Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Page 13

Frjáls verslun - 01.11.1978, Page 13
\ Markaðshorfur á vestrænum mörkuðum eru nú góðar og er gert ráð fyrir ríflegri aukningu þar á ár- inu, og búist er við áframhaldandi söluaukningu á næsta ári. Slíkt er þó ekki unnt nema með átaki í kynningu og sölu þessara vara, samfara fyrsta flokks gæðum fram- leiðslunnar. Fyrirtækin búa nú við dauðan tíma frá desember til marsloka og fylgja þessu miklir fjárhagslegir erfiðleikar. Kosin var þriggja manna nefnd til þess að athuga möguleika á því að fjármagna framleiðslu þessa tímabils meö að- stoð afurðalánakerfisins. í dag eru starfandi á landinu 2 spunaverksmiðjur, 17 prjónastofur og 35 saumastofur sem framleiða til útflutnings auk handprjónakvenna sem taldar eru um 1500. Nýting sunnlenzkra jarðefna Jarðefnaiðnaður h.f. var stofnað fyrir rúmum tveimur árum og eiga nær öll sveitarfélög á Suðurlandi og um tvö hundruð einstaklingar aðild að félaginu. Tilgangur félags- ins er að vinna að nýtingu sunn- lenzkra jarðefna svo sem vikurs, gjalls, basalts o.fl. Fyrirtækið hefur notið aðstoöar Iðntæknistofnunar íslands svo og erlendra rannsókn- arstofnana og réði á síðasta ári þýsku fyrirtækin DKG Denzinger og FGU Kronberg til að gera frum- könnun á nýtingarmöguleikum, iðnaðarframleiðslu og útflutningi þessara efna. I framhaldi af frumkönnuninni var í sumar fyrir forgöngu Jarðefna- iðnaðar h.f. stofnað rannsóknarfé- lagið Jarðefnarannsóknir h.f. Hlut- hafar þess eru auk Jarðefnaiðnað- ar h.f. fjögur þýsk fyrirtæki. Hlutafé Jarðefnarannsókna h.f. er liðlega 88 milljónir króna, þar af á Jarðefnaiðnaður h.f. 52% en hvert hinna þýsku fyrirtækjanna 12% og hefur íslenzki aðilinn 3 af 5 stjórn- armönnum. Annað fjármagn sem rannsóknarfélagið hefur til umráða er styrkur þýzkra stjórnvalda, að uþphæð um 95 milljónir króna á núverandi gengi, svo og nokkurt framlag íslenzkra stjórnvalda. Kalda borðið -kjörið í hádeginu Kræsingar kalda borðsins i Blómasal eru lóngu víðkunn- ar. Óteljandi tegundir af kjöt og sjávarréttum auk íslenskra jrjóðarrétta. Tískusýningar i hádeginu á föstudögum. Bjóðið viðskiptavinum og kunningjum i kræsingar kalda borðsins. Verið velkomin, Hótel l.oftleiðir. HÓTEL LOFTLEIÐIR 13

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.