Frjáls verslun - 01.11.1978, Blaðsíða 26
kjarni málsins
Rætt við Agnar Ko-
foed-Hansen, flug-
málastjóra, í tilefni
af skýrslu um
ástandið á ís-
lenzkum flugvöll-
um.
Flugmálastjórnin hefur látið út-
búa í fjölriti ummæli ýmissa aðila
vegna flugvalla utan Reykjavíkur
og Keflavíkur um brýnustu og
næstu verkefni. Hér á eftir verður
gripið niður í þessa skýrslu og
getið nokkurra athugasemda, sem
gerðar hafa verið um flugvelli í
áætlanakerfi flugfélaga innan-
lands.
Rif á Snæfellsnesi: Brautir eru
ófærar yfir veturinn. Það vantar allt,
skýli, tæki, veg. Brýnt að fá radíó-
vita. Brautin er mjög blaut. Mjög
gott að fá aðflugvallaljós. Mjög
mikið sjúkraflug er um þennan
stað. Brýnt er að fá Ijós vegna
sjúkraflugs seint að kvöldi og nóttu.
Stykkishólmur: Þarf nauðsyn-
lega aðstöðu fyrir farþega og flug-
vallarstarfsmenn. Þurfa oft að híma
úti á vetrum allt upp í 2—3 tíma í
misjöfnu veðri, t.d. þegar vélinni
seinkar. Hross eru iðulega á braut-
inni. Þarf að girða staðinn. Sími er
fyrir hendi en er oft í ólagi.
Flateyri: Myndast drulla á vellin-
um.
Patreksfjörður: Brýnast að aka
ofan í völlinn. Ekkert hefur verið
bætt í hann síðan 1965 er hann var
byggður. Myndast oft pollar og
síðan ís, erfitt að ná því með heflin-
um. Farþegaskýli er nauösyn. Vax-
andi umferð um völlinn. Þann 1.
september höfðu 5800 farþegar
farið um völlinn.
Þingeyri: Vantar aðflug. Vitinn á
Svalvogum er svo veikur að hann
næst ekki. Yfirlag orðiö mjög þunnt
í köntunum, heldur hvorki flugvél-
um né öðrum ökutækjum í bleytu-
tíð.
„Ástand langflestra
áætlunarflugvalla
landsins fyrir neðan
allt velsæmi”
Isafjörður: Vantar sóp á völlinn,
en hann ísast mjög fljótt upp. Að-
flug erfitt. Umræður um öryggis-
búnaö. Sumir telja aö ekki sé fylgst
nægilega með því að hann sé í lagi.
Sauðárkrókur: Fyrst og fremst
aðbúnaður fyrir farþega.
Siglufjörður: Brautin er of stutt,
segja talsmenn Vængja. Radíó er
mjög lélegt.
Akureyri: Radarinn er að verða
ónýtur, en án hans verður ekki
flogið. Leiðbeiningarljós inn í
myrkrið frá Vaðlaheiði nauðsynleg.
Aðflug úr suðri til norðurs og leið-
beiningaljós geta stytt flugtímann
ótrúlega.
Húsavík: Við norðurenaann er
mikil gjóta, sem þyrfti að fylla uþp.
Yfirborð vallarins er mjög slæmt.
Skýli vantar nauðsynlega.
Bakkafjörður: Völlurinn snýr vit-
laust við vindáttum. Vantar allt
nema að brautin er þarna.
Vopnafjörður: Athuga alvarlega
með aðflug til Vopnafjarðar. I dag
eru þeir eins lengi að fljúga aðflug-
ið og þeir eru að fljúga frá Egils-
stöðum til Vopnafjarðar.
Egilsstaðir: Nýr flugvöllur þarf að
koma vestan við þann gamla. Mjög
þröng vinnuskilyrði með vaxandi
umferð. Þarf skipulagsbreytingu á
innritun farangurs og farþega.
Norðtjörður: Leggja völlinn niður
fyrir Fokker, segir Félag fsl. at-
vinnuflugmanna.
Hornafjörður: Áhugi á að þver-
braut verði lengd í 1200 metra. Það
myndi létta flug en ekki fjölga flug-
dögum. Skýlið þarf að endurbæta.
Nýtt aðflugskerfi myndi þýða lægri
lágmörk.
Vestmannaeyjar: Brautir ísast
upp á örskömmum tíma. Hægt væri
að fjölga flugdögum mikið ef hægt
væri að fljúga næturflug á norður-
suður braut. Flóðlýsa Sæfell vel og
Heimaklett.
Þeir sem veitt hafa þessar um-
sagnir eru aðallega Félag fsl. at-
vinnuflugmanna, flugvallarstarfs-
menn og fulltrúar þeirra flugfélaga,
sem nota viðkomandi flugvelli.
í tilefni af þeim upplysingum.s em
fram koma í þessari skýrslu um ör-
yggismál og aðbúnað á íslenzkum
flugvöllum sneri Frjáls verzlun sér
„Þetta leiðir af sér að öryggi
er stórlega ábótavant”
26