Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 86

Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 86
AUGLÝSING VÉLADEILD SÍS, RAFIVIACIMSDEILD: IViargvíslegar skrifstofuvélar — frá General, Hugin og Smith Corona m.a. Véladeild Sambandsins, raf- magnsdeild er nú að hefja inn- flutning á General reiknivélum frá Japan og elektróniskum búðakössum frá Hugin í Sví- þjóð. Rafmagnsdeildin selur margvíslegar skrifsf'ofuvélar eins og t.d. rafmagnsritvélar og ljósritunarvélar. Fluttar verða inn þrjár gerðir af General reiknivélum, sem allar eru tæknilega frábrugðn- ar hver annarri, en þær upp- fylla i fyllsta máta þær kröfur, sem hægt er að gera til nútima reiknivéla. Teknika 2104 er ein- föld margföldunarvél með minnum, Teknika 2001P er með strimli og Teknika 2106 er með strimli og ljósaborði og hefur svokallaðan No print rofa, þannig að unnt er að nota hana án þess að nota strimilinn. Verð er mjög hagstætt miðað við eiginleika. Sambandið hefur undanfarin ár boðið upp á mekaniska búða- kassa frá Hugin. Nú er Hugin að koma á markaðinn með elek- tróniska. búðakassa og koma þeir á markað hér innan skamms. Þessir elektrónisku búða- kassar hafa upp á að bjóða mikla fjölbreytni miðað við það sem áður hefur þekkst. Hraði og öryggi eykst með til- komu þessara búðakassa, og siðast en ekki sist er verðið mjög hagstætt. Smith Corona ljósritunarvél- in SCM 142 er ein nýjasta og fullkomnasta gerð ljósritun- arvéla sem komið hafa á mark- að hér. Vélin er með vökva- kerfi. Allur pappír í Ijósritun- arvélina er á rúllu og alltaf hægt að sníða stærð ljósrits eftir stærð frumritsins. SCM getur ljósritað allt að 50 eintök á mínútu og hefur teljara. Pappírinn í vélina er á mjög hagstæðu verði. Eins árs ábyrgð fylgir Smith Corana ljósritun- arvélinni, en hún kostar um kr. 385 þúsund. Coronamatic 7000 rafmagns- ritvélin frá Smith Corona er frábrugðin öðrum ritvélum að því leyti að í henni er lokuð litaborðspóla eða kassetta. Einn- ig er sérstakt leiðréttingaband á kassettu sem er mjög auðvelt í notkun. Sambandið býður einnig Coronamatic Super 12, sem er fullkomin ferðaritvél. 86 FV 8 1977

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.