Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1977, Side 5

Frjáls verslun - 01.10.1977, Side 5
Togarafloti í höfn í Grimsby: Brezkir fiskimenn ætla nú að sækja á ný cg fjarlægari mið, t.d. undan S.-Ameríku. Parliamentary Group og er fyrst og fremst ætlað það hlut- verk að annast samskipti við þingmenn á fslandi og taka þátt í móttöku opinberra ís- lenzkra gesta, er sækja Breta heim. SVARTSÝNN JOHNSON Frank Judd ráðherra talaði í nafni ríkisstjórnar sinnar, er hann ræddi við okkur fyrr þennan sama dag, og gerði þá grein fyrir hinum opinberu sjónarmiðum brezkra stjórn- valda í viðskiptum við íslend- inga út af landhelgismálum. Um James Johnson gegnir öðru máli. Hann talaði út frá eigin sjónarhóli og lýsti eigin skoðun á málunum en hann hefur náið fylgzt með þróun þeirra sem þingmaður og for- maður í fiskveiðimálanefnd þingflokks Verkamannaflokks- ins. Það var á Johnson að heyra, að hanm teldi litlar lí'kur á að nokkurt samkomulag yrði gert við íslendinga úr þessu. Hann sagði, að brezkum ráðamönn- um þætti það miður, að ekkert svar hefði borizt frá Reykjavík um það hvort stjórnvöld þar vildu hefja viðræður og sjá til hvort ekki væri unnt að kom- ast að sameiginlegum niðurstöð- um. Okkur heyrðist þingmaður- inn vera úrkula vonar um að nofckuð gerðist og sagði það al- mennt viðhorf i fiskibæjunum að samningar myndu ekki tak- ast við fslendinga og brezka stjórnin myndi ekki geta feng- ið neinu ráðið um framtíð fiskiveiða Breta við ísland nema fullur vilji væri til sam- komulags af hálfu íslenzkra yfirvalda. SÓTT Á ÖNNUR MIÐ Jöhnson sagði, að atvinnu- leysi væri vaxandi í fiskiðnað- inum í Hull vegna lokunar fiskimiða við ísland en nú væru útgerðarfélögin sem óðast að búa skip til veiða á nýjum og fjarlægari miðum. Það væri ráðgert að senda brezk fiski- skip suður undir Falklandseyj- ar við strendur Argentínu til veiða og eins suður undir Afr- íku. Varðandi veiðar við Arg- entínu sagði Johnson að þær gætu leitt til illinda i samskipt- um við þarlend stjórnvöld en brezk yfirráð á Falklandseyj- um hafa lengi verið deiluefni Breta og Argentínumanna. Það var því á Johnson að skilja, að það viðhorf væri nokkuð áberandi í fiskibæjun- um og hjá forráðamönnum sjávarútvegsfyrirtækjanna, að veiðar við fsland heyrðu for- tíðinni til og því væri ráðlegt að huga að nýjum lausnum á vanda togaraútgerðarinnar og stöðvanna, sem vinna úr hrá- efninu í landi. TELUR AUKNA FJÖL- BREYTNI ATVINNULÍFS ÓHJÁK V ÆMILEG A Johnson er vel kunnugur ís- lenzkum málefnum og hefur kynnt sér uppbyggingu íslenzks efnahagslífs sérstafclega vegna umræðna um landhelgismálin. Hjá honum kom greinilega fram nokkur furða á því, að íslendingar sfculi ekki leggja sig fram um að auka fjöl- breytni í atvinnulífinu i stað þess að vera jafnháðir fiskveið- um og raun ber vitni. Þarna talaði fulltrúi brezka Verfca- mannaflokksins og því var at- hvglisvert að heyra, hve sjálf- sagt og eðlilegt honum fannst að Íslendingar tækju upp sam- starf við erlend stórfyrirtæki um nýjungar í íslenzku at- vinnulífi, ef slík tækifæri byð- ust á annað borð. Einmitt um það leyti, sem við dvöldumst í Bretlandi skýrðu brezkir fjöl- miðlar frá því að samkomulag hefði tekizt um að Ford-verk- smiðjurnar hæfu starfrækslu nýrrar bílaverksmiðju í Wales. Vegna hins ótrygga ástands á brezkum vinnumarkaði und- anfarin ár hefur forráðamönn- um erlendra stórfyrirtækja eins og til dæmis í bílaiðnaðinum ekki þótt beint fýsilegt að ráð- ast í auknar fjárfestingar í Bretlandi. En Henry Ford tók þessa ákvörðun samt og það var tíundað, að Callaghan, for- sætisráðherra, hefði persónu- lega tekið þátt i samningavið- ræðum við Ford. Brezku blöð- in töldu þetta meiriháttar sig- ur fyrir forsætisráðherrann að fá þarnnig erlenda fjárfestingu til að auka atvinnutækifærin í landinu. James Johnson sagðist í allri einlægni hafa áhyggjur af framtíðaruppbyggingu íslenzks efnahagslífs, ef fslendingar ætl- uðu að treysta á sjávaraflann og honum fannst liggja beint við að leitað yrði samstarfs við erlenda aðila um að auka fjöl- breytni í íslenzku atvinnulífi og öryggi þess. fW 10 1977 15

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.