Frjáls verslun - 01.09.1977, Page 65
SólarfSlma
Tækifæriskort með gömlum
og nyjum myndum
frá Reykjavík
Litskuggamyndir og minjagripir fyrir ferðafólk
meðal framleiðslu Sólarfilmu
Sólarfilma rekur fjölþætta útgáfustarfsemi Iiér á landi. Fyrirtækið er það eina hér sem gefur út
litskuggamyndir, en alls hafa komið á markaðinn um 500 litskuggamyndir, og allar eru meira og
minna á boðstólum nú. Sólarfilma gefur út 183 mism,unandi gerðir af kortum og aldrei fyrr liefur
fyrirtækið látið teikna fyrir sig eins mikið af myndum á jólakort eins og nú fyrir þessi jól, eða alls
25 nýjar myndir. ÖIl jólakprtin eru að þessu sinni unnin innanlands, en ekkert flutt inn.
Á skrifstofu Sólarfilmu: Birgir Þórhallsson og kona hans Anna
Snorradóttir.
Birgir Þórhallsson er annar
eigandi Sólarfilmu, en Snorri
Snorrason flugmaður á fyrir-
tækið að hálfu á móti honum.
Margt fróðlegt um fyrirtækið
kemur fram í þessu viðtali, sem
F.V. átti við Birgi.
Kort með myndum eftir
Jón Helgason, biskup
Um þessar mundir er Sólar-
filma að snúa sér æ meira að
útgáfu tækifæriskorta af fjöl-
breyttari gerð en gert hefur ver-
ið af íslenskum útgefendum hin
seinni ár.
í fyrsta sinn eru nú gefin út
kort með þremur myndum eftir
Jón Helgason, biskup. Myndirn-
ar eru frá Reykjavík um eða
eftir aldamótin síðustu. Sú elsta
sýnir Reykjavík eins og hún
var um 1870, tjörnina, dóm-
kirkjuna og menntaskólann.
Önnur mynd er frá Bankastræti
eins og það leit út 1903 og sú
þriðja sýnir Lækjargötu og
lækinn árið 1894.
Birgir sagði, að ástæðan fyrir
þessari útgáfu væri sú, að Sól-
arfilma væri um þessar mund-
ir að snúa sér að nýju og gömlu
innlendu efni, sem oft á tíðum
kemst ekki fyrir almennings-
sjónir.
Myndir eftir marga íslenska
listamenn á kortum
Jólasveinarnir þrettán, sem
allir þekkja, voru viðfangsefni
Bjarna Jónssonar, myndlistar-
manns, er hann teiknaði ný
jólakort fyrir Sólarfilmu í ár.
Bera jólasveinarnir allir nöfn
þau, sem getið er um í þjóðsög-
unni .
Einnig hafa verið gefin út
jólakort með pennateikningum
eftir Árna Elfar, en það er í
fyrsta sinn, sem Sólarfilma gef-
ur út kort eftir hann.
Ragnar Lár hefur einnig
teiknað nokkrar myndir á kort,
og eru það aðallega myndir af
gömlum húsum í Þingholtun-
um.
Fyrir skömmu komu á mark-
aðinn kort með myndum eftir
Vigdísi Kristjánsdóttur, list-
vefnaðarkonu, og kort með
fuglamyndum eftir Bjarna
Jónsson.
65
FV 9 1977