Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 63

Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 63
Ólafsvík Með elztu löggiltu verzlunar- stöðum á landinu — Gerð hefur verið 10 ára áætlun um gatnagerð Það mun nýlega hafa verið uppgötvað, að Ólafsvík er einna elsti löggiltur verslunarsfaður á landinu. Erlendir kaupmenn sem notuðu Rifsós sem höfn urðu að flytja sitarfsemi sína þaðan til Ólafsvíkur. Kröfðust þeir þess af Kristjáni 5. Danakonungi að hann löggilti staðinn og gerði hann það með bréfi dagsettu 26. mars 1687. Alexander Stefánsson heitir sveitarstjórinn á þessum gamla verslunarstað. Frjáls verslun hitti hann fyrir á vistlegum skrifstofum sveitarfélagsins og bað hann að segja frá athafna- lífi á staðnum. — Helsta atvinnufyrirtækið hér er Hraðfrystihús Ólafsvíkur h.f., sagði Alexander. — Það tók til starfa um 1939 og byrj- aði þá með kolafrystingu. í dag er verið með alhliða fiskvinnslu hjá fyrirtækinu, frystingu, sölt- un, skreiðarverkun, fiskimjöls- verksmiðju o.s.frv. Þá er Hrað- frystihúsið aðili að útgerð. Það á hlut í fyrirtækinu Björn og Einar s.f. sem gerir út bátana Garðar I og II, hlut í bát sem heitir Gunnar Bjarnason og nýjasta viðbótin er hlutur í út- gerðarfélaginu Lóndröngum, sem nýlega hefur keypt skut- togarann Lárus Sveinsson. Hraðfrystihúsið keypti árið 1970 annað frystihús á staðnum sem heitir Hólavellir. Meðan húsakynni Hraðfrystihússins voru byggð upp var hús Hóla- valla notað, en það er ekki í rekstri núna. Hjá fyrirtækinu vinna frá 80 til 150 manns eftir því hve mikill afli berst. Fram- kvæmdastjóri er Guðmundur Björnsson. 65% VINNUAFLS VIÐ SJÁVARAFLA Önnur stór fiskverkun í Ól- afsvík er Hrói h.f. sem er salt- fiskverkun. Það fyrirtæki hefur um árabil verið stærst í land- inu á sínu sviði ef miðað er við útflutning. Hrói gerir einnig út 150 tonna bát sem heitir Fróði. Starfsmenn eru 50—60 en aðal- eigandi er Víglundur Jónsson. Bakki s.f. er önnur saltfisk- verkun á staðnum. Hún er ekki með útgerð en töluvert mikla framleiðslu. Þar starfa einnig 50—60 manns. Stakkholt h.f. er fyrirtæki sem hefur verið með útgerð á 4 bátum. Það ætlar nú einnig að hefja saltfiskverkun. Stakk- holt á hlut í síldarsöltunarstöð á Hornafirði og stunda bátar þeirra síldveiðár þaðan. — Það er talið að um 65% af vinnuafli hér starfi við sjávar- afla, sagði Alexander. — Og hér er mikið unnið eins og sjá má á tölfræðilegum upplýsing- um fyrir árið 1975. Þá voru brúttótekjur á hvern framtelj- anda hér 24% hærri en meðal- tal á Vesturlandi og 18% hærri en landsmeðaltal. Útflutnings- verðmæti sem sköpuðust í Ól- afsvík voru þá 1,1 milljarður, eða um milljón á hvern ibúa. FÁ IÐNFYRIRTÆKI — Iðnfyrirtæki eru ekki mörg hér í Ólafsvík, sagði Alex- ander. — Fyrst má telja Brauð- ÚtfliUtningsverðmæti sem sköp uðust í Ólafsvík 1975 voru 1,1 milljarður eða um milljón kr. á hvern íbúa. FV 8 1977 63

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.