Frjáls verslun - 01.08.1977, Blaðsíða 83
sömu peningaupphæðirnar.
Þess vegna eru tölvukaup ekki
eins þungur fjárhagsleguv
baggi og þau voru á fyrstu ár-
unum.
— Þýðir þetta, að þið hafið
selt vel?
— Viðskiptin hafa gengið
alveg prýðilega, takk fyrir.
— Sem þýðir hvað margar
Burroughs-tölvur?
— Við erum með kring um
45 vélar úti núna og átta eru
að bætast við fram að áramót-
unum, þar af er ein svonefnö
B 80, sem er geysilega kröftug
tölva í minni hópnum. Þessi
B 80 getur keyrt þrjú verkefni
í einu og er með skermum og
diskum og forritunarmálin,
sem eru skrifuð á hana, eru
cobol og RPG 2. Auk þess er
hún með spegilminni, virtual
memory, eins og það heitir á
fagmálinu.
— Þessi fyrirtæki, sem
skipta við ykkur. Eru þau af
einhverri einni gerð eða.. .
— Nei. Það er ekki hægt að
segja það. Tölvur virðast henta
öllum stærðum og gerðum fyr-
irtækja. Það er bara að finna
réttu tölvuna.
Annars má ef til vill tala um
fyrirtækjahóp, sem nýlega er
orðinn tölvumabkaður, en það
eru frystihúsin. Við höfum selt
fjórar tölvur til frystihúsa og
erum nú búnir að koma okkur
upp stöðluðum kerfum fyrir
frystihúsaiðnaðinn.
— Þú sagðir áðan, að það
væri bara að finna réttu tölv-
una. Hvað þarf ég að hafa í
huga, þegar ég hygg á tölvu-
kaup?
— í fyrsta lagi veltir þú því
fyrir þér, hvað tölva getur gert
fyrir þig, sem þú ekki getur
sjálfur. Síðan er að at'huga,
hvað mikið hún getur létt und-
ir með þér í starfinu og hvaða
gagn þú hafir af þeim upplýs-
ingum og upplýsingahraðan-
um, sem hún býður upp á. Svo
er náttúrulega spurningin um
það, hvað tölva sparar þér mik
ið í peningum. Þegar þú ert bú-
inni að leggja þetta allt saman
niður fyrir þér, þá er fljótfund-
in sú tölva sem hentar þér
bezt.
— Seljið þið eingöngu eða
leigið þið út tölvur?
— Við leigjum ekki út tölv-
ur, en við erum bæði með
beina sölu og leigukaup.
— Hvort er algengara?
— Tvímælalaust bein sala,
því íslendingar eru farnir að
hugsa um vexti og verðbólgu,
en leigukaupin fara fram í er-
lendum gjaldmiðli.
Hins vegar stofnuðum við um
síðustu áramót systurfyrirtæki
ásamt endurskoðumiarfyrirtæk-
inu N. Mancher & Co; Tölvu-
miðstöðina. Þetta er þjónustu-
miðstöð fyrir þá, sem ekki hafa
þörf fyrir stöðuga tölvunotkun
og hafa ekki efni á að eiga
tölvur sjálfir, en þurfa að láta
vinna einstök verkefni fyrir
sig. Við byrjuðum þarna með
tvær tölvur og aðsóknin er
slík, að við erum nú að bæta
við einnd stórri.
— En nú er ekki nóg að selja
bara og selja. Hvað með við-
hald og viðgerðir?
— Við erum með viðhalds-
og viðgerðarþjónustu og einnig
kerfisaðstoð og forritun. Einn-
ig aðstoðum við viðskiptavin-
ina við uppsetningu og undir-
búning, en það er í mörg horn
að líta áður en tölvan sjálf er
tekin í gagnið.
Hjá okkur starfa tíu manns;
fimm kerfisfræðingar, þrír við-
gerðarmenn og svo eru tveir á
skrifstofunni.
Markaðsþáttur FBJÁLSBAB VEBSLUNAB kynnir vörur og vörumerki.
Birtir ítarlegar, áreiðanlegar og tæknilegar upplýsingar, sem gefa kaupendum
meiri valkosti.
Markaðsþáttur FBJÁLSBAB VEBSLUNAB — ný aðferð, sem skilar árangri.
FBJÁLS VEBZLUN — kynningardeild — Ármúla 18.
FV 8 1977
83