Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 79
landsbyggðinni í sumar við góð-
ar undirtektir. Þá sýnir Þjóð-
leikhúsið um þessar mundir
nýtt leikrit eftir Pétur Gunn-
arsson, Spilverk þjóðanna o.fl.,
en það heitir Grænjaxlar og er
sýnt í skólum, sem vilja fá það
til sýninga. Hefur fjöldi skóla
pantað sýninguna og mælist sú
nýbreytni vel, að unnt er að fá
heimsóknir leikflokka.
Askur á Laugavegi 28:
“Viljum aðlaga okkur
að þörfum þessa
umhverfis,,
Veitingastofan Askur hefur
opnað nýjan veitingastað á
Laugavegi 28 og er hann tals-
vert frábrugðinn Ask á Suður-
lanidsbraut, en hann var opn-
aður 2. sept. 1966. Nýi staður-
inn var opnaður 23. sept. s.l. I
spjalli við Magnús Björnsson
veitingamann í Aski kom fram
að matseðillinn verður á báðum
stöðunum með svipuðu sniði, en
aðstaðan er allt önnur á nýja
staðnum fyrir þá sem vilja
borða í rólegheitum. Askur á
Suðurlandsbraut starfar áfram
sem hraðafgreiðslumatstaður
en á Laugaveginum er veit-
ingasalur með þægilegri og
mjög smekklegri aðstöðu.
— Nýi staðurinn, sagði Magn-
ús, — er fyrst og fremst hugs-
aður fyrir þarfir nágrennisins,
umferðina hér um slóðir og það
fólk sem rekur sín fyrirtæki
hér í kring. Það er t.d. mikið
af hjónum sem eiga sín smá-
fyrirtæki hér í kring og þau
koma gjarnan í morgunkaffi og
oft í hádegismat, jafnvel kvöld-
mat í rólegheitum tvisvar til
þrisvar sinnum í viku. Við höf-
um orðið vör við að margt sama
fólkið kemur á föstum mat-
málstímum en vegfarandinn
kemur um miðjan dag á bæjar-
rölti sínu. Við viljum aðlaga
okkur að þörfum þessa hverfis.
Útsendingar með mat verða
áfram frá Suðurlandsbraut,
nema í nágrenni við Ask á
Laugaveg. Askur á Suðurlands-
braut er betur útbúinn til af-
greiðslu út í bæ og þar er betri
pökkunaraðstaða. Magnús kvað
Veitingastofa Asks á Laugaveginum er hin vistlegasta í alla staði.
þá þjónustu Asks hafa verið
mikils metna.
Á matseðlinum í Aski eru
26 fastir réttir auk heitra og
kaldra samloka og hamborg-
ara, en alls eru þó 150 réttir
sem gestir geta fengið. Þá hef-
ur Askur á Laugavegi sérstak-
an hádegisverð og einnig sér-
stakan kvöldverð. Kvað Magn-
ús það fyrirkomulag mjög vin-
sælt.
— Við seljum allt kjöt eftir
vigt, sagði Magnús, — og ann-
að í einingum þannig að fólk
getur skipt upp fæðunni eins
og það vi'll. Þannig getur fólk
í rauninni keypt nákvæmlega
það sem það ætlar að borða.
IMýja kökuhúsið:
I kaffisopann við
Austurvöll
Nýja Kökuhúsið opnaði í
sumar kaffi- og veitingastofu í
ísafoldarhúsunum við Austur-
völl og hefur starfsemin gengið
mjög vel, enda er boðið upp á
vænlegustu veitingar með kaff-
inu í hlýlegum og fallegum
veitingasal. Nýja Kökuhúsið
hefur á boðstólum margs kon-
ar kruðirí, öll venjuleg brauð,
bæði smurt og ósmurt og að
sjálfsögðu kaffi og sitthvað
fleira sem rennur ljúflega með
krásum staðarins.
í Nýja Kökuhúsinu er boðið upp á vænlegustu veitingar.
FV 8 1977
79