Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 67
„Ekki allur vinningur
fólginn I því að
verzla ■ Reykjavík44
secjir Vigfús Kr. Vigfússon sem hefur
á boðstólum vörur, sem eru talsvert
ódýrari en í höfuðborginni
I versluninni Vík í Olafsvík hifti Frjáls verslun fyrir eigandann
Vigfús Kr. Vigfússon, sem verslað hefur með byggingavörur í 6
ár. — Eg hóf þennan rekstur í gömlu verslunarhúsi sem Kaup-
félagið Dagsbrún notaði áður og er nú orðið vísir að byggðasafni,
sagði Vigfús. — Nú er ég með verslunina í nýju verslunarhúsi
sem við byggðum 5 saman, en ég var sjálfur byggingameistari
að húsinu. Þetta m,un vera eitt stærsta verslunarhús úti á landi
scm einstaklingar taka sig saman um að byggj.
svolítið með rör og fittings,
því menn frá okkur hafa gjarn-
an farið í pípulagningar þegar
á hefur þurft að halda.
VIÐSKIPTIN VIÐ BÁTA-
FLOTANN
— Viðskipti okkar eru aðal-
lega við bátaflotann og fisk-
verkunarstöðvar sagði Hrefna.
— Eins og er starfa 5 menn hjá
okkur við þessa viðgerðarþjón-
ustu, en þegar mest var um að
vera hjá okkur um 1965, þá
voru þeir 13. Samdrátturinn í
þessu stafar bæði af því að yf-
irleitt er minna um að vera
hér núna og af því að yfirleitt
eru tæki og vélar betri en var.
En við erum að vona að hér
séu að byrja nýir uppgangs-
tímar með komu nýs skuttog-
ara og viðskiptin fari þá að
aukast á ný.
Sindri hf. hefur verið með
köfunarþjónustu allt frá því að
Hrefna og systkini hennar tóku
við fyrirtækinu. — Það er
bróðir minn sem sér um þá
hlið starfseminnar, sagði
Hrefna, — en bæði hann og
sonur 'hans eru kafarar. Það
eru alltaf talsverð not fyrir
þjónustu kafara, sérstaklega á
vetrarvertíð og hafa þeir einn-
ig farið nokkuð um nágrennið.
Hins vegar er orðið nokkuð um
að bátarnir séu með eigin köf-
unarbúnað svo það dregur úr
þessari starfsemi líka.
VANTAR VÉLAR
— Ég vildi gjarnan reyna að
breyta rekstrinum á einhvern
hátt til að ná honum upp
úr öldudalnum, sagði Hrefna.
Hins vegar er ekki búið að sjá
út leiðir til þess. Okkur hefur
dottið í hug að fara út í ein-
hverja nýsmíði, en til þess
vantar okkur vélar. Ef við ætl-
um okkur að bæta við vélum
þyrftum við að stækka hús-
næðið. Stækkun yrði aftur á
móti illframkvæmanleg vegna
þrengsla á lóðinni. Svo það má
sjá að ýmis ljón eru í veginum
sagði Hrefna Bjarnadóttir að
lokum.
Verzlunin Vík, Ólafsvík:
Vigfús Kr. Vigfússon.
í húsinu er nú auk verslunar
minnar útibú Landsbankans,
Grillskálinn og brauðgerð. Þeg-
ar byggingu 1. hæðar var lokið
seldum við byggingarréttinn á
2. hæðinni til Sjóbúða h.f Það
fyrirtæki byggði síðan aðstöðu
til hótelreksturs fyrir sjómenn
og aðkomumenn sem vinna hér.
Þar er gistiaðstaða fyrir 70-80
manns og er yfirleitt fullskipað
á vertíðum. Útgerðarmenn og
fiskverkunarfyrirtæki eiga
þetta saman og útvega sínu
fólki herbergi gegn ákveðnu
gjaldi. Á sumrin er þarna
greiðasala og gisting fyrir
ferðamenn.
SELUR VINNUFÖT
— Svo við snúum okkur aft-
ur að Versluninni Vik, sagði
Vigfús, — þá var það upphaf-
lega hugmyndin að versla ein-
göngu með byggingarvörur og
ýmsar smærri útgerðarvörur. f
fyrstu gekk þetta vel en síðan
fór að koma samdráttur í söiu
á byggingarvörum. Þá fór ég
meira út í sölu á vinnufatnaði.
Þegar ég byrjaði var ég einn
FV 8 1977
G7