Frjáls verslun - 01.09.1977, Blaðsíða 29
Viðskiptaþjónusta
„Gíró er greiðslumáti nútímans99
Rætt við Birgi Hermannsson, forstöðumann póstgíróþjónustunnar
— Eg tel að tvímælalaust megi segja að þróunin og reynslan a.f gíró-kerfinu hafi verið góð. Þetta
hefur vaxið jafnt og þétt a.llt frá byrjun 30. apríl 1971 án þess að nokkur risastökk hafi komið í
notkunina, segir Birgir Hermannsson, forstöðumaður póstgírc'lþjónustunnar, í samtali við Frjálsa
verzlun. — Með rcikninga hjá póstgíróstofunni eru nú 2490 aðilar, en í ársbyrjun voru þeir 2.153.
„Það er ekkert sem heitir innistæðuleysi eða yfirdráttarvand-
ræði hjá okkur“, segir Birgir Hermamisson.
— Þannig hefur reikningum
fjölgað jafnt og þétt með viss-
um stíganda þó, en með fjölgun
reikninga fylgir auðvitað tals-
verð fjölgun á millifærslum hjá
okkur og þannig hefur á iþessu
ári orðið 95% aukning í færsl-
um milli reikninga. Það líkar
okkur auðvitað ákaflega vel,
því segja má að það sé hið full-
komna gíró, þegar báðir aðilar
hafa sinn reikning og þjónust-
a.n er fólgin í færslum þar á
milli, sagði Birgir.
— En það er hægt að notfæra
sér gíróið án þess að vera sjálf-
ur með reikning?
— Vissulega. Þess eru ótal
dæmi, að bara móttakandinn
hafi reikning. Slíkt þekkjum
við til dæmis í sambandi við
happdrættismiða líknarfélag-
anna, sem þú getur greitt með
gíróseðli, sem sendur er til þín
með happdrættismiðunum. Nú
símareikningarnir eru gíróseðl-
ar, sem þú getur borgað í póst-
húsum og bönkum án þess að
hafa gíróreikning sjálfur. Einn-
ig er það til, að greiðandi hafi
gírónúmer, en ekki viðtakandi
greiðslunnar, en tveir reikning-
ar og færsla þar í milli er eins
og ég sagði áðan hið fullkomna
gíró, enda er orðið sjálft komið
úr grísku; guros, sem þýðir
hringur.
ÍSLAND EINA LANDIÐ,
ÞAR SEM BANKAR OG
PÓSTUR HAFA SAMSTARF
UM GÍRÓÞJÓNUSTUNA
— Þú minntist áðan á að
hægt væri að borga gíróseðla í
bönkum og pósthúsum. Er slíkt
samstarf ekki sjaldgæft?
— Jú. ísland er eina landið í
heiminum, þar sem samstarf er
milli bankastofnana og pósts-
ins um gíróþjónustu. Erlendis
hafa þessir aðilar hvor sitt gíró,
þótt yfirleitt sé póstgíróið
sterkari aðilinn, þar sem ég
þekki til.
En með þessu samstarfi
hérna er líka unnt að bjóða
upp á meiri þægindi. Ætli af-
greiðslur Pósts og síma séu
ekki um 200 talsins, en með
bönkum og sparisjóðum verða
mögulegir greiðslustaðir á
fimmta hundraðið. Svo eru all-
ir póstkassarnir, því það er auð-
vitað hægt að senda okkur gíró-
seðlana í pósti, og ætli póst-
kassarnir í Reykjavik einni séu
ekki um 100 talsins. Póstkass-
arnir gera það að verkum, að
við getum haldið því fram að
póstgírótþjóniustan sé opin al-
menningi allan sólarhringinn.
EKKERT SEM HEITIR
GÚMMÍTÉKKAR í GÍRÓI
— Nú er gíróþjónustan að
meginþætti flutningur á pen-
ingum. Hvað mcð misnotkun?
— Það er ekkert, sem 'heitir
gúmmítékkur hjá okkur, og því
erum við alveg lausir við inni-
stæðuleysi eða yfirdráttar-
vandamál. Áður en nokkur
greiðsla er færð, er kannað,
hvort innistæða sé á viðkom-
andi reikningi og ef hún reyn-
ist ekki vera fyrir hendi, þá fer
engin greiðsla fram. í þeim til-
fellum hringjum við í reikn-
ingseigandann og látum hann
vita, en það er engin greiðsla
færð fyrr en hann hefur lagt
inn á reikning sinn. Þannig er
enginn möguleiki að svindla á
kerfinu, hvað þetta snertir.
— En ef ég borga nú í banka
eða sparisjóði?
FV 9 1977
29