Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 86
AUGLÝSING
VÉLADEILD SÍS, RAFIVIACIMSDEILD:
IViargvíslegar skrifstofuvélar
— frá General, Hugin og Smith Corona m.a.
Véladeild Sambandsins, raf-
magnsdeild er nú að hefja inn-
flutning á General reiknivélum
frá Japan og elektróniskum
búðakössum frá Hugin í Sví-
þjóð. Rafmagnsdeildin selur
margvíslegar skrifsf'ofuvélar
eins og t.d. rafmagnsritvélar og
ljósritunarvélar.
Fluttar verða inn þrjár gerðir
af General reiknivélum, sem
allar eru tæknilega frábrugðn-
ar hver annarri, en þær upp-
fylla i fyllsta máta þær kröfur,
sem hægt er að gera til nútima
reiknivéla. Teknika 2104 er ein-
föld margföldunarvél með
minnum, Teknika 2001P er með
strimli og Teknika 2106 er með
strimli og ljósaborði og hefur
svokallaðan No print rofa,
þannig að unnt er að nota hana
án þess að nota strimilinn. Verð
er mjög hagstætt miðað við
eiginleika.
Sambandið hefur undanfarin
ár boðið upp á mekaniska búða-
kassa frá Hugin. Nú er Hugin
að koma á markaðinn með elek-
tróniska. búðakassa og koma
þeir á markað hér innan
skamms.
Þessir elektrónisku búða-
kassar hafa upp á að bjóða
mikla fjölbreytni miðað við
það sem áður hefur þekkst.
Hraði og öryggi eykst með til-
komu þessara búðakassa, og
siðast en ekki sist er verðið
mjög hagstætt.
Smith Corona ljósritunarvél-
in SCM 142 er ein nýjasta og
fullkomnasta gerð ljósritun-
arvéla sem komið hafa á mark-
að hér. Vélin er með vökva-
kerfi. Allur pappír í Ijósritun-
arvélina er á rúllu og alltaf
hægt að sníða stærð ljósrits
eftir stærð frumritsins. SCM
getur ljósritað allt að 50 eintök
á mínútu og hefur teljara.
Pappírinn í vélina er á mjög
hagstæðu verði. Eins árs ábyrgð
fylgir Smith Corana ljósritun-
arvélinni, en hún kostar um kr.
385 þúsund.
Coronamatic 7000 rafmagns-
ritvélin frá Smith Corona er
frábrugðin öðrum ritvélum að
því leyti að í henni er lokuð
litaborðspóla eða kassetta. Einn-
ig er sérstakt leiðréttingaband
á kassettu sem er mjög auðvelt
í notkun. Sambandið býður
einnig Coronamatic Super 12,
sem er fullkomin ferðaritvél.
86
FV 8 1977