Frjáls verslun - 01.09.1977, Síða 13
„Flugstöðvarbyggingin á Kejlavíkurjlugvelli er eign varnar-
liðsins. Með samkomulaginu um ajhendinguna 1964 jengum við
aðeins ajnota- og ráðstöjunarrétt yjir byg.gingunni, en ríkissjóður
varð ekki eigandi hennar og hejur ekki orðið síðan.
Þess vegna er jlugstöðvarbyggingin undanþegin jasteignaskatti,
eins og aðrar jasteignir varnarliðsins hér á landi.“
Páll Ásgeir Tryggvason, deildarstjóri varnar-
máladeildar utanríkisráðuneytisins í samtali við
höfund greinarinnar.
skatta, gjöld eða aðrar álögur
hér á landi.
SAMKOMULAGIÐ UM
AFHENDINGU HÓTEL- OG
FLUGSTÖÐVARBYGGINGAR
Samkomulag um afhendingu
hótel- og flugstöðvarbyggingar
varnarliðs íslands til íslenzku
ríkisstjórnarinnar var undirrit-
að 29. maí 1964 og staðfesti
Guðmundur í. Guðmundsson,
þáverandi utanríkisráðherra,
það daginn eftir.
f samkomulaginu segir m.a.:
,,Þetta samkomulag milli ríkis-
Nýi flugturninn í byggingu.
stjórnar íslands, íslenzka utan-
ríkisráðuneytisins og varnar-
liðs fslands fyrir hönd Banda-
ríkjanna, er gert um afhendingu
ábyrgðar á rekstri og viðhaldi
hótel- og flugstöðvarbyggingar-
innar á alþjóðaflugvellinum í
Keflavík frá varnarliði íslands
í hendur ríikisstjórnar íslands“.
Um gildissviðið: „Ofangreind
ábyrgð (þ.e.a.s. að ríkisstjórn
íslands samþykkir að taka í
sínar hendur að fullu ábyrgð á
rekstri og viðhaldi byggingar-
innar, eins og segir framar í
samkomulaginu — Innsk. F.V.)
felur í sér rekstur hótelsins,
rekstur veitingasölu í flug-
stöðvarbyggingunni, að sjá um
vörzlu, ræstingu og skylda
þjónustu í byggingunni allri,
nema í þeim hlutum hennar,
FV 9 1977
sem varnarliðið nýtir eingöngu
í eigin þágu, að sjá um stjórn
á rými í byggingunni, nema
með þeim undantekningum,
sem hér eru sérstaklega til-
greindar, að sjá um viðhald
byggingarinnar, innanhússlagn-
ir og tæki.“
Og skilmálarnir: „Ríkisstjórn
íslands tekur við byggingunni
í núverandi ástandi, en það í
sjálfu sér að ríkisstjórn fslands
veitir hótel- og flugstöðvarbygg-
ingunni viðtöku s'kal á engan
hátt hafa neikvæð áhrif á síð-
ari kröfugerð af hálfu ríkis-
stjórnar íslnads.“
í samkomulaginu segir enn-
fremur, að varnarliðið muni sjá
ríkisstjórn íslands fyrir rat'-
orku, vatni, frárennsli og sorp-
hreinsun gegn ákveðinni
greiðlu, en brunavarnir og
slökkvistörf annist varnarliðið
íslendingum að kostnaðarlausu.
Á þessu samkomulagi var
gerð breyting 24. febrúar 1966,
en hún náði ekki til framan-
greindra atriða.
NESHREPPUR UTAN ENNIS
VILL FASTEIGNASKATTA
AF LÓRANSSTÖÐINNI
Hreppsnefnd Neshrepps utan
Ennis samiþykkti á fundi sínum
18. desember 1970 að krefjast
þess, að byggingar á jörðinni
Gufuskálum verði teknar í fast-
eignamat, svo og jörðin sjálf.
í bréfi utanríkisráðuneytisins
til yfirfasteignamatsnefndar
sem Páll Ásgeir Tryggvasan,
deildarstjóri varnarmáladeild-
ar, undirritar 26. apríl 1971 seg-
ir, að rí'kissjóður hafi aflað sér
á sín.um tíma eignarheimildar
á jörðinni Gufuskálum og af-
hent hana síðan varnarliðinu
til umráða sem samningssvæði,
eins og ráð er fyrir gert í varn-
arsamningi íslands og Banda-
rikjanna.
„Ríkissjóður er því eigandi
jarðarinnar en varnarliðið hef-
ur full umráð hennar. Hins veg-
ar eru allar byggingar, sem þar
voru reistar eftir að svæðið
varð samningssvæði, eign varn-
arliðsins, eða þar til það hverf-
ur af landi brott“. Og síðar í
bréfinu segir: Utanríkisráðu-
neytið getur „ekki haft neitt á
móti því að jörðin Gufuskálar
sé metin til fasteignamats, þar
sem hún er eign ríkisins. Hins
vegar er ráðuneytið því mót-
fallið að eignir varnarliðsins
séu metnar, enda ber varnar-
liðinu ekki að greiða hér
skatta, gjöld eða aðrar álögur.
Virðist eðlilegast að þessar
eignir verði metnar þegar þær
á sínum tíma verða eigndr rík-
issjóðs“.
Og í bréfi dags. 1. júní 1971
gefur Páll Ásgeir Tryggvason
yfirfasteignamatsnefnd sömu
svör varðandi afstöðu ráðuneyt-
isins til fasteignamats á „eign-
um varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli“.
FLUGSTÖÐIN TEKIN UPP
í FASTEIGNAMAT
Með gildistöku nýja fast-
eignamatsins 1972 er flugstöðv-
arbyggingin á Keflavíkurflug-
velli tekin upp í fasteignamat
og ríkissjóður skráður eigandi
hennar. Tilkynning um nýtt
fasteignamat er dagsett 27. nóv.
1972 og virðist fasteignamat á
flugstöðvarbyggingunni ekki
hafa verið kært til yfirfast-
13
L