er Svein-
björn Benediktsson en skip-
stjóri á Skarðsvík er Sigurður
Kristjánsson. Sigurður Ágústs-
son h.f. í Stykkishólmi hefur
verið með útgerð hér og rækju-
vinnslu. Einnig hefur verið
unnið dálítið af skel hjá fyrir-
tækinu. Þar vinna 20—30
manns. Búrfell h.f. hefur rekið
lítið frystihús á Rifi. en er nú
með saltfiskverkun eingöngu.
ENGINN
FRAMLEIÐSLUIÐNAÐUR
— í hreppnum er enginn
framleiðsluiðnaður, sagði Sam-
úel, en nokkrir iðnaðarmenn
vinna við byggingariðnað. Svo
er hér bifreiðaverkstæði sem
Einar Sigurðsson rekur og þjón-
ar það staðnum og nærsveitum.
— Af verslunarfyrirtækjum
er stærst útibú Kaupfélags
Borgfirðinga sem er með nokk-
uð alhliða verslun. Fyrst og
fremst er það matvara sem
verslunin er með, en einnig
nokkuð af búsáhöldum og fatn-
aði. Einnig er hægt að fá pant-
að frá Borgarnesi allt sem nöfn-
um tjáir að nefna. Hjá kaupfé-
laginu eru 5—6 starfsmenn.
Hafnarbúðin á Rifi sem Sigurð-
ur Jóhannesson á er svipað fyr-
irtæki með matvöru, fatnað og
60
FV 8 1977