Frjáls verslun - 01.09.1977, Blaðsíða 51
Mosfellssveit
Veltan hjá Álafossi 2500
milljónir á árinu
Hefur 25 faldast frá árinu 1970.
Rætt við forstjóra Álafoss, Pétur Eiríksson
— Það er bæði kostur og ókostur að reka fyrirtæki hér í sveit, sagði Pétur Eiríksson forstjóri
Álafoss í Mosfellssveit þegar Frjáls verzlun ræ ddi við hann. — Kostirnir við að reka fyrirtæki
hér eru m.a. að hér er miklu rólegra en í Reykjavík, umferðarhávaði er enginn, minna ráp er á fólki,
og hingað kemur ekki fólk nema það hafi eitthv að erindi. Þá er hér nóg land til stækkunar í fram-
tíð'inni og umhverfi er einnig mjög fallegt. Þá er sambúð okkar við sveitarfélagið mjög góð og síð-
ast en ekki sízt þá er stutt í heita. vatnið.
í framhaldi af þessu sagði
Pétur að meðal ókosta við að
reka stór fyrirtæki í Mosfells-
sveit væri að sveitarfélagið
væri ekki enn það stórt, að það
gæti séð verksmiðjunni fyrir
nægu vinnuafli og flestir starfs-
menn fyrirtækisins kæmu því
frá Reykjavík. — Annar mikill
ókostur er hve símaþjónustan
er léleg. Það má segja að frá
kl. 10 á morgnana til kl. 17 á
daginn sé hreint ómögulegt að
ná til Reykjavíkur og er það
mjög alvarlegt fyrir okkur.
Þetta horfir þó til bóta, þar sem
ný símstöð er nú í byggingu
hér.
• Um 300
starfsmenn
Hjá Álafossi starfa nú um
300 manns og er það því með
stærri fyrirtækjum í landinu. í
verksmiðjunni og á skrifstofun-
um í Mosfellssveit starfa um
200 manns, en aðrir starfa í
Reykjavík, og Kópavogi þar
sem Álafoss tók nýja prjóna-
stofu í notkun sl. vetur.
Þegar Pétur var spurður,
hve mikið velta fyrirtækisins
hefði aukist á síðustu árum
Pétur Eiríksson framkvæmda-
stjóri Álafoss.
sagði hann: — Frá því árið
1970 hefur veltan 25 faldast, og
jafnvel þótt maður taki mið af
hinni gífurlegu verðbólgu í
landinu, þá er aukningin engu
að síður mikil, og þó mest nú
síðustu árin. Sem dæmi má
nefna, að á síðasta ári var
heildarvelta fyrirtækisins 1300
millj. kr. en er áætluð 2500
millj. kr. á yfirstandandi ári,
sem er 1200 millj. kr. aukning.
# Fjárfest í nýjum
vélum
Ástæðan fyrir þessari miklu
veltuaukningu er m.a. að á síð-
asta ári fjárfestum við í nýjum
vélum, bættum við prjónastofu
og mikil aukning varð í fata-
útflutningi — en í því sam-
bandi má benda á að við fram-
leiðum aðeins fataefnin sjálfir,
aðrir sjá um saumaskapinn og
við aftur um útflutninginn. Þá
jókst spunaframleiðsla fyrir-
tækisins um 35%.
Álafoss skilaði í fyrra 54
millj. kr. hagnaði, sem þykir
gott á íslenzkan mælikvarða,
og er það eftir skatta og af-
skriftir.
§ Gömul hús há
rekstrinum
Á þessu ári hófum við stækk-
un verksmiðjunnar í Mosfells-
sveit og um áramót á stækkun-
in að vera tilbúin, en það er
1700 fermetra hús.
Það hefur háð okkur að vera
með mikinn rekstur í gömlu
húsunum hér, fyrir neðan, en
þar er fyrst og fremst vefnað-
ur, litun, ullarþvottur, pökkun
og lagerhúsnæði. Við stefmum
nú að því að koma spunadeild-
inni undir sama þak. Húsnæðið
FV 9 1977
51